Freyr

Árgangur

Freyr - 01.11.1946, Blaðsíða 6

Freyr - 01.11.1946, Blaðsíða 6
Í'RÉ YR 306 hans langi og mikli starfstími féll síðan í hlut þess héraðs. Mega Skagfirðingar vera þess minnugir, að fáir eða engir utanhér- aðsmenn, sem bólfestu hafa tekið sér i því fagra og ágæta héraði, hafa þjónað því með slíkri trúmennsku, starfsgleði og ást á héraðinu, eins og Jósef Björnsson. Fyrstu störf Jósefs í Skagafirði voru þau, að hann fór um sveitir héraðsins og leið- beindi um jarðrækt og aðrar búnaðarum- bætur. Var Jósef einhver allra fyrsti bú- fróðra manna, sem á þennan hátt hóf ráðunautsstörf fyrir bændur. Áxúð 1882 stofnuðu Skagfirðingar og Húnvetningar búnaðarskóla að Hólum í Hjaltadal. Var Jósef ráðinn skólastjóri við hinn nýstofnaða skóla vorið 1882, og gegndi því starfi að því sinni í 6 ár, eða til 1888. Vér, sem störfum við þau skilyrði, sem nútíminn hefir að bjóða, eigum erfitt með að gera oss í hugarlund hve geigvæn- legir örðugleikar hafa mætt hinum unga skólastjóra, sem tók til starfa harða vorið 1882. Bóklega og verklega búfræðikennslu átti að hefja í hálfföllnum torfbæ, með hin ófullkomnustu tæki til kennslu og bústarfa — og þetta á einhverjum mestu harðinda- árum, sem yfir landið hafa gengið síðustu aldirnar. Annað var þó ef til vill enn erf- iðara — skortur á skilningi almennings — trúleysi og tregða samferðamannanna að styðja hinn unga skólastjóra í brautryðj- endastarfi hans. Sá, sem ekki átti að láta bugast fyrir sliku ofurefli, hlaut að vera gæddur ágætum hæfileikum, góðri mennt- un og bjartsýni, en umfram allt óbifan- legri trú á störf sín og þá hugsjón, sem barizt var fyrir. Allt eru þetta eiginleikar, sem Jósef hafði í ríkum mæli, enda var honum þeirra oft þörf á æviferli sínum. Jósef hætti skólastjórn á Hólum vorið 1888, en tók aftur við skólanum vorið 1896 og gegndi þá skólastjórastarfi til 1902, er skipulagsbreyting var gerð varðandi skól- ann og rekstur hans. Árin 1888 til 1896 bjó Jósef, fyrst að Bjarnastöðum í Kolbeinsdal, sem nú eru í eyði, og síðan að Ásgeirsbrekku í Viðvík- ursveit. Kom þá brátt í ljós, að Jósef var hagsýnn og duglegur bóndi. Vann Jósei erfiðisvinnu til elliára og var hamhleypa til allra verka. Ég sá hann standa að slætti og öðrum heyskaparstörfum á áttræðis- aldri. Léku öll störf í höndum hans. Mátti sjá vinnugleði og ást til starfsins geisla af hverri hreyfingu hins aldraða, en þó ávallt síunga, athafnamanns. Árið 1902 gerðizt Jósef fyrsti kennari við hinn endurskipulagða bændaskóla á Hól- um og gegndi því starfi til 1943, eða þar til hann varð 75 ára. Jósef hefir því verið kennari meginþorra allra þeirra nemenda, sem útskrifast hafa frá Hólaskóla frá byrj- un. Jósef var sérstaklega vinsæll kenn- ari. Hygg ég að nemendum hans hafi því- nær undantekningarlaust þótt vænt um hann og virt hann, bæði sem kennara og sem almennan borgara og samferðamann. Jósef var stórfróður í sínum fræðigreinum, og gat því miðlað lærisveinum sínum næg- um fróðleik og varð aldrei áfátt um það. Hann kunni að búa fræði sín í þann bún- ing, sem ungum mönnum féll vel. Kennsla hans var lifancU og ljós, áldrei þurrt fræðastagl. Hið ljúfa viðmót og fyrirmynd- ar framkoma í daglegri umgegni andaði hlýhug til þeirra, sem voru samferðamenn hans og með honum störfuðu. Á slíkan andblæ frá eldri mönnum eru nemendur mjög næmir. Eitt meginatriði góðrar kennslu er, að sambúð kennara og nem- enda sé þannig tengd. — Þau árin, sem við Jósef störfuðum saman við Hólaskóla, sem voru síðustu starfsár hans þar, undr- aðist ég hve góð tök hann enn hafði á æskunni, hve bjartsýnn og frjálslyndur

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.