Freyr - 01.11.1946, Qupperneq 30
330
FRE YR
Þá gerir skógræktarstj óri grein fyrir
starfi skógræktarinnar árið 1945 og birtir
reikning Landgræðslusjóð. í hann hafa
safnast á árinu svo háar upphæðir, að
samtals námu tekjur rúmlega 390 þúsund-
um króna. Af þeirri upphæð voru 250 þús-
und krónur frá Landsnefnd lýðveldis-
kosninga, en annars höfðu ungmennafé-
lög, íþróttafélög og skógræktarfélög í öll-
um sýslum landsins safnað álitlegum upp-
hæðum og einkafyrirtæki lagt nokkuð af
mörkum.
í ritinu birtist ennfermur skýrsla Skóg-
ræktarfélags íslands eftir Guðmund Mar-
teinsson, og loks eru skýrslur og reikning-
ar hinna ýmsu skógræktarfélaga á land-
inu.
Ritið er prýðilegt að frágangi og læsi-
legt fyrir bæði fagmenn og leikmenn.
SPURNINGAR OG SVÖR
Á meðal annarra þjóða hefir það tíðkast hin
síðari ár, að leitað er álits almennings um ýms
þau efni, sem ágreiningur er um, eða af öðrum
ástæðum þykir hlýða að vita hvað almenningur
hugsar um.
Hafa heilar stofnanir sums staðar verið starf-
ræktar í því skyni einu að spyrja almenning um
hitt eða þetta og rannsaka svo almenningsálitið,
þegar svör við hinum ýmsu spurningum hafa bor-
izt. Á þann hátt þykjast menn komast að raun
um hvað fólk hugsar eða álítur um hin ýmsu efni.
Á sama hátt eru það allmörg blöð, er spyrja les-
endur sína við og við ákveðinna spurninga til þess,
ef verða mætti, að afla upplýsinga á þann hátt
um ákveðna hluti eða þá til þess að gefa lesend-
unum tilefni til heilabrota.
Að sjálfsögðu er það mjög breytilegt hve almenn
þátttaka er í svörum eða hugleiðingum lesend-
anna. Þess eru mörg dæmi að einn af þúsundi
áskrifenda hefir sent svör, en hitt hefir líka komið
fyrir að einn af hverjum 50 eða fleiri hafa sent
úrlausnir.
í 6. tölublaði Freys þ. á. var þremur fyrirspurn-
um beint til lesendanna. Það skal játað, að ef
svara skyldi eftir beztu samvizku og ekki bara út
í hött, þá krafðist það nokkurrar umhugsunar að
ákveða hvernig svara skyldi.
Það sem spurt var um var þetta:
1. Hverjir eru 10 fremstu brautryðjendur íslenzks
landbúnaðar að fornu og nýju?
2. Hverjar 10 konur eru mestir kvenskörungar
þeir, er uppi hafa verið á íslandi?
3. Hver eru 10 frægustu höfuðból þessa lands?
Gefinn var dálítill frestur til þess að svara
spurningunum og síðar var hann framlengdur, ef
vera kynni að fleiri vildu svara en það gerðu í
fyrstu. Svörin bárust strax eftir að spurningarnar
voru birtar og aðeins eitt síðar.
Svör komu frá aðeins 18 mönnum en það mun
vera sem næst einn fyrir hverja 200 áskrifenda
Freys.
Hvort kalla megi niðurstöðurnar, sem fundnar
verða af svörunum, almenningsálit eða eigi má að
sjálfsögðu um deila, en þeir sem staðfesta hlutina
í ljósi stærðfræðilegra prófa mundu hiklaust telja
það sanna mynd af almenningsálitinu þegar flestir
svara samhljóða, og ættu þá þau nöfn sem efst
eru í hvorri röð að vera álit almennings. Um þetta
skal nú annars ekki frekar rætt, en því næst snúa
sér að staðreyndum.
Fyrstu spurningunni hefir þá verið svarað þannig
að þeir 18 menn sem sendu úrlausnir hafa nefnt
42 búnaðarfrömuði.
Atkvæði hafa fallið þannig á einstaklinga:
Torfi í Ólafsdal ............. 18
Björn í Sauðlauksdal ......... 17
Sigurður búnaðarmálastjóri .. 16
Klemenz á Sámsstöðum ......... 13
Halldór á Hvanneyri .......... 11
Ólafur Jónsson, Akureyri .... 9
Vísi Gísli .................... 9
Eggert Ólafsson ............... 8
Njáll á Bergþórshvoli ......... 7
Páll Zóphóníasson ............. 6
Næstir í röðinni voru: Árni G. Eylands, Jón Sig-
urðsson, forseti, Steingrímur Steinþórsson og
Tryggvi Þórhallson með 5 atkvæði hvor; Einar
Helgason og Thor Jensen 4 atkvæði og svo aðrir,
er fengu ennþá færri.
Spurningunni um mestu kvenskörungana var
svarað þannig af 17 manns:
Bríet Bjarnhéðinsdóttir ...... 16
Bergþóra Skarphéðinsdóttir .. 12
Helga á Grund ................ 11