Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2005, Page 13
DV Fréttir
FÖSTUDAGUR 13. MAÍ2005 13
Of þunnípróf
Norsk menntamálayfir-
völd hafa ákveðið að fresta
töku stúdentsprófa þar í
landi til að
gefa vænt-
anlegum
nýstúdent-
um tæki-
færi tO að
láta renna almennilega af
sér. Hefð er fyrir því hjá
norskum nemendum að
dimmitera, duglega áður en
próf hefjast. Partíið stendur
frá byrjun maí til 17. maí,
þjóðhátíðardags Norð-
manna. Margir eiga í erfið-
leikum með að einbeita sér
að prófum eftir slarkið og
því hafa yfirvöld aumkað sig
yfir þá.
Ljúfsár leyfis-
svipting
Robert Filip, nítján ára
rúmenskur piltur, missti
ökuskírteinið sitt í níutíu
daga eftir að hann klessti
bílinn sinn á meðan
kærasta hans, Andrea
Popescu, 18 ára, veitti
honum munnmök. Ro-
bert, sem var nakinn þeg-
ar lögregla mætti á slys-
stað, verður einnig að
greiða skaðabætur vegna
kyrrstæðs bfls sem hann
klessti á í miðbæ borgar-
innar Craiova. Hitinn í
parinu var svo mikill að
ástarleikurinn hélt áfram
fyrir framan vitni að
árekstrinum, samkvæmt
fféttamiðlinum Ananova.
Ölvaður undir
beisli
Millard Dywer frá Kent-
ucky-fylki í Bandaríkjunum
var á dögunum handtekinn
fyrir ansi óvenulegan ölvun-
arakstur. Lögregla í heima-
bæ hans handtók Millard og
ákærði fyrir að „aka“ ölvað-
ur þar sem sat á hesti sínum
og reið um götur heima-
bæjar síns. Millard viður-
kenndi að hafa drukkið tólf
bjóra og mældist vel yfir
mörkunum. Samkvæmt
lögum í Kentucky teljast
hestar vera ökutæki. Millard
er afar ósáttur við málið og
ætlar fyrir rétt.
Páfabíllinn
alltof ódýr
Uppboðsvefsvæði eBay í
Þýskalandi verður líklega
lögsótt fyrir að selja páfabfl-
inn, VW Golf, eins og frægt
er orðið. Fyrrverandi eig-
andi bílsins sem setti hann
á uppboð, atvinnuleysing-
inn Benjamin Halbe, segist
alls ekki hafa fengið nóg fyr-
ir kerruna. Hún fór á tæpar
sextán milljónir en kostaði
Halbe upphaflega rúmar
700 þúsund krónur. Halbe
segist hafa upplýsingar um
að fjölmargir hafi ekki náð
að komast á síðuna og
bjóða í bílinn. Þýskt lög-
fræðifyrirtæki hefur staðfest
málsókn sé í undirbúningi.
Bar viö bræöiskasti (dotturdrápi
Jerry Hobbs viðurkenndi í gær fyrir rétti að hafa stungið átta ára
dóttur sína og níu ára vinkonu hennar til bana síðastliðinn sunnu-
dag með litlum eldhúshníf. Líl
mánudaginn í almenningsgarði
Hobbs játaði bæði munnlega og
skriflega að hafa myrt stúlkurnar.
Ástæðan sem hann gaf var reiði í
garð dóttur sinni, Lauru, þar sem
hann hélt að hún hefði stolið fé af
móður sinni. Hann sagði einnig að
vinkona hennar, Krystal Tobias,
hefði ógnað sér með hnífnum sem
hann notaði. Lögregluyfirvöld gefa
h'tið fýrir þessar útskýringar. Játn-
ingin verður notuð í réttarhöldum
gegn Hobbs og ákæruvaldið segir
stúlknanna fundust illa farin á
smábænum Zion í Illinois-fylki.
lfldegt að áþreifanleg sönnunargögn
á morðstað verði einnig borin fram.
Lýsingar á morðunum eru
óhugnanlegar. Samkvæmt því sem
fram kom í vitnaleiðslum í gær voru
stúlkurnar báðar stímgnar margoft.
Alls mun Laura hafa verið stungin
tuttugu sinnum háls, búk og augu og
Krystal fengið ellefu stungur í háls
og búk. Svo miklu afli mun Hobbs
hafa beitt í bræði sinni að ein stunga
fór í gegnum háls Lauru og endaði í
mænu hennar. Saksóknari í máhnu
lýsti ódæðinu sem slátrun. Dómari í
vitnaleiðslunum skipaði að Hobbs
yrði í haldi og gæti ekki sloppið gegn
tryggingu.
Talsmaður fjölskyldu Lauru
Hobbs gaf stutta yfirlýsingu á mið-
vikudaginn. Þar sagði hann að fjöl-
skyldan vottaði fjölskyldu Krystal
sínu dýpstu samúð og þakkaði íbú-
um Zion stuðning
á þessum erfiðu
tímum.
Gífurleg sorg ibúarsmá-
bæjarins Zion hafa lagt blóm
og biöðrur nálægt staðnum
þar sem Laura og Krystal voru
myrtar. DV-mynd Reuters
; jffMS
(MSK
ÁSKRIFT; 515 6100 | WWW.STOD2.IS | SKÍFAN ! OG VODAFONE
Guórún Gunnarsdóttir og Þuríóur
Siguróardóttir mæta Andreu
Gylfa og Berglindí Björk