Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2005, Blaðsíða 11
TJSV Fréttir
Reykjavíkurborg lætur Steingrími Njálssyni barnaníðingi i té
ibúð á Skúlagötu 70 við hlið róluvallar þar sem börn eru að
leik. Framkvæmdastjóri Félagsbústaða, Sigurður Friðriksson,
segir að ef menn brjóta húsreglur fái þeir aðvörun.
Barnaníðingur með
útsýni ylir róluvöll
„Ef menn brjóta húsreglur gefum við aðvaranir," segir Sigurður
Friðriksson framkvæmdastjóri Félagsbústaða. fbúar á Skúlagötu
70 óttast um öryggi sitt vegna sífelldra árekstra við Steingrím
Njálsson barnaníðing sem býr í blokkinni - með útsýni yfir rólu-
völlinn.
Sigurður hjá Félagsbústöðum
segir það ljóst að ef sannist að menn
brjóti húsreglur sé gefin aðvörun.
Hann geti samt ekki tjáð sig um ein-
staka leigjendur. Samtalst séu 1700
íbúðir á þeirra vegum en oftast hald-
ist friður. Þannig hafi íbúafjöldinn
hjá þeim tvöfaldast síðan 1997 en
meðaltalið á útburðum haldist. Um
tólf á ári.
„Það eru ströng viðurlög við því
að brjóta húsreglur og ég held að
menn átti sig á því.“
íbúar hræddir
Vera Steingríms Njálssonar á
Skúlagötunni hefur þó ekki verið
átakalaus. DV greindi frá því þegar
Steingrímur veittist að eldri konu,
öryrkja, sem býr í blokkinni. Konan,
sem heitir Sigrún Guðmundsdóttir,
kærði Steingrím til lögreglunnar og
sagði ástandið í blokkinni hrikalegt.
Enginn vildi hafa barnaníðinginn
fræga í blokkinni.
„Þetta er hrikalegt," sagði Sigrún.
„Við viljum öll fá hann út.“
„Þetta er hrikalegt. Við
viljum öll fá hann út."
í kast við lögin
Aðrir íbúar í hverfinu sem DV
ræddi við vildu hvetja foreldra til að
leyfa börnum sínum ekki að leika
sér einum á róluvellinum. Stein-
grímur hefur síðustu ár verið dug-
legur við að komast í kast við lögin
en nýverið kærði hann tvo menn
fyrir að ganga í skrokk á sér. Menn-
irnir voru sýknaðir eftir löng og
ströng málaferli.
Steingrímur á að baki langan
afbrotaferil og hefur verið dæmdur
fyrir að níðast á börnum.
simon@dv.is
Nýtt vitni verjenda Jacksons með friðhelgi saksóknara
Málsóknin gegn Michael í molum
Svo virðist sem saksóknarar í
máli Michaels Jackson, sem ákærð-
ur er fyrir að hafa misnotað Gavin
Arvizo og síðar haldið honum og
fjölskyldu hans í gíslingu, séu hægt
og róíega að glopra niður málinu af
einskærum klaufaskap.
Saksóknarar gerðu samning við
vitnið Vincent Amen, fýrrverandi
starfsmann Jacksons sem talið er að
hafi hjálpað til við að halda Arvizo-
fjölskyldunni í gíslingu, um að hann
fengi friðhelgi ef hann bæri vitni
fyrir þá. Þegar þeir svo yfirheyrðu
hann kom í ljós að það sem.hann
hafði að segja stangaðist algerlega á
við það sem saksóknarar hafa reynt
að halda fram - að Jackson og staifs-
fólk hans hafi haldið Gavin, systkin-
um hans og móður í gíslingu þangað
til þau komu ffam á myndbandi og
Vel gætt Það dugar ekkert minna en fjórir
lífverðir fyrir poppgoðið.
rómuðu söngvarann. Þvert á móti
hélt Amen því fram að Arvizo-fjöl-
skyldan hefði frekar haldið honum
og Frank Tyson, öðrum starfsmanni
Jacksons, í gíslingu.
Með friðhelgina í farteskinu hef-
ur Amen nú ákveðið að bera vitni
fyrir verjendur Jacksons. Friðhelgin
virkar þó aðeins ef hann segir satt og
rétt frá, samlcvæmt erlendum frétt-
um. Verjendur Jacksons segja að svo
sé. Vitnisburður Amens kemur til
með að eyðileggja rök sækjenda um
gíslatöku, að sögn sérfræðinga. Þeir
fttrða sig á því að Tom Sneddon, að-
alsaksóknarinn, hafi ákveðið að
ákæra gíslatökuna eftir að hafa heyrt
það sem Amen hafði að segja.
Amen mun að öllum líkindum
bera vitni á eftir eða undan leikaran-
um Chris Tucker og fyrrverandi kær-
ustu hans, Azja Pyor. Talið er að
vitnisburður þeirra tveggja komi tii
með að skaða málsóknina gegn
Jackson verulega. öll eru sögð hafa
sannfærandi sögur af kröfum og
hugarórum Janet Arvizo, móður
Gavins. Því hefur lengi verið haldið
fram að hún hafi alltaf verið á eftir
peningum Jacksons.
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
%jl
tf
” ' ■ ■ llfe* i 1 §
* . . - ■■•:
í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti er boðið
upp á mjög fjölbreytt nám:
bóknám, listnám, iðnnám/starfsnám og sérdeild.
Bóknám leiðir til stúdentsprófs og
er undirbúningur fyrir háskólanám.
Listnám er undirbúningur fyrir frekara
listnám, arkitektúr og annað framhaldsnám.
Markmið iðnnáms/starfsnáms er að undirbúa
nemendur fyrir störf í ýmsum greinum atvinnulífsins,
veita sérhæfð starfsréttindi og/eða undirbúning fyrir
frekara nám í sérskólum.
Bóknám til stúdentsprófs
Félagsfræðabraut
Málabraut
Náttúrufræðibraut
Upplýsinga- og tæknibraut
Þriggja ára náttúrufræðibraut
Listnámsbrautir
Myndlistarkjörsvið
Textíl- og hönnunarkjörsvið
Löggilt iðnnám
Húsasmíðabraut
Rafvirkjabraut
Snyrtibraut
Löggilt starfsnám
Sjúkraliðabraut
Eins til tveggja ára starfsnám
Grunnnám rafiðna
Grunnnám bygginga- og
mannvirkjagreina
Handíðabraut
Iþróttabraut
Viðskiptabraut
Almenn námsbraut
í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti er boðið upp
á viðbótaráfanga í raungreinum og stærðfræði
til að styrkja stöðu nemenda gagnvart námi í
tækniskólum og raunvísindum.
Með viðbótarnámi
er hægt að Ijúka
stúdentsprófi af
öllum brautum.
Innritað er á skrifstofu skólans
frá 09:00 til 15:00. Umsóknareyðublöð
er hægt að nálgast á vefsíðu.
Fjölbrautaskólinn
í Breiðholti
Austurbergi 5 111 Reykjavík Sími 570 5600
Símbréf 567 0389 Tölvupóstur: fb@fb.is
www.fb.is