Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2005, Qupperneq 3
DV Fyrst og fremst
ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ2005 3
| Hér má sjá Tómas Ó. Guð-
jónsson, Ellert B. Schram
og Steinunni Hlíf Sigurð-
ardóttur i parísarhjólinu.
í \ X
* • \
1
1 1
1 \
Spurning dagsins
Hvað finnst þér um nýja forystu
Samfylkingarinnar?
Vann ekkiannars
Ingibjörg ?
„Ég held að hún eigi eftir að gefa okkur
skýrari mynd afstefnu flokksins og sé að
því leyti til bóta."
Paul Nikolov, ritstjóri vefútgáfu
Reykjavík Grapevine.
„Mér líst mjög
vel á hana. Ég
vonast eftir
breytingum."
Kristín Hjalta-
dóttir, öryrki.
„Ég hefenga
hugmynd um
það."
Ástríður
Jónsdóttir,
nemi.
„Éghefbara
■ ekkertpæltí
því. Vann ekki
annars Ingi-
björg ?“
Njáll Björg-
vinsson,
kaffibar-
þjónn.
„Mér líst mjög
vel á. Annars
erég ekki
pólitískurog
hefekkert velt
mér upp úr
þessu."
Guðmundur Sófusson, vega-
laus.
Skyndimyndin að þessu sinni sýnir jómfrúarferð í nýja par-
ísarhjólinu í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardalnum
í gær. Á myndinni má sjá fyrir miðju Ellert B. Schram forseta
ÍSÍ sem að sögn var ánægður með þessa fyrstu ferð í parísar-
hjólimu. „Maður fann sig þarna eins og í parísarhjólinu í Tívolí
í Kaupmannahöfn. Maður upplifði þetta gamla góða ævintýri
þegar maður var í Tívolí sem unglingur. Við vorum þarna í til-
efni af átakinu Hjólað í vinnuna. Verðlaunahafar átaksins voru
þarna mættir og fór hópurinn af reiðhjólum og yfir í parísar-
hjóhð. Allir skemmtu sér vel.“ segir Ellert.
Tveir af fimm viðmælendum DV virtust ekki hafa gefið forystu-
breytingum Samfylkingarinnar gaum. Hinir þrír höfðu fylgst með
um helgina, misvel þó.
Fyrsta myndin af Sigur Rós
Þegar talað er um að fátt sé um fína
drætti er átt við að ekki sé úr mörgum
góðum kostum að velja. Llking þessi á
uppruna sinn úr tregðu
við fiskveiðar eða þegar
aflinn sem dreginn var
um borð var að mestu smáfiskar og
ónýtanlegirfiskar.
Málið
„Þessi mynd var tekin
við héldum tónleika á Djúpinu fyrir
neðan Hornið í Hafnarstræti," segir
ÁgústÆvar Gunnarsson, fyrrverandi
trommuleikari Sigur Rósar. Á gömlu
myndinni stendur hann með Jónsa
söngvara og Georgi Hólm úti í garði
heima hjá foreldrum sínum vorið
1995, en þetta var í fyrsta skipti sem
mynd birtist af hljómsveitinni í dag-
blaði. Strákarnir skarta allir síðu hári
en Ágúst segir að það hafi ekki enst
mikið lengur. „Ég held að við höfum
klippt okkur svona ári seinna."
Um þetta leyti var Sigur Rós búin
að gefa út eitt lag,
Fljúgðu, á safnskífu hjá
Smekkleysu. Á tónleikunum tóku
þeir hins vegar lög af fýrstu plötu
sinni, Von, og tímamótaplötunni
Ágætis byrjun.
„Ég held að þetta hafi verið fýrstu
tónleikamir sem við stóðum fyrir.
Þeir tókust ótrúlega vel og það var
alveg stappað. Þarna er hljómsveitin
rúmlega eins árs og við vorum bara
þrír í henni. Kjartan spilaði með
okkur á tónleikunum og byrjaði
síðan fljótlega formlega í Sigur Rós."
ÞEIR ERU BRÆÐUR
Ráðherrann og aðstoðarmaðurinn
Árni Magnússon félagsmálaráðherra og Páll
Magnússon aöstoðarmaður iðnaðar- og við-
skiptaráðherra eru bræður. Foreldrar þeirra eru
Magnús Bjarnfreðsson og Guðrún Árnadóttir.
Þeir bræður voru báðir íöðru sæti á lista Fram-
sóknarfiokksins I slðustu Alþingiskosningum,
Árni i Reykjavik noröur en Páll i Suðvesturkjör-
dæmi. Þeir bræður voru grunaðir um að standa
á bak við kvennauppreisnina frægu iFramsókn-
arflokknum í Kópavogi fyrr á þessu ári.
FUSADAGAR
Urval af gæða flísum ó sérstöku tilboðsverði. Eitt mesta úrval landsins af flísum, yfir 100 tegundir á lager.
Þegar innrétta á fallegt heimili
Egill
Wrnason hf
Ármúli 8 - 108 Reykjavík
595 0500 - www.egillarnason.is