Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2005, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2005, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ2005 Fréttir UfV Magnús Þór í veiðiferð Magnús Þór Haf- steinsson, þingmað- ur Frjálslynda flokksins hefúr ráðið sig sem háseta á síldveiðiskipið Bjarna Ólafsson AK70. Magnús segir á heimasíðu sinni að hann hlakki til að vinna almenni- lega erfiðisvinnu og þetta muni koma til með að gagnast sér í þingstörfum. í ónafngreindum ummælum á heimasíðu Magnúsar seg- ir orðrétt: „Er þetta sem þið þingmenn eigið við þegar þið segið að sumarfríið ykkar sé ekki frí af því að þið eruð að drýgja tekjur- nar í sumarvinnu?“ Bílvelta í Borgarnesi Tilkynnt var um bílveltu um miðnætti í gærkvöldi, rétt sunnan við Skorholt í * JP umdæmi lögregl- unnar í Borgar- nesi. Mik-' ill vindur olli því að hjól- hýsi í eftirdragi við pallbíl tók á sig vindhviðu sem gerði það að verkum að pailbfllinn velti hálfa veltu og lenti á toppnum. Vestur- landsvegur var lokaður í rúman klukkutíma út af óhappinu en engin slys urðu á fólki. Pallbfllinn skemmdist talsvert en hjól- hýsið lítillega. Lítið var að frétta í umdæmum lögregl- unnar á landsbyggðinni. Rasismi á íslandi Róbert Aron Magnússon, nefndur Robbi kronik. „Jú, ég held aö rasismi sé al- veg til staðar i þjóöfélaginu. Þaö er þó erfitt fyrir mig að segja, ég verð ekki var viö þaö á hverjum degi, þar sem ég er ísiendingur í húö og hár. Ég held þetta sé samt ekki stórt vandamál. Þaö eru nú yfirleitt ekki hróþ og köll eins og gerist og þekkist annars staðar." Hann segir / Hún segir „Ég heldekki. Ég hefalla vega ekkert orðiö vör viö þetta. Þettaer samt svo viökvæmt mál, að fáir vilja tjá sig um það. En ég hefaldrei séö ras- isma I þjóöféiaginu. Ég vinn hjá einum svörtum sem hefur ekkert sagt um þaö. Þar sem ég vinn eru allir jafnir. Þaö er jafnvel borin meiri virðing fyrir fólkisem er erlent eða viröist vera það. Mér finnst þetta fólk alveg eins og við og hafa jafnrétti." Margrét Sigurðardóttir, oft kölluð Magga massi. Hagbarður Valsson, starfsmaður á skrifstofu íslenska safnaðarins í Noregi, er ákærður fyrir stórfelldan fjárdrátt. Litlar líkur eru á að endurheimta féð segir Þór Garðarsson lögmaður safnaðarins. Gjaldkerinn hefði getið stöðvað fjárdráttinn en sinnti ekki starfi sínu. Mikið áfall fyrir söfnuðinn. Séra Helgi Hróbjartsson, prest- ur safnaðarins, finnur til með Hagbarði og vonar að hann fái hjálp. Feðir spilafíkilsins réð hann án samráðs „Faðir hans réð hann í stöðuna upp á sitt einsdæmi án þess að auglýsa stöðuna og . án þess að fá sam- TT , * f , ,.T . að þeim. Ásgeir telur það vítavert. _ Hagbarður Valsson, 31 ars gamall Islendingur busettur í Noregi, Eins og Vaiur sagði Jósteinn af sér þykkl SOknamefndar hefur verið ákærður íyrir að draga að sér fé frá íslenska söfnuð- um leið og þetta mál komst upp. inum í Noregi. Faðir Hagbarðar var sóknarformaður og réð hann Jósteinn neitaði að tjá sig um mál- án samráðs við aðra í stjórninni. Alls stal Hagbarður sex milljón- ið viö Dv- og lét hana ekki vita fyrren eftirá.J um af söfnuðinum. Faðir Hagbarðar, Valur Björn Valdimarsson, var formaður safn- aðarins og bar ábyrgð á ráðningu sonar síns. Hann sagði upp um leið og málið komst upp í febrúar. Ásgeir Bragason ’ sóknarmeðlimur segir að Valur beri einnig ábyrgð í þessu máli: „Faðir hans réð hann í stöðuna upp á sitt einsdæmi án þess að auglýsa stöðuna og án þess að fá samþykki sóknarnefndar og lét hana ekki vita fyrr en eftir á.“ Spilafíkill Hagbarður er haldinn spilafflcn og bendir Ásgeir á að faðir hans hafi vitað um hagi hans og fjárhag. Óðinn Valsson, bróðir Hagbarðar, neitar að einhver í fjölskyldunni hafi haft hugmynd um hvað væri í gangi. „Nei, við vissum ekkert. Þetta er gríðarlegt áfall fyrir fjöl- skylduna og hefur haft mikið áHrif á föður minn. Hann Jekur þetta mjög nærri sér.“ Ásgeir segir jafnframt að gjald- keri safnaðarins, Jósteinn Bach- mann, hafi fengið athugasemd frá endurskoðanda safnaðarins í byrjun desember um að eitthvað undarlegt væri á seyði £ fjármálum safnaðarins. Engar kvittanir Endurskoðandinn, Jósteinn og Hagbarður funduðu um málið 15. desember. Þar bar Hagbarður því við að hann hafi ekki kunnað rétt vinnubrögð og því væri hann ekki með kvittanir fyrir öllu. Jósteinn gjaldkeri tók afsakanir Hagbarðar góðar og gildar og hafði ekki einu sinni fýrir því að fara yfir færslur á reikningn-* um þrátt fyrir að hafa fullan að- gang Finnurtil með þjófnum Gekk alla leið Frá því að Hagbarður fékk kort á vegum safnaðarins og þar til upp komst um hann hafði hann að meðaltali tekið út 198 þúsund íslenskar á dag. Hann gekk því eins langt og hann gat í þjófnaðin- um en heimildin á kort- inu var 200 þúsund á dag. Þór Garðarson, lögfræð- ingur kirkjunnar, er ekki bjartsýnn á að söfnuður- inn endurheimti féð sitt. „Eins og stendur er hann ekki í vinnu og því er enga peninga að fá hjá honum. Hann er reyndar ungur og gæti borgað þetta á lengri tíma. Það er ljóst að söfn- uðurinn mun gera allt til að endurheimta féð." johann@dv.is \ Séra Helgi Hróbjartsson, prestur í söfnuðinum, sagði mál þetta hafa slæm áhrif. „Það er ekki gaman að fá svona yfír sig. Maður treystir á að svona hlutir séu í lagi. Ég held að sóknarböm mín séu ekki reið, held- ur fínni þau til með viðkomandi. Við vonum að söfnuðurinn nái að rétta úr kútnum og allt verði í lagi.“ Spurður að því hvemig hann líti á þetta mál út frá lögmálum kristinnar trúar segir Helgi að þetta sé ekki að- eins brot á boðorði, „heldur lfka á reglum í öllum venjulegum samfé- lögum, hvort sem um er að ræða kristin eða ekki. Ég fínn til með þess- um manni og vona að hann fái ein- hverja hjálp út úr þessu." Hagbarður Valsson Hagbaröur ásamt eigin- konu sinni, Guðrúnu Guð mundu Siguröardóttur, og eldra barni þeirra hjóna. Hagbarður Valsson Myndin er tekin ídesem- berþegar þjófnaður Hag- | barður stóð sem hæst. Valur Björn Valdi- marsson Réð son sinn án þess að ráðfæra sig við stjórn safnaðarins. Stjórn Eurovision ræðir breytingar á keppninni Vilja skipta forkeppninni upp keppninni í járngreipum. Byrjað er að ræða frekari breytingar, t.d. að skipta forkeppninni upp eftir land- legu í Evrópu. „Það er verið að ræða ýmsar breytingar en þær taka vænt- anlega ekki gildi fyrr en eftir næstu keppni. T.d. að skipta forkeppninni í Norður- og Suður-Evrópu. Jafíivel fleiri hluta. Stjórnarnefnd keppn- innar ætlar víst að líta yfir þetta núna," segir Jónatan. Þegar stigagjöf úr undankeppni söngva- keppn- innar er skoð- uð „Það er ekki nokkur leið að sjá " ' ' “ ' • ' keppninni lengur. höfum ekki átt nöguleika eftir að austantjaldsþjóð- irnar komu inn. Sérstaklega ekki eftir að forkeppnin byrjaði," segir Jón- atan Garðarssön, far- arstjóri íslenska hópsins í Eurovision. íslendingar eru ekki einir um að kenna austantjalds- um halda Breyttir tfmar Jónatan segir okkur ekki eiga mögu- leika í núverandi keppni. kemur í ljós að aðeins 9 þjóðir af 38 gáfu Selmu stig. Það orsakaði það að hún lenti í 16. sæti. Sæti sem er ís- lendingum vel kunnugt. Þessir gáfu okkur stig: Andorra 6 stig Danmörk 10 stig Frakkland 2 stig ísrael 4 stig Moldóvía 10 stig Noregur 8 stig Spánn 2 stig Svíþjóð 7 stig Bretland 3 stig Alls 52 stig, sextánda sæti. 29 lönd gáfu okkur 0 stig. Mest fékk Rúmenía, 235 stig. - Lettland, síðasta landið inn í aðal- ¥ keppni, fékk 85 stig. FORKEPPNI EUROVISION Hagnaður á Nesinu Seltjarnarnesbær skilaði góð- um hagnaði árið 2003 en ár- skýrsla bæjarfé- lagsins var kynnt í gær. Fram kemur í henni að reksturinn hefði gengið prýðilega og allar væntingar bæjarsjóðs í upphafi árs hefðu staðist. Skuldir bæjarfélagsins og skuldbinding- ar lækka og veltufjárhlutfall eykst verulega. Jónatan Guðmarsson, bæjarstjóri á Seltjarnamesi, sagði í samtali við DV í gær að afkoman hefði verið vel viðund- andi, sérstaklega í ljósi þess að miklar framkvæmdir hefðu verið á vegum bæjarfélagsins á árinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.