Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2005, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2005, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ2005 Fréttir DV Kostir & Gallar Gunnar Helgi Kristinsson þykir nákvæmur og samviskusamur, vel að sér og klár Iþvl sem hann tekur sér fyrir hendur. Hann þyk- ir sjaldan stlga feilspor í grein- ingum sínum á samfélaginu sem hitta oft beint I mark. Vandvirki Gunnars þykir oft há honum í hinu daglega striti. Þess vegna þykir hann óttalega smámunasamur og margir kveða svo fast að orði að kalla hann ófélagslyndan þvergirðing. „Gunnar Helga einkenna feykilega traust vinnu- brögð. Hann er mjög vel að sér og beitir þeirri þekkingu afskynsemi og öryggi. Stundum er það þannig að gallarnir eru kostir og þannig er það að Gunnar Helgi er mjög fastur fyrir, en jafnan á þeim hlutum þar sem hann á að vera fastur fyrir." Þorbjörn Broddason félagsfræði- prófessor. „Kostir Gunnars Helga eru þeir að hann er bæði nákvæmur og samvisku- samur. Gunnar er líka reglusamurog traustur. Gallarnir eru þeir að hann getur verið smámunasamur og stund- um dálitillþvergirðingur." Hannes Hólmsteinn Glssurarson stjórn- málafræðlprófessor. „Gunnar Helgi er ákaf- lega vandaður og klár maður. Hann er líka ein- staklega fjölhæfur. Það er hugsanlega hans helsti galli hversu duglegur hann er og nær þannig oflítið að blanda geði við samstarfsmenn á vinnustað. Að minnsta kosti gekk betur að ná honum á krána hér I eina tlð." Stefán Ólafsson prófessor. Gunnar Helgi Kristinsson erprófessor viö stjórnmálafræöiskor Háskóla íslands. Hann tók BA.-prófí stjórnmálafræÖi áriö 1981. Þaöan lá leiöin bæðil London School of Economics og síðar I Háskólan I Essex, þar sem hann lauk doktosprófí árið 1989. Kaupmáttur jókst í apríl Kaupmáttur jókst um 2,3% í apríl samkvæmt mælingu Hagstofunnar eftir því sem fram kemur á vef Alþýðusambands ís- lands. Launavísitalan mældist 264,2 stig og hækkaði um 0,5% frá því í mars. Alþýðusambandið hefur þó áhyggjur af því að þessi kaupmáttur sé ekki kominn til að vera því enn gæti áhrifa frá lögbundnum hækkunum síðustu kjara- samninga. ASÍ segir ekkert benda til þess að launa- skrið sé í þjóðfélaginu nú um stundir því kaupmátt- urinn muni minnka á nýjan leik þegar launin hætta að hækka líkt og þau hafa gert að undanförnu. Gömul kona féll niður hraunvegg og slasaðist við Gullfoss. Umhverfisstofnun vill ekki útbúa stíga sem gætu komið í veg fyrir slys af þessu tagi. Fegurðar- sjónarmið eru sögð ráða ferðinni. ■ • S?** - Féll við Gullfoss Eldrikona frá Þýskalandi slasaðist á stað sem fjöldi ferðamanna heimsækir á degi hverjum. Ferðamönnum við Gullfoss var brugðið á sunnudaginn þegar eldri kona féll með þeim afleiðingum að hún meiddist á fæti og hendi. Konan var á svæði sem ekki er hægt að nálgast nema með því að príla um eins metra háan hraunvegg. Árni Bragason hjá Umhverfis- stofnun segir að ekki sé á prjónun- um að lagfæra aðgengið og koma þannig í veg fýrir að aldrað fólk, eða aðrir, slasi sig. „Það verða engin mannvirki gerð við ána. Við viljum ekki eyðileggja myndefnið fyrir öll- um. Ef við færum út í að gera stíga þama myndi það gjörbreyta útíit- inu. Okkur ber að reyna að varðveita sem best staðinn og hafa sem minnst áhrif, en samt gera þetta að- gengilegt fyrir fólk,“ segir Ami, sem telur að upp að vissu marki verði fólk að bera ábyrgð á sjálfu sér. Sjúkraliðar gerðu að sárum gömlu konunnar við fossinn. Þeir bám hana síðan upp stíginn í átt að sjúkrabílnum, sem var lagt við hlið íjögurra langferðabíla, en slegnir ferðamenn fylgdust með. Konan reyndist ekki mjög alvarlega slösuð. jontrausti@dv.is mm-r n. ,\r Barnaskólakennari horfir bjartsýnn til framtíðar Giftist nemanda sem hún nauðgaði Fyrrverandi bamaskólakennari giftist fyrrverandi nemenda sínum tfu árum eftir að hafa nauðgað honum þegar hann var aðeins 12 ára. Mary KayLetoumeau, 43ára, ogViliFuala- au, 22 ára, gengu í það heilaga í leyni- legri athöfa á föstudaginn einhvers staðar nálægt Seattíe í Bandaríkjun- um. Letoumeau var handtekin árið 1997 þegar hún var ófrísk af bami sínu VUis. Hún var dæmd í sjö og hálfs árs fangelsi og var látin laus í ágúst á síðasta ári en þá hafði hún fætt annað bam í fangelsinu. Verðir stóðu vörð er athöfnin fór fram en hjónakomin leyfðus starfs- mönnum tveggja sjónvarpsstöðva að vera viðstaddir. Dætur þeirra, sem em átta og sjö ára, vom brúðarmeyjar en stelpumar hafa verið í umsjá móð- ur Fualaaus á meðan móðir þeirra sat inni. í viðtali við sjónvarpsstöðina Entertainment Tonight sagðist brúð- VIII Fualaau Var 13 áraþegarhann eignað- ist sitt fyrsta barn með Mary Kay. urin vera hamingjusöm. „Við höfum upplifað mikið mótíæti en þessir erf- iðu tímar em nú afstaðnir og við horf- um við björtum augum til framtíðarinnar.“ Fyrrverandi eiginmaður Mary Kate lét lögregluna vita af ástarsambandi eiginkonu sinnar og VIlis eftir að hafa fundið mörg ástar- bréf frá nemendanum. Mary Kay Letourneau „Við höfum upplif- að mikið mótlæti en þessir erfiöu tímar eru nú afstaðnir og við horfum björtum augum til framtíðarinnar." BBC lamað í verkfalli Ellefu þúsund starfsmenn BBC fóm f verkfall í sólahring í gær vegna þess að nýlega var starfsmönnum fækkað um fjögur þúsund. Dagskrá BBC var því í lamasessi í gær, bæði sjónvarps-, frétta- og útvarps- stöðvamar. Verkfallsfólk kom sér fyrir fyrir utan höfuöstöðvar BBC í Vestur- London og var með borða sem meðal annars stóð á „Við ætíum að bjarga BBC“. Ekki fóm þó allir í verkfall. Terry Wogan, sem er þekktur fyrir skellegga Eurovision-lýsingu, mætti til vinnu í útvarpið og óskaði ver- fallsmönnum góðs þegar hann tróð sér i gegnum þvöguna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.