Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2005, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR I. JÚLÍ2005
Fréttir DV
Neyðarlínan
meðvanda-
málalínu
Neyðarlínan og Reykja-
víkurborg hafa komist að
samkomulagi um að sú
fyrrnefnda muni svara fyrir
Símaver Reykjavíkurborgar
utan skrifstofutíma svo nú
ætti að vera unnt að ná í
einhvern innan borgarinn-
ar allan sólarhringinn, þó
með fyrirvara um alvarleika
mála, en ákveðið ferli fer í
gang sem skilgreint var í
samvinnu aðilanna tveggja.
Fólk þarf þó ekki að hringja
með vandamál sín í sjálfa
neyðarlínuna, eða 112,
heldur mun númer Síma-
versins 411-1111 vera í opið
allan sólarhringinn.
Hrafn bíður
átekta
Umhverfis-
svið og fram-
kvæmdasvið
Reykjavíkur-
borgar hafa
fengið erindi
Hrafns Gunn-
laugssonar varð-
andi heyskap á Laugar-
nestanga til umfjöllunar frá
borgarráði. Hrafn skrifaði
borgarráði opið bréf vegna
málsins en hann vill að fífl-
um og sóleyjum á Laugar-
nestanga verði hlíft við
slætti. Ekki var tekinn efnis-
leg afstaða til málsins í
borgarráði. Búist er við að
umhverfis- og fram-
kvæmdasvið skili áliti sínu
á erindi Hrafns eftir helgi.
Heitur pottur, sólpallur, glæsilegur garður fyrir hundana. í heilsubænum Hvera-
gerði eru ný heimkynni fegurðardrottningarinnar og athafnakonunnar Lindu
Pétursdóttur. Fyrir rúmar tuttugu milljónir hefur hún fest kaup á látlausu par-
húsi. Þar mun Linda, sem komin er átta mánuði á leið, ala upp barnið sitt.
; :
L.
aíí
. A v
Linda Pétursdóttir við 'TOP r
nýja húsið Býríheilsu-
bænum, skammt frá for-
eldrum sínum. Æ A
Gallabuxna-
deila heldur
áfram
Margir af helstu for-
kólfum golfíþróttarinn-
ar hér á íslandi hafa lagt
orð í belg í umræðu um
gallabuxur á vef golfara,
kylfmgur.is, og kváðu
sumir fast að orði. Til
dæmis skrifaði Jóhann
Gunnar Stefánsson,
framkvæmdastjóri GKG,
að margir myndu fara
hjá sér við að sjá mann
mæta í gallabuxum í
Reykjavíkurmaraþonið,
eða einhvern sem væri
að kvænast. „Flugmað-
ur í millilandaflugi, lög-
reglumaður og knatt-
spyrnumaður myndu
allir eiga svolítið bágt í
gallabuxum í sínu starfi
eða sporti. Gallabuxur
eiga ekki heima á golf-
velli undir neinum
kringumstæðum," skrif-
ar framkvæmdastjór-
inn.
Fegurðardrottningin Linda Pétursdóttir hefur fest kaup á glæsi-
legu parhúsi í heilsubænum Hveragerði. Þar mun hún ala upp
barnið sitt í fjölskylduvænu umhverfí; með heitan pott, sólpall
og stóran garð þar sem hundarnir hennar geta leikið listir sínar.
Guðmundur Steinsson, seljandi
hússins, er ánægður með nýja kaup-
andann.
.Auðvitað er gaman að fá Lindu í
bæinn," segir Guðmundur Vignir
Steinsson, seljandi parhússins á Heið-
arbrún 32 í Hveragerði. Húsið er met-
ið á yfir 20 miiljónir, er byggt árið
1980, sex herbergja og með stórum 20
fermetra bílskúr. Guðmundur segir
Lindu ekki verða fyrir vonbrigðum.
„Jú, þetta er fi'nt hús með öllum
græjum, heitum potti, palli og falleg-
um garði," segir hann.
Barnið að fæðast
Linda Pétursdóttir á að eiga í
ágúst. Hún er því komin á áttunda
mánuð. Hún virðist hafa ákveðið að
festa rætur hér á landi og leyfa barn-
inu að alast upp á íslenskri grund.
Barnsfaðir hennar er kanadískur
læknir sem Linda hefur ekki viljað
opinbera fyrir þjóðinni. Sögusagnir
um að hún ætli að flytja aftur til
Kanada þegar barnið fæðist eru,
miðað við kaup hennar á nýja hús-
inu, ekld á rökum reistar.
„Jú, þetta er fínt hús
með öllum grjæum.
Heitum potti, palli og
fallegum garði."
Dugnaðarkona
„Meðgangan gengur bara prýði-
lega og ég held að aUt sé í topp-
standi," sagði Linda í viðtali við DV í
apríl. Þá var nóg að gera hjá henni.
Ásamt rekstri baðhússins sinnri hún
velunnarastörfum og bjó í öllum
hamaganginum heima hjá foreldr-
um sínum á Ásgarði í Grímsnesi.
Linda mun hafa hugsað til þess þeg-
ar hún ákvað að Hveragerði yrði
hennar heimabær að fjölskyldan
byggi skammt frá; afi og amma eiga
því auðvelt með að heimsækja
bamabarnið.
Nýr kafli
Linda mun ekki hafa staðgreitt
húsið og vill Guðmundur Vignir ekld
tjá sig um endanlegt kaupverð. Mið-
að við bmnabótamat hússins hefur
það ekki farið á minna en tuttugu
milljónir sem er þó lítið miðað við
hið uppsprengda verð á höfuðborg-
arsvæðinu. Linda hefur ávallt þótt
glúrin í íjármálum og ekki mikið fyr-
ir eyðslu. Með kaupunum og nýju
bami hefst nýr kafli í ævintýralegu
lífi Lindu, konunni sem íslenska
þjóðin elskar.
simon@dv.is
Örn SteinarViggósson féll í gólfið á veitingastaðnum Players og missti bjórglas
Sýknaður af bjórglaskasti
dómi. Ólöf Pétursdóttir kvað upp
dóminn í Héraðsdómi Reykjaness í
gær.
„Það sannaðist þarna að þetta
var óviljaverk hjá mér,“ segir
Örn Steinar. Hann bað Ólaf
afsökunar strax eftir atvikið
á Players og sagðist lítið
skilja hvers vegna málið
væri svo umfangsmikið.
gudmundur@dv.is
„Ég er mjög sáttur og ánægður
með þennan dóm," segir örn Stein-
ar Viggósson, ríflega tvítugur Reyk-
víkingur sem í gær var sýlcnaður af
ákæm um að hafa kastað bjórglasi í
andlit Ólafs Loga Jónassonar á
skemmtistaðnum Players í Kópa-
vogi þann 31. janúar 2004. Málsatvik
voru á þá leið að Öm var á ferð með
föður sínum og félaga á veitinga-
staðnum. Hann segist hafa hrasað
og að glasið hafi flogið í loftið í sömu
andrá og hann greip í föður sinn við
fallið.
Ástæður sýknu em meðal annars
þær að engin vitni urðu að því þegar
Örn átti að hafa kastað glasinu, fyrir
utan mann sem sá einungis glas á
lofti og ekki hægt að sanna að um
viljaverk hafi verið að ræða. Ólafur
lagði fram bótakröfu að upphæð
353.642 kr og var henni vísað frá
Hvaö liggur á?
„Akkúrat núna iþessum töluöu oröum var ég aö rifa hurðarspjaldið afbílnum mínum
segir Davíð Smári Harðarson, söngvari og að því er virðist einnig sjálflærður bifvélavirki.
„Annars er maður að kynna plötuna. Ég er að syngja á Ólafsvík á laugardag, á Akureyri
um verslunarmannahelgina og svo er margt annað ídeiglunni."