Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2005, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2005, Blaðsíða 28
Eskimo Models á íslandi sér um ráðningarnar á íslandi fyrir kvikmyndina Flags of our fathers. Nú er verið að leita að karlmönnum sem eiga rætur sínar að rekja til Austurlanda til þess að leika japanska hermenn. Clint Eastwood vantar 25 karimenn af austurienskum uppruna í stórmyndina Stórmyndin Flags of our fathers fer í tök- ur á íslandi í haust. Aðstandendur myndar- innar eru um þessar mundir aö leita að leikurum í hópsenumar í myndinni. Eins og áður hefur komið fram er verið að leita að fjöldanum öllum af karlmönnum í hlutverk bandarískra karlmanna. Nú er komið á daginn að leitað er að karlmönnum af austurlenskum uppruna sem leikið gætu hlutverk Jap- ana í myndinni. Þeir eru víst ekkert svakalega marg- ir á íslandi Alexía Björg Jóhannes- dóttir ráðningarstjóri leitar | að karlmönnum af öllum stærðum og gerðum. nerurou seö þennan? Eskimo Models leitar að austurleskum karlmönn- um í hlutverk japanskra hermanna „Já, við erum að leita að austurlenskum karlmönnum til þess að leika 25 Japana.“ segir Alexía Björg Jóhannesdóttir, ráðning- arstjóri hjá Eskimo Models „í rauninni geta þeir verið frá Taívan eða Tælandi. Við værum rosa glöð ef við gætum fengiö _ menn frá Japan en þeir eru víst ekkert jpg' svakalega margir á íslandi. Þetta þurfa * bara að vera einhverjir sem geta komið í stað Japana." Alexía segist hafa litlar áhyggjur af því að finna réttu mennina í rullurnar þrátt fyrir að fáir karlmenn reki rætur síðar til Japan hér á landi. Hún seg- ir einfaldlega: „Það er allt hægt ef viljinn er fyrir hendi." Amerískir hermenn leika ameríska hermenn Alexía segir stríðan straum stríðsmanna hafa legið inn á skrifstofu Eskimo. „Við erum búin að fá mjög mikið af karlmönnum á skrifstofuna í myndatöku. Það eru örugg- lega um fjögur hundruð manns búnir að koma.“ Það eru ekki bara íslendingar sem fá að spreyta sig í leiklistinni. „í fyrradag vorum við hjá amerísku hermönnunum á Keflavík- urveÚi. Þar fengum við einhverja 80-90 menn. Við verðum einmitt með myndatöku í Keflavík á sunnudaginn. Þannig að við erum ennþá að leita að ýmsum stærðum og gerðum af karlmönnum." Prufum fyrir Flags of our fathers lýkur þann fimmta júlí. Vanir menn í textahlutverkin Eskimo leitar einnig að fimmtán karl- mönnum í textahlutverkin sem eru 15 tals- ins en öll misstór „Menn þurfa ekkert endi- lega að vera menntaðir leikarar." segir Andrea Brabin, framkvæmdarstjóri Eskimo Models. „Við fáum talkennara frá Banda- ríkjimum til þess að hjálpa leikurum með textann sinn og bandaríska hreiminn. Við . J hvetjum alla til að leikari í um.“ Stærri hlut verkin eru I höndum Holly- wood-leikara og segir Alexía Björg Eskimo ekki koma nálægt þeim ráðningum „Það er ekki í gegn um okkm-. Brad Pitt er alveg hættur að vera á skrá hjá okkur," segir hún og hlær. um þau. Það getur nefnilega leynst Pað leynist leikari í| öHum segir Andrea Brabin, framkvæmda-1 stjóri Eskimo Models. K laugarAs Sýnd kl.3,530,8og 10J0-P0WER u» Sýnd kl. 4,630,9 og 11:30-P0WER y.u Frá leikstjóra Boume Idcntit Frá leikstjóta Boume Identit Sýnd kl. 4 og 6 upside WU.53t),*09l£M llUnnU.S-Jt.tnlO-JO Synd kl. 3, S30,8 og 1(h20 Sýndkl.10 www.laugarasbio.is SýndU.3J0,5^S,8o9l0U0 SýndU.8og10:4S WTWÆa HUGSAOUSIORi guesswhoj Live8-tónleikarnir eru haldnir víðsvegar um heim á morgun. Nína Brá Þórarinsdóttir hjúkrunarfæðingur ætlar sér að mæta eld- hress á tónleikana í London. Fer á Live8 á afmælisdaginn „Ég er rosalega spennt fyrir því að fara á Live8, enda eru þetta engir venjulegir hljómleik- ar. Bróðir minn var svo heppinn að vinna tvo miða á netinu og ákvaö að bjóða mér,“ segir Nína Brá Þórarinsdóttir hjúkrunar- fræðingur. „Það vill líka svo skemmtilega til að ég á afmæli sama dag og tónleikarnir eru svo þetta verður ein stór veisla! Ég hef að visu aldrei farið á tónleika „Það vill svo skemmti- lega til að ég á afmæli sama dag og tónleik- arnir eru svo þetta verður ein stór veisla!“ af þessari stærðargráðu og er ég því algjör grænjaxl í þessum mál- um,“ tekur Nína fram og hlær. Tónleikar með tilgang Nína segir það mikið lán að geta mætt á tónleika sem þessa til þess aö sýna málefninu stuön- ing og þykir henni ánægjulegt hversu margir tónlistarmenn eru tilbúnir að gefa vinnu sína af þessu tilefni. „Það er ekki ólíklegt að ég eigi eftir að gleyma mér í öllum látunum á tónleikunum sjálfum. En þetta vekur mann samt sem áður til umhugsunar varðandi stöðu mála í þróunarlöndunum. Það er því frábært að geta mætt á tón- leika sem hafa alvöru tilgang," segir Nína. Fáir íslendingar fara „Ef ég er fullkomlega hrein- skilin, er ég ekki viss um að ég væri að fara á hljómleikana ef mér hefði ekki verið boðinn miði. En það hefði þá bara verið vegna þess að mér hefði líklega ekki dottið það í hug enda er umfjöllun um tónleikana frekar ný af nálinni hér á landi og veit ég ekki um neina íslendinga sem eru að fara,“ tekur Nína fram. „Hins vegar mæli ég hiklaust með þessu og verða þetta eflaust ekki síðri tónleikar en margt annað sem er í boði. Um að gera að drifa sig og styðja gott mál- efni. Svo er þetta lika einstakt tækifæri til að hlýða á allt þetta lið á sama stað.“ Skráir sig á stuðningslista „Það vekur áhuga fólks að ég er að fara á tónleikana og oft er verið spyrja mig úr spjörunum. Mest hlakka ég til að sjá Cold- play, sem er ein af mínum uppá- haldssveitum, Sting og Trav- is. Annie Lennox er að vísu ekki efst á list- anum en það er auðvitað úr mörgu öðru að velja,“ segir Nína og tekur fram að hún ætli að skrá sig á póstlista og stuðningslista Live8 um leið og hún kemur aftur heim. iris@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.