Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2005, Blaðsíða 11
I»V Fréttir
FÖSTUDAGUR h JÚLÍ2005 17
!
:: .
„ ;
Sí-Í>'
|S ||||l
-v- ;«s!
^*|l«|i
zi3'‘ e1- '■‘,í,„ '<<’V?!''|' ' '
„4ð meðaltali
líða 1-2 mán-
uðir frá því
dómur fellur og
þar til menn
hefja afplán-
vegna almannahagsmuna,
vísar Valtýr til nágranna-
landanna. „í raun er þetta mjög
skammur tími sem tekur að
koma mönnum í afþlánun. ís-
land er eitt fárra landa þar sem
ekki er bið eftir fangavist en til
dæmis er hún upp í þrjú ár i
Noregi."
simon@dv.is
Ibúar við Irabakka segjast hafa varað félagsmálayfirvöld án árangurs við
Sigurði Jónssyni. Hann var fyrr í vikunni handtekinn eftir að hafa verið
kærður fyrir að hafa leitað á 4 ára gamla telpu. Sigurður beið þess að hefja
afplánun eins árs fangelsisdóms sem hann fékk fyrir kynferðisbrot gegn
13 ára dreng og 17 ára geðsjúkum unglingspilti.
Nágrannar vnru búnir
aö vara við barnaperra
„Þetta eru rhistök hjá Félagsþjónust-
unni. Hún hefði átt að gera okkur kunn-
ugt um þessar tithneigingar mannsins."
mm
1
\ Wí-Wcrí '
! I
i . 1 i1
Móðir stúlkunar, sem Sigurður Jónsson hefur verið kærður
fyrir að leita á, er æf yfir að Sigurður hafi fengið að búa óá-
reittur nálægt bömum hennar. íbúar að írabakka 6 taka und-
ir með henni og segja út í hött að dæmdum kynferðisafbrota-
manni sé úthlutað félagslegu húsnæði í blokk þar sem nær
eingöngu barnafólk býr.
DV fór í gær og heimsóttu kon-
una sem lagði nú í vikunni inn
kæru á hendur Sigurði. Hún gerði
það eftir að dóttir hennar sagði frá
einhverju sem kveikti samstundis
viðvörunarbjöllur. „Ég fór rakleitt
til lögreglu og lagði inn kæru,“ seg-
ir móðirin. „Það var ekki fyrr en þá
að ég komst að því að maðurinn
sem búið hafði við hliðina á mér
síðustu ár væri dæmdur kynferðis-
afbrotamaður."
Móðirin hefur ekkert sofið
Sigurður Einarsson átti eftir að
afplána dóm sem hann fékk í
Hæstarétti fyrir kynferðisbrot gegn
13 ára dreng og 17 ára geðsjúkum
unglingspilti þegar hann var
kærður. Hann var þó handtekinn
skömmu síðar og hefur hafið af-
plánun.
Móðir stúlkunnar var í upp-
námi þegar DV ræddi við hana í
gær. „Ég hef ekkert sofið í fjóra
daga," segir hún og leggur hendur
fyrir andlit sér. Það er að segja frá
því dóttir hennar kom heim og
sagði henni frá Sigurði.
íbúar vildu Sigurð burt
fbúar við írabakka, sem DV
ræddi við í gær, skilja ekki hvers
vegna Sigurður Jónsson gat ekki
fengið einhverja aðra félagslega
íbúð - fjarri þeim barnaskara sem
býr í blokkinni þeirra. Þeir segja að
maður sem dæmdur hafi verið
týrir að leita á 13 ára dreng eigi að
fá húsnæði annars staðar. Þar sem
færri börn búa.
Eins og gullkista
Einn móðirin í blokkinni hefur
margoft gert athugasemdir en fékk
sífellt þau svör frá Félagsþjónust-
unni að ekkert væri hægt að gera.
„Þetta hefur verið eins og gull-
Jdsta tyrir hann," segir önnur móðir
sem, eins og aðrir íbúar, veigraði sér
við að koma fr am undir nafni.
Þegar blaðamanni verður litið
út um gluggann sér harm hvað
móðirin á við því fjöldi bama er að
leik á nærliggjandi róluvelli.
Mistök Félagsþjónustunnar
Sigurður Kr. Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri Félagsbústaða hf., er
leigusali íbúanna við írabakka.
Hann skilur áhyggjur fólksins og
tekur undir með þeim að mörgu
leyti. „Við heyrðum fyrst af þessu
máli á mánudaginn," segir hann
um mál Sigurðar Jónssonar.
írabakki 6 Hér haföi dæmdur
barnaníðingur hreiðrað um sig.
„Nágrannamir höfðu þá samband
við okkur og lýstu áhyggjum sín-
um.“
Sigurður segir að Félagsþjónust-
an hefði átt að láta vita af stöðu
mála svo hægt hefði verið að finna
manninum annað heimifi. „Þetta
em mistök hjá Félagsþjónustunni.
Hún hefði átt að gera okkur kunn-
ugt um þessar tillmeigingar manns-
ins. Það fólk sem býr hjá okkur á að
búa við öryggi hvað þetta varðar."
Lítið um svör
Ragnar Þorsteinsson, forstöðu-
maður Félagsþjónustunnar í
Breiðholti sagðist ekkert þekkja til
málsins þegar DV innti hann eftir
svörum í gær. Hann sagði að stutt
væri síðan hann hefði hafið störf
hjá Félagsþjónustunni og þekkti
því ekki til verklagsreglna í tilfell-
um sem þessum. Ragnar vísaði á
Lám Björnsdóttir forstöðumann
Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar
en ekki náðist í hana í gær þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir. andri@dv.is
Dagur Hilmarsson vann mál gegn auglýsingastofunni Góðu fólki
Gott fólk greiði Degi Hilmarssyni rúmar tvær milljónir
„Ég skil ekld af hverju ég á að
skulda honum þessa peninga," segir
Gunnlaugur Þráinsson, fram-
kvæmdastjóri auglýsingastofunnar
Góðs fólks.
Gott fólk var í fyrradag dæmt til að
greiða Degi Hilmarssyni fýrrverandi
starfsmanni sínum rúmar tvær millj-
ónir með dráttarvöxtum. Dómarinn
fellst á kröfur Dags um að hann eigi
inni laun fýrir febrúarmánuð, krónur
500.000, auk hlunninda, orlofs-
greiðslna og annars samkvæmt
starfssamningi. Þá koma inn í þetta
kröfur Dags um að hann eigi inni
greiðslur fyrir fýrirtæki í sinni eigu,
auglýsingastofu þar sem Dagur starf-
aði á áður en hann hóf störf á Góðu
fólki. Stefnda er jafnframt gert að
greiða 900 þúsund í málskostnað.
Dagur var staddur úti í Lúxem-
borg þegar DV ræddi við hann. „Ég er
sáttur við dóminn. Leitaði réttar
míns í þeirri trú að réttlætið myndi
sigra að lokum."
Gott fólk kom með gagnstefnu og
krafðist þess að Dagur endurgreiddi
stofunni fyrirfram greidd laun og
hafnaði allir sök meðal annars á
þeirri forsendu að Dagur hefði orðið
uppvís að alvarlegu trúnaðarbroti. Á
þetta féllst dómurinn ekki.
DV Qallaði um málið fyrir rúmu
ári en þá var sagt frá því að þrír af lyk-
ilmönnum Góðs fólks, Sveinn L. Jó-
hannsson, Hjörvar Harðarson og
Dagur Hilmarsson hefðu sagt störf-
um sínum lausum og var viðskilnað-
urinn fremur hráslagalegur. Allir áttu
þeir þá að baki áralangan feril hjá
Góðu fólki. Var málið einkar nötur-
legt í ljósi þess að uppsögnin kom á
þeim sama tíma og Gott fólk fagnaði
á fmark-hátíðinni þar sem stofan
vann til verðlauna í sjö flokkum af tíu.
Gunnlaugur hafði áhyggjur af því
að Dagur og aðrir sem sögðu upp á
sama tfrna hefðu á brott með sér
mildlvæga viðskiptavini. Þær áhyggj-
ur reyndust á rökum reistar, meðal
annars flutti Sfrninn viðskipti sín í
kjölfarið til Nonna og Manna.
Samkæmt Dómabók gerði Dagur
ráð fyrir að vinna út uppsagnarfrest-
inn en Gunnlaugur gerði honum að
taka föggur sínar vegna meints trún-
aðarbrests.
jakob@dv.is
Tekist á um fast-
eignir í Bolungavík
Bæjarráð Bolungarvíkur hafn-
aði einu kauptilboði í húseign í
eigu bæjarins og vísað öðru til
umfjöllunar í húsnæðisnefnd.
Telur fulltrúi minnihlutans í bæj-
arstjórn að þegar tilboð berist í
húseignir bæjarins sé mikilvægt
að ná samningum vegna fjárhags-
stöðu bæjarins. Fulltrúar meiri-
hlutans telja að vegna breyttra
aðstæðna á fasteignamarkaði sé
nauðsynlegt að húsnæðisnefnd
geti fjallað um málið. Boðið hafi
verið í tvær húseiginir og var ann-
að boðið innan við 60% af verð-
mati fasteignasala. Engin dæmi
séu til um slíkt hlutfall.