Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2005, Blaðsíða 19
0V Sport
FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ2005 79
Úrvalslið fyrr umferðar Efri röð frá vinstri: Úlfar Hinriksson þjáifari, Hólmfríður Magnúsdóttir, Pála Marie Einarsdóttir, Þóra Helgadóttir, Greta
Mjöll Samúelsdóttir, Edda Garðasdóttir, Hrefna Jóhannesdóttir. Neðri röð frá vinstri: Erna Björk Sigurðardóttir, Ásta Árnadóttir, Laufey
Ólafsdóttir, Guðrún Sóley Gunnarsdóttir, Margrét Lára Viðardóttir. DV-mynd Páll
Úrvalslið fyrri umferðar Landsbankadeildar kvenna var til-
kynnt í gær. Fjórir leikmenn frá Breiðabliki og Val eru í lið-
inu en KR á tvo leikmenn og ÍBV einn.
Allt stefnir í einvígi í
milli Breiðabliks og Vals
Edda Garðarsdóttir var valin
besti leikmaður fyrri umferðar
Landsbankadeildar kvenna,
en veittar voru viðurkenningar
fyrir góða frammistöðu í fyrri
umferðinni á hádegisfundi í
Iðnó í gær. „Þetta kom mér
nokkuð á óvart, en það er alltaf
gaman að fá svona viðurkenn-
ingu. En það er mikið eftir af
mótinu, og vonandi tekst okk-
ur að halda okkur á toppnum
til enda.“
Úlfar Hinriksson, þjálfari Breiða-
bliks, var valinn besti þjálfari nm-
ferðarinnar en Breiðablik trónir nú á
toppi deildarinnar með fullt hús
stiga.
„Velgengni félagsins í sumar hef-
ur ekki komið mér á óvart. Það er
ffábær umgjörð í kringum kvenna-
boltann hjá Breiðablik og við höfum
að auki fengið stelpur til okkar sem
eru góðir knattspymumenn. Ungu
stelpumar hafa vaxið mikið sem
leikmenn frá því í fyrra, þannig að
framtíðin er björt hjá félaginu. En
mótið er bara hálfnað, og við verð-
um að halda áfram að standa okkur
vel.“
Margrét Lára Viðarsdóttir, fram-
heiji Vals, hefur spilað með liði sínu
en hún kom frá IBV fyrir leiktíðina.
Hún var vahn í úrvalslið fyrri um-
ferðar deildarkeppninnar og er vel
að því komin.
„Mér finnst mikill heiður að
komast í þetta lið því það hafa marg-
ar stelpur verið að standa sig vel i
sumar. Mér finnst þetta líka
skemmtilegt framtak, því þetta eyk-
ur umfjöllun um kvennaboltann
sem hefur verið af skomum
skammti að minu mati í sumar. En
„Veígengni félagsins í
sumar hefur ekki
komið mér á óvart.
Það er frábær um-
gjörð í kringum
kvennaboltann hjá
Breiðablik."
að vera valin í úrvalsliðið gefur
manni aukið sjálfstraust, sem von-
andi endurspeglast svo í góðri
frammistöðu á vellinum.
Einvígi
Breiðablik vann Val í fyrsta leik
íslandsmótsins, með fjómm mörk-
um gegn einu, en bæði lið hafa unn-
ið alla sína leiki eftir það. Margrét
Lára hefur fulla trúa á því að Valur
geti komist á toppinn. „Breiðablik er
með gott lið en það erum við Valsar-
ar líka. Þetta verður mikil spenna
fram á síðustu stundu. Ég held að lið
eins og KR, ÍBV og Keflavík eigi eftir
að stela stigum af öðm hvom liðinu
á toppnum, sem á eftir að setja
mikla spennu í mótið."
Fimm leikmenn í sérfiokki
Leikmenn úrvalshðsins koma frá
Breiðabliki, ÍBV, Val og KR. Fimm
stelpur í liðinu fengu fullt hús stiga í
kosningunni i hðið, en fjölmiðlar
landsins, ásamt Landsbankanum og
íslenskum getraunum, völdu leik-
menn í liðið. Þær vom Þóra Helga-
dóttir og Edda Garðarsdóttir frá
Breiðabliki, Margrét Lára Viðars-
dóttir og Laufey Ólafsdóttir hjá Val
og Hólmfríður Jónsdóttir ffá ÍBV.
Spennandi verður að fylgjast
með seinni umferðinni þar sem aht
getur gerst. FH, Keflavík og Stjarnan
hafa sótt í sig veðrið með hverjum
leik og má búast við því þau taki stig
af liðunum í efstu sætunum.
magnush@dv.is