Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2005, Síða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2005, Síða 31
OV Fréttir FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ2005 31 Alþingi endurreist Endurreist Al- þingi kom saman til síns fyrsta fundar í Reykjavík á þessum degi árið 1845. Al- þingi var stofnað 930 og starfaði samfleytt til 1800. Það var endurreist sem ráðgjafarþing árið 1843, en flutt til Reykjavíkur tveimur árum síðar. Alþingi hafði á þessum tíma ekkert formlegt vald en var konungi til ráðgjafar um löggjafar- málefni. Þingmenn voru 26 talsins, þar af tuttugu kjörnir en sex skipaðir af konungi. Endurreisn Alþingis var merkur . áfangi fyrir íslendinga. Þingið var mikilvægur vettvangur þjóðmála- umræðu og kom fram ýmsum end- urbótum á löggjöf og landsstjóm. Frá upphafi var Jón Sigurðsson, al- þingismaður ísfirðina, forystumað- ur þingsins og lengstum forseti þess meðan hans naut við. Það var einnig á þessum degi árið 1875 sem Alþingi kom fyrst saman sem löggjafarþing. Var það í sam- ræmi við nýja stjórnarskrá sem tekið hafði gildi ári fyn\ Alþingismönnum var fjölgað upp í 36, enn vom sex af þeim skipaðir af konungi. Á þessum tíma hafði Alþingi löggjafarvald í sérmálum íslands svo og skattlagn- ingar- og fjárveitingarvald. Konung- ur hafði þó synjunarvald sem hann beitti nokkmm sinnum. I dag árið 1928 var dauðarefs- ing numin úr lögum á ís- landi. Þá hafði henni ekki verið beitt siðan Friðrik Sigurðsson og Agnes Magnúsdóttir, sem myrtu Natan Ketilsson og Pétur Jónsson, voru tekin af lífi árið 1830. Allt frá endurreisn Alþingis árið 1845 og fram til 1879 kom Alþingi saman í Latínuskólanum (nú Menntaskólinn í Reykjavík), en frá árinu 1881 í Alþingishúsinu við Austurvöll sem þá var nýreist. llr bloggheimum Hætta að selja DV „Með þessu fordæmi er lceland Express að fara inná afar vafasama braut ritskoðunnar, með þvl að selja einungis efni, sem að eigendunum likar við, ekki efni sem fólkið vill kaupa. Þekkt dæmi um svipað athæfi frá útlöndum er til dæmis sú ritskoðun, sem Wal-Mart stendur fyrir á geisladiskum og annarri vöru í sinum búðum. Sú ritskoðun fer fram með nákvæmlega sömu formerkjum, það erað Wal-Mart þykist vera að gera það, sem að viöskiptavinirnir vilja. Sem er nátt- úrulega tómt bull... Ég vil til að mynda helst ekki aö Man U bolir séu til sölu i búð- um, en það myndi engum verslunum detta ihugað hætta að selja þær treyjur bara vegna þess að ég fæ sviða í augun þegar égsé þær treyjur innii versluninni. “ Einar Örn Einarsson „Gef oss i dag vor Antony... ...and the Johnsons. Því | þaöerósvofallegtónlist sem þetta fólk býr til. Nú er ég tilbúin til að frelsast. Gefa mig alla. Almáttugur ég flýt, ég svif. Ég er svo væmin og er svo hátt uppi. Annað eins hefur sjaldan siglt innf eyrun mín, niður í hjarta og svo allan líkama! Svona gerist ekki oft. Gerðist siöast þegar ég var í Háskólabíó þegar SigurRós spilaði sina tónlist... Þar hafíöþiðþað. Ég verð þessi sem tekst á loft á NASA 1 l.júlínk. Þetta er Diljá Ámundadóttirsem ritar þessi orð... daginn sem hún púðraði á sér ökklana til þess að þeir myndu sýnast smá brúnirí kvöldsólinni.“ Diljá Amundadóttir - dilja.blogspot.com Gamla fólkið vill sérrí „Núna í morgun sá ég um fréttalestur á fjórðu hæð- inni á Hrafnistu. Það var létt yfir öllum og allir virtust viö besta skap. En þá minntist ein konan sem hér býr á það að ég hafi aldrei boðið þeim í sérri siðan ég byrjaði að vinna og að það hefði nú stundum gerst að fyrirrennari minn hér hefði gert það. Ég beið ekki boðanna og stökk inn á skrif- stofuna mína þar sem ég geymi sérri og fleira góðgæti og skenkti þeim sem hlýddu á lesturinn eitt staup afsérrí. Þá glaðnaði enn frekaryfír fólki og allir eru hressir og kátir á Hrafnistu i dag.“ Stefán Einar Stefánsson - stefaneinar.com Lesendur DV eru hvattir til að senda okkur tölvupóst á netfangið ritstjorn@dv.is og láta í Ijós skoðanir sínar á málefnum líðandi stundar. Deilur í Garðasókn Sigurður Sigurðsson skrifar: Ég þakka DV fyrir umfjöllun um mál Hans Markúsar Hafsteinssonar. Um leið vil ég lýsa hneykslan minni á þeim sem sök eiga á því að fáni var dreginn að húni til að fagna því að prestinum hefði verið gert að fara. Hvemig dettur fólki í hug að nota fánastöng opinberrar byggingar á þennan hátt. Sjálfur hef ég því miður ekki getað fylgst með þeim deilum Lesendur sem hafa verið í gangi innan kirkjunn- ar þar í bæ og þekki því ekki alla fleti þessa máls. Aftur á móti hefur mér verið sagt að Hans hafi ávallt rétt út XiTí'r:, sáttahönd í þessu máii. Mér þykir miður að svona hafi farið og furða mig á að fullorðið fólk geti ekki náð sáttum eins og vera ber samkvæmt almennri kurteisi sem og því sem Biblían boðar. Þetta mál er fögrum bæ og því góða fólki sem hann byggir til skammar. Óheiðarlegir viðskiptahættir Steinunn í Grafarvogi skrifar: Ég las í gær frásögn konu sem lent hafði iila í óheiðarlegum við- skiptaháttum samborgara sinna. Mér þótti saga hennar afskaplega sorgleg og finnst undar- legt að fólk geti hugs- að sér að not- færa sér neyð ein- stæðrar móð- ur í fjár- hagskröggum sjálfu sér til gróða. Jón Einarsson Á bágt meö að skilja ákvöröun rikisendur- skoðanda. „Rendi'' og fjárlagahallinn Ein af fréttum vikunnar var sú hugmynd ríkisendurskoð- anda að launagreiðsiur þeirra stofnana sem færu yfir á fjárlög- um yrðu frystar. Þetta er harka- leg aðgerð og andstæð hug- myndinni um gagnkvæmni í skyldum launþega og atvinnu- rekanda. Þá stenst þetta ekki lög. Ákvæði stjómarskrár um vemd eignarréttinda vemdar fólk gegn Flengjum háu herra Alþingis Aðalsteinn Jónsson, 44 ára, véla- maður hringdi: Nú ætlar ríkisstjórnin að gefa Símann eins og hún gaf Búnaðar- bankann og Landsbankann. Mér blöskrar og maður skilur ekki af Lesendur hveiju stjórnarandstaðan krefst þess ekki að ríkisstjómin segi af sér og þessir menn verði dregnir fyrir dóm. Þetta er nefnilega bara þjófnaður. Það er ver- ið að stela úr okkar vasa og gefa hvít- flibbum milljarðafýrirtæki. Ef ég tek sem dæmi Landsbank- ann. Hann var gefinn. Maður spyr sig nánast hvar þetta eigi að enda. Á fólk að þurfa að fara niður í bæ og skjóta þessa vitleysinga sem stjórna þessu landi. Ég laefst þess einfald- lega að 63 gapastokkar verði settir upp og við fáum að flengja þessa háu herra á Alþingi. Réttast væri að svipta þá öllum sínum eigum og setja þá í þrælkunarvinnu. Það virðast nefnilega aðrar reglur gilda um okkur almenning en þá sem best eru settir í samfélag- inu. Ef við drögum greiðslu eða veikjumst eða lendum á sjúkrahúsi . er allt tekið af okkur. En hvað er gert við þessa kalla. Em alþing- ismenn ofar öll- um öðmm og ofar öllum lögum í landinu. Það væri gaman að spyrja þjóðina að því. Staðreyndin er nefnilega sú að þessir menn em að gefa almenn- ingseignir í hendur örfárra aðila og við borgum fyrir það. Þjóðin á þessu fyrirtæki ekki bara hinir háu herrar á Álþingi. Myndabrengl varð í frétt á blað- síðu 6 í DV í gær. Þar var^V®"^ Hörður Zophaní- ^ asson rang- lega nefndur Þór Gunn- arsson og Árni Grétar Finnsson rangnefndur Hörður Zophaníasson. Einnig var sagt að Valgerður Guðmundsdótt- Haldið til haqa ir væri bæjarfulltrúi. Hið rétta er að hún er menningarfulltrúi í Reykjanesbæ. Lesendur em beðn- ir velvirðingar á þessu. DV igær því að vinna kauplaust. Þó svo lögreglu og slökkviliði sé heimilt að kalla almenning til björgun- ar- eða löggæslustarfa við alveg sérstakar aðstæður, þá er al- menna reglan sú að þegnskyldu- vinna er ólögleg. Ríkisendur- skoðandi hefur vafalaust skellt þessari hugmynd fram í umræð- una í góðum hug. Reynt að fá fólk til að velta vöngum yfir hvemig eigi að „tækla" fjárlaga- hallann. En það að frysta laun fólks vegna þess að stofiiunin sem það vinnur hjá fer yfir á fjár- lögum er ekki rétta svarið. En ég vil spyrja að einu. Hvers vegna em einu hugmynd- irnar í umræðunni komnar frá ríkisendurskoðanda? Hug- myndavinna af þessu tagi er ekki hluti af starfsskyldum hans. Hvað með Alþingi óg íjármála- ráðuneytið? Hvar er fagráðherr- ann, Geir H. Haarde? Finnst engum nema mér það skrítið að þaðan kemur engin hugmynd um lausn þessa vanda? Ætla að reyna að hitta Snoop baksviðs „Ég bjóst aldrei við því að hann myndi koma til lands- ins. Hvað þá að við fengjum að hita upp,“ segir Baldvin Þór Magnússon, Baddi. Hann er einn af forsprökkum hljómsveitarinnar Forgotten Lores, sem hitar upp fyrir Snoop Dogg á tónleikum hans í Egilshöll. „Fyrsta platan hans, Doggystyle, er ein af uppá- haldsplötunum mínum. Ég var alltaf mikill aðdáandi. Svo hef ég heyrt nýju plötuna hjá litla bróður mínum, Sigga. Snoop er ekki jafn harður í gangsternum og hann var. Alltaf svalur samt," segir Baddi. Hann vonast að sjálf- sögðu til að hitta Snoop. „Það væri frábært að hitta hann baksviðs. Ég veit ekkert hvað ég myndi segja við hann. Reyni kannski að fá eiginhandaráritun fyrir litla bróður. Og taka mynd," segir Baddi. Hann segist ekki ætla að reyna að vera með ein- hverja stæla. Gefa Snoop kjúklingabita eða segjast geta reddað honum grasi. „Nei, nei. Ekkert svoleiðis rugl. Bara slá fimmu og brosa framan í myndavél." Forgotten Lores koma fram ásamt hljóðfæraleikur- um í Egilshöll. Baddi hefur engar áhyggjur af því að spila á stóru sviði hallarinnar fyrir þann mikla fjölda, sem verð- ur væntanlega á tónleikun- um. „Fimm, sex, sjö þúsund manns. Það verður ekkert mál. Þetta eru stærstu tón- leikar sem við höfum spilað á og við erum allir mjög „Þaö væri frábært að hitta hann bak- sviðs. Ég veit ekkért hvað ég myndi segja við hann. Reyni kannski að fá eiginhandaráritun fyrirlitla bróður. Og taka mynd," spenntir. Ég hvet alla til að mæta snemma til að ná upp- hitunarböndunum og skemmta sér vel.“ Baddi vinnur á leikskóla í Hlíðunum. í vetur hefur hljómsveitin hans ekki verið mjög virk, enda tvístruðust meðlimir hennar út um Evrópu. Þessa dagana rotta þeir sig hins- vegar saman til að huga að nýrri plötu. „Við erum ný- byrjaðir að semja. Platan kemur vonandi fýrir áramót en það er óvíst hvernig það verður." I gaer var tilkynnt að Forgotten Lores yrði em af uPPhitunalfy hljómsveitunum fyrir tónleika rappgoösins SnoopDoggl Egils- höll 17. júlí. Baldur er einn af forsprokkum sveitarmnar, sem talin ein af kyndilberum íslenska rappslns. Auk hennar hita Hjálmar og Hæsta hendin upp.Talið er að á bilinu fimm til sjo þúsund manns fari á tónleikana.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.