Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2005, Side 35
HADEGISBIO
400 kr. MIÐAVERÐ Á ALLAR MYNDIR kl: 12 SUNNUDAG í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI SI«SI* KVtKMYNDAHÚS UNOSINS • HAGATOKOI • 15301*1» • wwwfcoriootahfc
KEFLAVIK
WAR OF THE WORLDS
BATMAN BEGINS
INSIDE DEEP THROAT
VOKSNE MENNESKER
CRASH
IO-Uj<ÆI.I4óro
■9-11 B.1.12 ám
10.15 B.I. lidra
WAR OF THE WORLDS KL 5.30-8-10.30
BATMAN BEGINS KL 5.30-8-10.30
BATMAN BEGINS KL. 3.30-5
HOUSE OF VAX
THE WEDDING DATE
THE ICE PRINCESS
HITCHHIKER'S GUIDE TO THE GALAXY
SVAMPUR SVEINSSON fsl. tal
WAR OF THE WORLDS KL. 3.20-5.40-8-10.30 B.1.14
WAR OF THE WORLDS KL 3.20-5.40-8-10.30
BATMAN BEGINS KL 3.30-4.30-5-6.30-7.30-8
9.30-10-10.50
ALOTLIKELOVE KL 6-8.15-10.30
SVAMPUR SVEINSSON ísl. tol KL 4
KL 5.45-8-10.15 B.l.l6óro
BATMAN BEGINS KL 5.30-8-10.30
KICKING & SCREAMING KL 6-8
CRASH KL10
CHRISTIAN MICHAEL 4
BALE CAINE N
MORGAN
FREEMAN
NTR OG AtlKLU EITRf.
UEOUCItfiTífMAÐUP.
MBL. HILDlR LOrtSBOlJl
LO.1 KyÍKOTHDÍb
BLAOIO
KVIKMYNDIR.
jsfíamlkfi ÓKBINS
‘AJ* M P* iVTM H1 «»
■GtEVMDU HINUr.1, ÞCTTA
AtVÖRU BATMAN
U.U.H DV
INNRASIN ER HAFIN!
POWERSYNING KL. 10.30 I ALFABAKKA
BATMAN, EINS OG Þ>U HEFUR ALDREI SÉÐ HANN ÁÐUR!
AKUREYRI ( 461 4666
War of the Worlds
Sýnd i Laugarásbíói, Smárabíói,
Háskólabíói og Sambióunum.
Leikstjóri: Steven Spielberg
Aðalhlutverk: Tom
Cruise, Dakota Fann- .,
ing, Tim Robbins, ,' JfejpE
Justin Chatwin.
★★★☆
KRII8IIKROPPUM DflNSI
Ég verð að segja að ég hafði ekki
gífurlegar væntingar þegar ég heyrði
af því að Steven Spielberg og Tom
Cruise ætluðu að kvikmynda söguna
um innrásina frá Mars upp á nýtt.
Það dró enn meira úr spenningnum
þegar ég komst að því að sagan átti
að eiga sér stað í nútímanum en ekki
á Viktoríutímabilinu eins og í bók-
inni og í söngleiknum sem flestir
ættu nú að kannast við.
Þegar ég sá svo hvernig sagan var
sett upp læddist að mér sá grunur að
Spielberg væri þama að laga þau
yfirlýstu „mistök'1 sín þegar hann lét
persónu Richards Dreyfuss fara frá
fjölskyldu sinni í Close Encounters
of the Third Kind. Spielberg finnst
nefnilega alveg óhugsandi að láta
persónu yfirgefa íjölskyidu sína,
sama hverjar aðstæður eru, og finnst
að allar persónur eigi að haga sér
eins og hann sjálfur ímyndar sér að
hann myndi gera ef hann lenti í ein-
hverju álíka. Spielberg er orðinn al-
gjör aumingi, hættur að taka áhættu
eins og hann gerði áður og hættur
að skapa skemmtilegar persónur.
Þess vegna hef ég ekki haft gaman af
neinum myndum hans sem hafa
komið síðustu ár.
Allt snýst um Cruise
En viti menn, War of the Worlds er
ömgglega það besta sem hann hefur
gert lengi. Þar sannar hann að hann
hefur ennþá lag á að gera spennandi
og ótrúlega flott atriði. Hann sýnir
takta sem hann sýndi snemma á ferl-
inum þegar hann festi sig í sessi sem
hrollvekju- og fantasíuleikstjóri og er
með furðu mikla myndavélastæla í
þessari mynd sem er frekar ólíkt hon-
um. En... Hann sýnir líka að hann
getur auðveldlega klúðrað góðum
efnivið með væmni og Ula skrifuðum
klisjum.
Það hefur margoft sannað sig í
kvikmyndum að þegar samband við
ástvini er að fjara út þarf yfirleitt
bara hamfarir, morð, hryðjuverka-
árás eða heila innrás úr geimnum tU
að kveikja blossann á ný. Tom
Cruise er svo heppinn að það ræðst
her utan úr geimnum á jörðina
einmitt þegar bömin hans hafa ekk-
ert álit á honum og konan hans er
komin með nýjan mann. Það er
nefnUega svo tUvalið að fara í smá
sjálfsskoðun og tengjast ættingjum
sterkari böndum þegar maður er á
flótta undan geimverum. Sagan
snýst bara um persónu Cruise og
börn hans og fátt annað skiptir
nokkru máli. Það er þessi ofur-
áhersla á Cruise og engan annan
sem dregur myndina niður í seinni
hlutanum.
Seinni hlutinn slakur
Sagan er í grófum dráttum lík
bókinni. Handritshöfundum tekst
að koma með trúverðuga skýringu á
því af hverju geimverunum tekst
ætlunarverk sitt þegar við erum
svona tæknivædd og notast við
myndmál 9/11 til að gera hlutina
raunverulegri. Reyndar er undir-
búningur árásarinnar frekar ótrú-
verðugur ef persóna Tims Robbins
hefur rétt fyrir sér og gerir endann
ekki eins góðan og hann hefði orðið.
Fyrri hluti myndarinnar er stór-
kostlegur, ótrúlega spennandi og of-
boðslega vel upp byggður. Þegar
börnin hans Cruise hætta ekki að
þjást af gelgju og unglingaveiki þrátt
fyrir hamfarirnar og hitta persónu
Tims Robbins fer myndin að missa
sig í væmnishjali og klisju. Sápuóp-
erutaktarnir fara á fulla fart og
myndin endar á frekar ótrúverðug-
an hátt.
En fýrri hluti myndarinnar lifir
svo vel í manni að maður lætur
eiginlega slakan seinni part ffam-
hjá sér fara en þó ekki alveg. Það
er alveg sama hversu mörgum
sprengingum er dinglað framan
í mann, maður finnur alltaf
skítalykt af svona sápu.
Ekta stórslysamynd
Ég mun aldrei kaupa
Tom Cruise sem iðnaðar-
mann, hvað þá fráskilinn
iðnaðarmann sem á ekki
aur og kann ekki að ala upp
börn. Hann er hreinlega of
mikil stjarna og of ríkur. Hann er
samt alveg ágætur í þessu hlutverki,
Fyrri hluti myndar-
innar er stórkostleg-
ur, ótrúlega spenn-
andi og ofboðslega
vel upp byggður.
Warofthe Worlds
Dakota Fanning og Tom
Cruise eru þungamiðja
myndarinnar.
hvorki betri né verri en áður en
maður sér hann bara alltaf sem Tom
Cruise í vanda en ekki Ray
Rerrier, verkamann
í vanda.
Dakota
Fanning hef-
ur fyrir löngu
sýnt að hún
er stórkostleg j
leikkona en m ' jr.
hún þjáist
samt af því að ty • /»J
vera of gáfuð og \
klár og að haga
sér eins og hún sé
nánast þrjátíu
árum eldri
en hún
er f é'W
þeim hlutverkum sem hún tekur að
sér. Getur hún aldrei leikið bara
venjulegan krakka sem hagar
sér sem slíkur? Það mæð-
ir mest á þessum
tveimur og allir aðrir
eru settir í baksætið
á meðan þau keyra.
Það hrjáir myndina
svolítið því mann
langar að fylgjast
með fleiri persón-
um en þeim
tveimur.
Brellurnar
eru frábærar og
hljóðið er sér-
staklega sterkt
og gefur geim-
verunum miklu
meira vald og
mátt en maður hef-
ur áður séð. Þetta er
ekta stórslysamynd og
mjög góð afþreying
sem missir sig undir
lokin en fyrri hluti
hennar er þess virði að
sitja undir.
Ómar öm Hauksson
V