Freyr

Árgangur

Freyr - 01.07.1950, Blaðsíða 5

Freyr - 01.07.1950, Blaðsíða 5
FÉLAGSTÍÐINDI STÉTTARSAMBANDS BÆNDA Opið bréf íil bænda » Bréf það, er hér fer á eftir, hefir Páll Zóphóníasson, ráðunautur, sent öllum formönnum nautgriparœktarfélaganna, en þar sem ritstjórn Freys hefir litið svo á, að það eigi erindi til allra þeirra, er búskap stunda, hefir hún fengið leyfi til að birta það. Ritstj. Herra formaður. Kæri vin. Vegna hins breytta viðhorfs, sem skapast hefir vegna vaxandi gjaldeyrisvandræða og breytts gengis á peningum okkar, finn ég ástæðu til að skrifa formönnum nautgripa- ræktarfélaganna og benda þeim á, hver á- hrif þetta hefir á mjólkurframleiðsluna. Rétt teldi ég að félagsmenn fengju að heyra efni bréfsins upplesið á fundi. Undanfarin verðbólguár hafa allar er- lendar vörur verið seldar lægra verði hér á landi, en eðlilegt hefði verið og stafar það af röngu gengi. Mismunurinn hefir verið greiddur af ríkissjóði í ýmsum myndum, og að því leyti, sem það hefir ekki verið gert hefir hann orðið að skuldum hjá ríkinu eða útflytjendum. Nú er þessu hætt, erlendar vörur stór hækka í verði, og fóðurbætir, sem hér skipt- ir máli, mun allt að því tvöfaldast í verði og má búast við, að ekki verði hægt að flytja hann til landsins að hausti og vetri, en verði það mögulegt þá verður hann mjög dýr. Hið ranga gengi og lága verð- lag, sem búið er að viðhalda árum saman, skapaði þá eftirspurn eftir erlendum vör- um í ýmsum myndum, að sá varasjóður, L

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.