Freyr

Árgangur

Freyr - 01.07.1950, Blaðsíða 17

Freyr - 01.07.1950, Blaðsíða 17
FRE YR 183 stéttarmálefni sín og önnur áhugamál, að þeir hafa yfirleitt verið andvígir gengis- lækkunarleiðinni til úrlausnar á verðlags- öngþveiti þjóðarinanr. Má og færa til þess nokkur rök, að verðhjöðnunarleiðin hefði að m. k. í bráðina orðið þeim öllu hentari, en í meginatriðum falla þó áhrif þessara tveggja úrræða alveg saman, ef ná ætti sambærilegum árangri með hvora fyrir sig. ★ Nú hafa hagfræðilega menntaðir menn, bæði þeir, sem sérstaklega voru til þess kvaddir að gera álitsgerð og tillögur til úr- bóta í þessum málum, og aðrir hérlendir, virzt verða sammála um það, þrátt fyrir á- greining um önnur mikilsverð atriði, sem mál þetta snerta, að eins og áhrif verð- bólgunnar væri orðin gagngerð og víðtæk hér, væri ekki nema ein leið fær út úr verðlagsöngþveitinu: þ. e. gengislœkkun. Hefir nú meirihluti Alþingis fallist á þetta sjónarmið og staðfest það með lagasetn- ingu um breytta gengisskráningu o. fl. Má reyndar, út af fyrir sig, fagna því, að ekki var lengur tvístigið á aðgerðum í málinu, hvort sem menn fella sig að öllu við aðal- úrræði í því, eða telja hliðarráðstafanir heppilegar eða fullnægjandi til varanlegs árangurs eða ekki. Er það trúa mín, að bændastétt landsins muni, jafnvel öðrum fremur, sýna þegnskap gagnvart þeim að- gerðum, sem verður að gera, svo fremi að treysta megi röggsamri og réttlátri fram- kvæmd þeirra, jafnvel þó önnur úrræði hefði verið henni hagkvæmari frá þröngu stéttarsjónarmiði. Má og vera, að þau úr- ræði, sem virzt gátu bændastéttinni hag- felldust í bráð, yrði það ekki í lengd, ef þau þyngdi að kjörum og kaupgetu ann- arra stétta í landinu, sem hún þarf að hafa viðskipti við, og á mest undir að skapi afurðum landbúnaðarins greiðan og nær- tækan markað. ★ í álitsgerð þeirra tveggja hagfræðinga, sem fyrrv. ríkisstjórn kvaddi til þess að gera tillögur í þessu máli, er því haldið all eindregið fram, að gengislækkun, ásamt afnámi verðlagseftirlits og því nær allra viðskiptahafta, geti, jafnvel í einu vet- fangi, leyst alla hnúta, sem riðnir eru á fjármála- og viðskiptaþræði þjóðarinnar, þannig, að enga teljandi kjaraskerðingu leiði af þeim aðgerðum, eða byrðar, sem jafna þurfi niður. Án þess að á nokkurn hátt sé haldið uppi vörn fyrir haftastefnu undanfarinna ára, eða framkvæmd hennar, verður naumast lagður trúnaður á þá kenningu, að lagfæring á verðlags- og við- skiptaöngþveiti þjóðarinnar kosti engar fórnir, né kjaraskerðingu. Gegn því stend- ur fyrst og fremst sú staðreynd að lífskjör þjóðarinnar undanfarið hafa myndast og mótast af því, að meiru var eytt en aflað var, og þannig sköpuð fjárráð, sem ekki er að vænta að leggist til í framtíðinni, þar sem innstæður stríðsáranna eru upp- gengnar, og láns- og styrktarfé einnig gengið til þurrðar, og stendur naumast til boða aftur. Þó verulegur hluti þessa eydda fjármagns hafi orðið til að skapa varanleg verðmæti, þá gekk þó nokkur hluti þess til daglegrar eyðslu, og því veldur það bæði beinni og óbeinni kjaraskerðingu að þurfa að hverfa frá slíkri verðmætasköpun (fjár- festingu) og miða lífskröfurnar einungis við það, sem þjóðin getur aflað árlega, þó með stórlega bættum gögnum sé, bæði til lands og sjávar. Með hliðsjón af því, sem nú var sagt, verður það að teljast alltof mikil bjartsýni og nálgist jafnvel léttúð, að halda því að þjóðinni að viðskiptaólagið verði lagfært án þess af leiði tilfinnanlegar byrðar og kjaraskerðingu, fyrst um sinn. Fyrirfram er ástæðulaust að ætla að bændastéttin, og það fólk, sem bundið hefir framtíð sína við landbúnaðinn, muni mögla yfir því að taka á sínar herðar tiltölulegan hluta þeirra afleiðinga. Samkvæmt hlutarins eðli er hvorki hægt að mæla né vega þá þátttöku fyrir. Ei að síður er ástæða til, nú, þegar löggjöfin um þetta efni liggur fyrir, að virða fyrri sér í hverju og á hvern hátt framkvæmd hennar muni koma fram á hendur bændastétt landsins, og öðru því fólki, sem landbúnað stundar. Jafnframt,

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.