Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2005, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2005, Side 4
4 MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST2005 Fréttir 0V Harður árekstur í Hafnarfirði Harður árekstur varð á Strandgötu £ Hafnarfirði síðdegis í gær. Samkvæmt upplýsingum frá Lögregl- unni í Hafnarfirði slasaðist enginn en fólksbíll og lítill jeppi lentu saman. Báðir bflamir em taldir ónýtir og vom dregnir í burtu með krana. Strætóbiðskýli í göt- unni skemmdist einnig þegar annar bflanna kastaðist á það við árekst- urinn. Nýrfrétta- miðill á Akureyri Nýr netfr éttamiðiil var nýlega tekinn í gagnið á Ak- ureyri þegar heimasíðan Ak- ureyri.net var opnuð. Á síð- unni verða fréttir fyrir Norð- lendinga á öllum aldri auk umfjallana um íþróttir, menningu, skemmtanalíf og fleira. Ritstjóri vefjarins er Helgi Már Barðason en Pedromyndir ehf. er eig- andi. Nú hafa Norðlending- ar um þrjá netmiðla að velja en netmiðlamir Aksjon.is og Dagur.net em einnig til staðar fyrir norðan. Fangelsið á Akureyri stækkað Samþykkt hefur verið að stækka fangelsið á Akureyri og hafa teikningar nú verið kynntar í umhverfisráði. í dag samanstendur fangels- ið af átta klefum en sjö þeirra eru afar litlir. Tveir klefar eru til viðbótar sem einkum em hugsaðir fýrir gæsluvarðhaldsfanga. Sam- kvæmt teikningu munu tíu rúmgóðir klefar verða í fangelsinu en auk þess mun ný heimsóknarað- staða líta dagsins ljós. Mikiö hefur gengið á hjá embætti tollstjórans í Reykjavík. í byrjun sumars úr- skurðaði Persónuvernd að Tollstjórinn hefði rofið friðhelgi einkalífs starfsmanns. Kjaradeilur hafa valdið því að átta lögræðingar innan sömu deildar hafa sagt upp á aðeins átján mánuðum. Jafnframt er enn kurr meðal starfsmanna um ráðningu Guðrúnar Hólmsteinsdóttur sem forstjóra innheimtusviðs. Starfsemi llstjópans í Revkjavík í lamasessi Mikill vandræðagangur hefur verið á tollstjóraembættinu í Reykjavík að undanförnu. Snorri Olsen, tollstjóri í Reykjavík, neitar því þó að eitthvað óeðlilegt sé í gangi. Hann segir átta uppsagnir lög- fræðinga á innheimtusviðinu á aðeins átján mánuðum eiga sér eðlilegar skýringar. Kjara- deilur munu þó hafa verið raunverulega ástæðan því taxtinn í útifjárnámi, óvin- sælasta starfinu innan emb- ættisins, var lækkaður. Átta lögfræðingar hafa sagt upp störfum hjá innheimtusviði Toll- stjórans í Reykjavík á sfðustu átján mánuðum. Snorri Olsen, tollstjóri í Reykjavík, neitar því þó að starfs- menn séu óánægðir, flestir hafi látið af störfum af eðlilegum orsökum. Heimildir DV hjá tollstjóranum herma þó annað. Átta hættir á átján mánuðum Að sögn heimildarmanna DV komu upp deilur milli starfsmanna á innheimtusviðinu og yfirmanna um kjaramál. Starfsmenn áttu erfitt með að sætta sig við að taxtinn í útifjár- námun hefði verið skertur. Útifjár- nám er þegar starfsmenn banka uppá heima hjá fólki sem skuldar. Það munu vera mjög óvinsæl verk- efni og fannst starfsmönnum því fá- ránlegt að lækka taxtann þar. í ofanálag komu upp ýmiss konar smáatriði sem mögnuðust upp vegna kjaradeilunnar. í kjölfar upp- sagnar átta lögfræðinga hjá sviðinu er niðurstaðan minni skilvirkni í innheimtu gjalda. Það er ekki eingöngu á inn- heimtusviðinu sem er skortur á lög- fræðingum því á tollheimtusviði starfa undir eðlilegum kringum- Eðlilegar skýríngar Snorri Olsen tollstjóri í Reykjavlk segir málin eig sér eðlilegar skýringar. Fyrrverandi starfsmenn hafna þvi hins vegar. stæðum fjórir lögfræðingar. Aðeins einn lögfræðingur er við störf þar um þessar mundir. Milljarðar fara í gegnum deildina á hverju ári. Umdeild ráðning Það var ekki til að bæta andrúms- loftið á innheimtusviðinu að mikill kurr var og er enn á meðal starfs- manna vegna ráðningar Guðrúnar Hólmsteinsdóttur í starf forstöðu- manns innheimtusviðs. Guðrún hefur gegnt starfinu í tæplega eitt og hálft ár. Þegar hún sótti um var Tryggvi Axelsson, núverandi for- stöðumaður Neytendastofu, einnig meðal umsækjenda. Guðrún og Tryggvi eru bæði með MBA-próf í lögfræði en þar að auki er Tryggvi héraðsdómslögmaður og með stjómunarréttindi og því hæfari í starfið að mati margra starfsmanna. Stirt á nrailli tollsins og fíknó Þrír reynslumestu mennirnir á sviði ffkniefnamála hjá Tollgæsl- unni hafa allir verið færðir til í starfi. Starfsmenn fullyrða að samskipti Tollgæslunnar og fíkni- efnalögreglunnar séu nú orðin lít- il sem engin. í viðtali við RÚV þann 6. ágúst hafnaði Snorri Olsen þessari stað- hæfingu og sagði að aðeins væri um tímabundið vandamál að ræða. Örðugleikar hefðu skapast vegna tilflutninga manna í starfi. Snorri vildi ekki fara nánar út í ástæðu þessara tilfærslna. Persónunjósnir í nóvember á síðasta ári var Rósa Lind Björnsdóttir, starfsmaður á innheimtusviði, neydd til að undir- Mlldð gengur á Það hefur mikið genqið á hjá Tollstjáranum í Reykjavík. Átta lög- I fræðingar hættir og neikvæður dómur [ Persónuverndar koma þar við sögu. rita uppsagnarbréf en hún hafð unnið hjá embættinu í sex ár. starfsviðtali í nóvember í fyrra va Rósa látin undirrita yfirlýsingu þes: efnis að hún heimilaði tollstjóra ai afla upplýsinga úr málaskrá lög reglunnar um hana. Hún taldi hin: vegar að verið væri að biðja un upplýsingar úr sakaskrá. Naft hennar var hins vegar að finna ; málaskránni vegna rannsóknar ; sambýlismanni hennar. Persónuvemd úrkurðaði þani 26. maí að Tollstjóranum í Reykjavfl hefði verið óheimilt að afla þessar; upplýsinga á grundvelli friðhelg einkalífsins. Lengri og ánægðari! Svarthöfði hefur aldrei verið á móti lýtaaðgerðum. Það er einhver gamall stóðhestur í honum sem gjóir augum á sjónvarpið þegar dömur með sneisafull brjóst af sflikoni hrista sig til. Þó er honum slétt sama þó konur hafi barminn sem móðir náttúra gaf þeim, ef þær hafa gott hjartalag og kunna að baka pönnsur. Svarthöfði er þó sérstaklega fylgjandi aðgerðum þegar fólk á erfitt með falla inn í fjöldann út af sérkennum sínum. Meðfæddum sérkennum. Árdís Hulda Henriksen er ein þeirra sem hefur átt erfitt c> Svarthöföi með að falla inn í fjöldann útaf hæðarskorti. Hún sagði í Helgar- blaði DV að henni þætti sárt þegar fólk glápti á hana og hefur í hyggju að breyta því. Hún ætlar að láta lengja sig. Það þykir Svarthöfða virðingarvert. Kjörkuð kona sem tekur af skarið. Kærastinn hennar er líka í skýjunum með lengingu sinnar heittelskuðu. Þó hún bendi kankvís á að hún ætli ekki að ná honum í stærð. Satt að segja þekkir Svarthöfði þjáningar Árdísar Huldu að ein- hverju leyti. Svarthöfði hefur nefni- lega oft þótt fullstuttur í annan endann, dansandi kringum dverga- mörk. Hann hefði eflaust lent í ein- elti hér á árum áður ef hann hefði ekki kunnað að slá allhressilega frá sér. Seinni ár hefur Svarthöfði þó stækkað ört, en ekki á lóðrétta veginn. Svarthöfði minnist þess þegar dvergurinn Helgi lét lengja sig í Arabalöndum. Þá læddist viss öf- und að Svarthöfða, Helgi þorði að láta verða af því sem Svarthöfði hafði íhugað um árabil. Nú hefur Árdís Hulda einnig tekið af skarið. Eftir situr Svarthöfði, smár en síkát- ur. Árdís Hulda hefur nú látið lengja sig um 9 sentimetra og er enn að. Til hamingju! Svarthöföi Hvernig hefur þu þaö? „Ég hefþað afar gott," segir Hanna Birna Krístjánsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðis- flokks en hún gefur kost á sér iannað sætið á framboðslista flokksins Iprófkjöri fyrir borgarstjórnarkosningar.„Helgin hefur verið afar ánægjuleg og að stórum hluti farið í að taka á móti góðum kveðjum og stuðningi vegna ákvörðunar minnar um aö gefa kostámérí annað sætið fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. “

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.