Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2005, Qupperneq 6
6 MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST2005
Fréttir 33V
Unglinga-
drykkja á Sól-
seturshátíð
Sólseturshátíð var hald-
in á Skagabraut í Garði um
helgina. Lög-
regla þurfti að
hafa afskipti af
ungmennum
vegna aldurs
og áfengisneyslu eftir því
sem greint er frá á vef Vík-
urfrétta. Þar er einnig
greint frá því að til ein-
hverra pústra hafi komið á
hátíðinni og var ungur
maður fluttur á Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja með
áverka í andliti.
Missti tennur
á Dönskum
dögum
Maður missti þijár tenn-
ur í slagsmálum á bryggjub-
alli á Dönsk-
umdögumá
laugardags-
kvöld. Ballið
fór fram í feij-
unni Baldri.
Nokkur ölvun
var á ballinu. Kvöldið áður
voru þrír handteknir og
einn þeirra veitti verulegan
mótþróa við handtöku að
sögn lögreglu. Að öðru leyti
fór hátíðin nokkuð vel fram
að mati lögreglu, nokkur er-
ill var en þó ekkert alvarlegt.
Lögreglan hafði töluverðan
viðbúnað um helgina og
fékk meðal annars fikni-
efnahund á staðinn. Hund-
urinn fann þó ekkert dóp á
hátíðargestum.
JónÁsgeir
sekureða
saklaus?
Snorri Ásmundsson
myndlistarmaöur
„Mér er bara alveg sama. Ég
spái ekkert í því. Mér finnst
gaman að honum. Hann er
náttúrulega harðsvíraður
kaupsýslumaður og hann er í
þessari stöðu vegna þess.
Hann er heldur ekki að leika
neitt annað. Ekki að gefa gjafir
og láta taka myndir afsér eins
og aðrir. Hann er einfaldlega
harðsvíraður kaupsýslumaður
og gefur sig út fyrir það. Hvað
hanner að gera I bókhaldinu
veit ég ekki."
Hann segir / Hún segir
„Saklaus þangaö til sekt er
sönnuð. Ég hefekki fylgstmik-
ið með þessu en nógu mikið til
að vera akkúrat á þessari
skoðun. Maður veit ekkert
hverju maður á að trúa. Hann
er umdeildur maður og fólk er
að slúðra um allan bæ. Ég
held að þaö sé best að hlusta
ekkert á það. Þetta er svona
skólabókardæmi um að mað-
ur er saklaus þar til sekt er
sönnuð."
Unnur María Bergsveinsdóttir
tónlistarmaður
Þórhallur Einarsson sakar lögfræðing á Akuryri að hafa misnotað aðstöðu sína.
Þórhallur og sambýliskona hans höfðu átt við erfiðleika að stríða en sambandi
þeirra er lokið í dag eftir að lögfræðingur konunnar svaf hjá henni.
ÉwH
Ósáttur Þórhallur'er sár og hneykslaöur
og veltir fyrir sér hvort fleiri dæmi séu um
aö fagaðilar notfæri sér aðstöðu slna á
þennan hátt til að svala fýsnum sínum.
Misnotafii aðstöfio sína
on svnf iiiá konunni minni
„Ég geri ráð fyrir að sambandi okkar sé lokið enda ætia ég að
flytja á Selfoss," segir Þórhallur Einarsson á Akureyri. Þórhallur
og sambýliskona hans til margra ára höfðu átt við hjónabands-
vandamál að stríða og leituðu sér í kjölfarið hjálpar hjónabands-
ráðgjafa.
í framhaldinu leitaði konan að-
stoðar lögfræðings vegna fjárhags-
vandræða en Þórhallur segir lög-
fræðinginn hafa heldur betur mis-
notað aðstöðu sína og sofið hjá
henni eftir að hafa hitt hana á
skemmtistað í bænum.
Elskaði konuna
„Þetta var náttúrulega eins og
kjaftshögg," segir Þórhallur, sem er
verulega ósáttur og hneykslaður á
hegðan lögfræðingsins sem hann
vill ekki nefna á nafn eins og stend-
ur. „Hann misnotaði gróflega að-
stöðu sína og fann alla þá veikleika
sem fyrir hendi voru til að svala
fýsnum sínum. Mér leið hrikalega
þegar ég frétti þetta. Ekki síst þar
sem ég elskaði konuna og börnin
hennar og vildi reyna allt til að laga
sambandið."
Reyndu báðir við hana
Þórhallur segist vita til þess að
sálfræðingurinn, sem hafði verið
með þau í hjónabandsráðgjöfinni,
hafði einnig verið á skemmtistaðn-
„Það sorgtega er að
alltafþegar svona
málkomauppþá
bitna þau á saklausu
fótki þvi þessi maður
á fjolskyldu."
um umrætt kvöld. „Ég frétti að þeir
hefðu báðir verið að reyna við hana
en lögfræðingurinn fór með hana
heim. Ég veit ekki hvort þetta var
planað eða hvort þeir þekkjast en
þetta er alveg jafn ósiðlegt fyrir því.
Allavega er eitthvað misjafnt á ferð-
inni sem ekki er hægt að sætta sig
við því þó ég geri mér alveg grein
fyrir að það slitni upp úr sambönd-
um fólks er óþarfi að utanaðkom-
andi aðilar, sem eiga að heita fagað-
ilar, hjálpi til við það á þennan hátt.“
Ætlar með málið lengra
Þórhallur ætlar að leita réttar
síns, en hann vill ekki að slíkt endur-
taki sig. „Ég ætla að fara með þetta
lengra og höfða einkamál. Þetta er
maður í opinberu starfi sem vinnur
við ráðgjöf og úrlausn vandamála
fyrir einstaklinga en nýtir sér að-
stöðu sína á þennan sérkennilega
hátt. Það sorglega er að alltaf þegar
svona mál koma upp þá bitna þau á
saklausu fólki því þessi maður á fjöl-
skyldu. En hann var hvorki að hugsa
um mína fjölskyldu né sína og ég skil
ekki hvað hann hefur verið að
hugsa, líklega um það eitt að svala
fýsnum sínum.“
Alþingismaðurinn Össur Skarphéðinsson
Á slóðum ísmannsins með Hróknum
össur Skarphéðinsson hélt til
Grænlands á föstudaginn. Það var
mikill spenningur í kappanum þeg-
ar hann reit inn á heimasíðu sína
á föstudaginn. „Ég hlakka svo
sannarlega til. Tilefnið er skák-
ferðalag Hróksins til Tassilaq
grennd við Kulusuk. Hrafn
kó eru komin en skákmenn -
og ræðumenn - fara á eftir,
segir Össur titrandi af tilhlökk
un.
Ástæða þess að Hrókur-
inn fékk össur til þess að
fljóta með er sú að hann
átti að halda setningar-
ræðu
opnun al
þjóðlegs
móts sem
hófst í Tassilaq á laugardag. Setn-
ingarræðan átti að vera á dönsku og
þurfti því Össur að rifja upp gamla
takta úr Mennta-
skólanum í
Reykjavík. „Ég
sat sveittur
við allan
össur Skarphéðinsson
Teflir kannski við ísmanninn.
gærdaginn [fimmtudag] og þreytti
ffumraun mína í að skrifa ræðu á
dönsku. Það tókst. Ég skrifaði hvern
einasta staf sjálfur - og fannst ég
hafa unnið þrekvirki! Svona lifir MR
lengi í manni. Á morgun flyt ég hana
svo á fínustu menntaskóladönsku
sem hefur heyrst í Grænlandi. Ekk-
ert skandínavískt sprok!," segir öss-
ur.
Þetta mun vera í fyrsta skipti sem
össur fer til Tassilaq en þar fer hann
á slóðir merks íslendings. „Ég hef
aldrei komið til Tassilaq en þar á
bolvíski ísmaðurinn heima - sem
veiðir hákarla lifandi og hefur í
tjóðri við ísbrúnina og skaut stærsta
náhveli í hitteðfyrra sem árum sam-
an hefur náðst."
Nú velta menn fyrir sér hvort
Össur og ísmaðurinn tefli upp á smá
flís af hrefnukjöti.
soli@dv.is
Háværir
Hafnfirðingar
Hafnfirðingar virðast hafa gert
sér glaðan dag á föstudagskvöldið
og margir hveijir haft full hátt í
heimahúsum. Umburðarlyndi
margra nágranna hefur greinilega
þrotið þetta kvöld því að lögregl-
unni í Hafnarfirði bárust mun
fleiri kvartanir vegna hávaða í
heimahúsum þessa nótt heldur
en aðrar. Þrátt fyrir hávaöann
virðast Hafnfirðingar þó hafa
skemmt sér nokkuð friðsamlega
því engin stórtíðindi urðu í um-
dæminu þessa nótt.