Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2005, Side 12
12 MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST2005
Fréttir DV
Einar Örn Thorlacius, sveitarstjóri í Reykhólahreppi, er ekki sáttur við hversu langan tíma það tekur
lögreglu að bregðast við uppákomum í hreppnum. Reykhólahreppur er í umdæmi Þórólfs Halldórs-
sonar, sýslumanns á Patreksfirði, í rúmlega 200 kílómetra Qarlægð.
„Maður hugsar nú bara almennt til löggæslumála um landið,"
segir Einar Örn Thorlacius, sveitarstjóri í Reykhólahreppi. í
hreppnum búa ríflega 300 manns en athygli vekur að engin lög-
regla er starfandi á staðnum, hvorki héraðs- né fastráðin. Á hinn
bóginn er hreppurinn í umdæmi Sýslumannsins á Patreksfirði,
sem er 200 kílómetra í burtu. Það tekur því lögregluna rúma tvo
tíma að komast til Reykhóla þegar eitthvað gerist.
Lögregluembættið í Búðardal er var fyrstur á vettvang, en Búðardalur
næst Reykhólum, eða í rúmlega 50
mínútna akstursfjarlægð. í því um-
dæmi er þó einungis einn lögreglu-
maður fastráðinn og er honum ekki
ætlað að sinna Reykhólum.
íbúar í Reykhólahreppi hafa
miklar áhyggjur af slæmu ástandi í
löggæslumálum. „Það sér það hver
maður að þetta er hlutur sem við
þurfum að taka á," segir Einar Örn.
Hann segir að vegurinn sem Pat-
reksfjarðarlögreglan þarf að keyra sé
frumstæður: „Senniiega einhver
frumstæðasti vegur á íslandi."
Á staðinn 12 tímum seinna
Lögreglan á Patreksfirði kom á
staðinn einum og hálfum tíma eftir
banaslys sem varð um síðustu helgi.
Eini fastráðni lög-
reglumaðurinn í
Búðar-
dal
er í 50 mínútna fjarlægð á meðan
Patreksfjörður er í rúmlega tveggja
tíma íjarlægð. „Þetta fór vel fram fyr-
ir tilviljun, en það verður ekki aUtaf
svoleiðis," segir Einar og vottar að-
standendum alla sína samúð um
leið.
Einar segir einnig að gott dæmi
um að það skipti máli að hafa lög-
reglumann í hreppnum sé skothríð-
in sem varð á Reykhólum í fyrra. Þá
gekk Benedikt Bragason berserks-
gang á staðnum með riffil að vopni.
Lögreglan kom á staðinn 12 tímum
síðar en þá var byssumaðurinn á
bak og burt.
Slökkvilið en ekki lögregla
íbúar Reykhólahrepps segja
nauðsynlegt að löggæslumálin verði
endurskoðuð. Einnig er bent á að í
bænum sé einn fullbúinn slökkvibíll
og allt að tíu manna
Þórólfur
Halldórsson
Sýslumaöuri á
Patreksfíröi. Um-
dæmi hans nær
til Reykhóla en er
aö margra mati í of
mikilli fjarlægö.
„Það er einnig aug-
Ijóst að hættan á lög-
brotum er mun meiri
efmenn vita að lög-
gæslan sé slök/'segir
Einar.
lið. Þetta tekur sveitarstjórinn undir:
„Það er einnig augljóst að hættan á
lögbrotum er mun meiri ef menn
vita að löggæslan er slök,“ segir Ein-
ar.
„Það er eðlilegt að þessi mál séu í
sífelldri skoðun hjá okkur. Auðvitað
reynum við að vera eins mikið á
ferðinni og unnt er,“ segir Þórólfur
Halldórsson. Hann segir þó að engin
algild lausn sé á þessum málum. „Þó
er náttúrulega mjög æskilegt að hafa
lögreglumann starfandi í Reykhóla-
hreppi," segir hann og bætir þó við
að um sé að ræða töluverða fjár-
muni.
Ekki fundað ennþá
„Eftir skothríðina á Reykhólum
var ákveðið að taka upp viðræður
um málið en það hefur ekki orðið af
þeim ennþá," segir Einar sveitar-
Einar öm Thorlacius
Sveitarstjóri i Reykhóla-
hreppi. Segir aö aögeröa
t sé þörf til aö bæta
löggæslu i hreppnum.
stjóri. Hann segir að nú sé tími til kosið verður um sameiningu sveit-
kominn að hann fari á fund Bjöms arfélaga á svæðinu í haust. Ef af
Bjamasonar dómsmálaráðherra og sameiningu yrði gætu lögreglumál á
ræði þessi mál. Þórólfur sýslumað- svæðinu batnað.
ur segir að forsendur geti breyst ef gudmundur@dv.is
Löggurí sýslum íslands Sýslumaðurinn á Akranesi Stærð sýslu- manns- umdæma íkm2 9 km2 Fjöldi fbúa 2001 5.655 Fjöldi lög- reglu- manna 2004 12 Fjöldi lögreglu- manna pr. km2 1,33
Sýslumaðurinn á Akureyri 3.890 km2 20.011 32 0,008
Sýslumaðurinn á Blönduósi 7.048 km2 3.453 13 0,002
Sýslumaðurinn í Bolungarvfk 109 km2 999 5 0,045
Sýslumaðurinn í Borgarnesi 5.276 km2 3.840 11 0,002
Sýslumaðurinn í Búðardal 2.421 km2 790 5 0,002
Sýslumaðurinn á Eskifirði 2.750 km2 4.830 21 0,007
Sýslumaðurinn í Hafnarfirði 220 km2 29.238 39 0,17
Sýslumaðurinn á Hólmavík 3.513 km2 859 4 0,001
Sýslumaðurinn á Húsavík 17.836 km2 5.423 4 0,0002
Sýslumaðurinn á Hvolsvelli 7.971 km2 3.223 15 0,002
Sýslumaðurinn á Höfn 6.281 km2 4.452 9 0,001
Sýslumaðurinn á (safirði 3.127 km2 16.500 16 0,005
Sýslumaðurinn í Keflavfk 729 km2 23.518 36 0,049
Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli 90 km2 1.037 47 0,52
Sýslumaðurinn f Kópavogi 80 km2 23.518 26 0,325
Sýslumaðurinn á Ólafsfirði 209 km2 1.037 4 0,02
Sýslumaðurinn á Patreksfiröi 2.605 km2 1.834 8 0,003
Sýslumaðurinn í Reykjavfk 747 km2 122.235 271 0,36
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki 5.544 km2 4.411 16 0,003
Sýslumaðurinn á Selfossi 8.999 km2 12.285 28 0,003
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði 13.562 km2 4.730 16 0,001
Sýslumaðurinn á Siglufirði 155 km2 1.560 7 0,045
Sýslumaðurinn í Snæfellsbæ 1.815 km2 4205 15 0,008
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum 16 km2 4.522 13 0,8125
Sýslumaðurinn íVík 7.701 km2 1.093 6 0,0007
Tölur um stærð umdæma eru fengnar úr IS 50V gagnagrunni Landmælinga (s-
lands.
Tölur um fólksfjölda eru byggðar á skýrslu dómsmálaráðherra frá árinu 2002:
Um stöðu og þróun löggæslu í landinu.
Tölur um fjölda lögreglumanna eru byggðar á ársskýrslu Ríkislögreglustjóra frá ár-
inu 2004 og ber að hafa í huga að hér er átt við alla þá sem eru á launaskrá, óháð
því hvort þeir eru f tímabundnum störfum, frá störfum vegna veikinda eða af öðr-
um sökum.
V.