Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2005, Qupperneq 16
16 MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST2005
Sport DV
Kvennalið Vals í knattspyrnu hefur náð frábærum árangri í Evrópukeppni félags-
liða. Liðið vann sinn riðil í fyrstu umferð og hefur þegar tryggt sinn sess meðal
sextán bestu knattspyrnuliða í Evrópu. „Valur er á góðri leið með að skrifa sig inn
í sögubækurnar,“ sagði Vanda Sigurgeirsdóttir um afrek liðsins.
I EUsabet Gu""aý*?*“þjálfaö sumaaf
veriðþiálfan°fflundir níu ár.Hun
\ leikmönnumlðs^ ,Wnn ogaði
I Mirm?n?Möalltafkomiðtilgre'na
„Þettaermjög
sérstakt og
langt fram úr
okkar björt-
ustu von-
u
um.
VALUR-RÓA 4-1 (2-0)
VALUR-FC UTD 4-1 (2-0)
VALUR-PARNU 8-1 (6-0)
Ætuðum a lltaf að
Lið Vals braut í vikunni blað í sögu kvennaknattspyrnu á fs-
landi. Með sigrum á norska liðinu Röa, FC United frá Finn-
landi og Párnu frá Eistlandi tryggði Valur sér sigur í sínum riðli í
fyrstu umferð Evrópukeppni félagsliða.
Aðeins sigurliðin í riðlunum níu
komast áfram í aðra umferð ásamt
sjö liðum sem samkvæmt styrkleika-
röðun evrópska knattspymusam-
bandsins þurftu ekki að taka þátt í
fyrstu umferðinni. Þessi sextán lið
keppa í Qórum fjögurra liða riðlum
þar sem efstu tvö liðin í hverjum riðli
komast áifam í átta liða úrslit. Þar
verður leikið heima og að heiman
með hefðbundnu útsláttarfyrir-
komulagi.
Arangur Vals er sá besti sem ís-
lenskt félagslið hefur náð í keppn-
inni. Þetta er í fimmta skipti sem Evr-
ópukeppni félags-
liða er haldin, en
KR-ingar hafa
þrívegis tekið
þátt og Breiða-
blik einu sinni.
Vanda Sigur-
geirsdóttir var
þjálfari KR er liðið
tók þátt árið
2003.
„Þetta er í fyrsta skipti sem ís-
lenskt félag fer með sitt besta lið í
þessa keppni,“ sagði Vanda. „Yfirleitt
hefur vantað mikið í þessi lið því
margir leikmenn hafa þurft frá að
hverfa á haustin vegna náms í
Bandaríkjunum. En nú tókst Val að
senda sitt besta Uð og þessi frábæri
árangur þeirra sýnir kannski helst að
staða okkar, bæði í Evrópu og í heim-
inum, er góð. Við erum ótrúlega ná-
lægt toppnum. Landsliðið er í 18.
sæti heimslistans og er alveg við það
að komast á stórmót. Árangur Vals
sýnir það.“
Unnu norsku meistarana
Valur byijaði á því að vinna
norsku meistarana, Röa, með fjórum
mörkum gegn einu. Þau úrslit komu
flestum í opna skjöldu því fyrirfram
var búist við því að þær norsku væru
sigurstranglegastar riðlinum. Ást-
hildur Helgadóttir, leikmaður Maimö
í Svíþjóð, þekkir ágædega til norska
boltans og segir að árangur Vals sé
mjög góður. „En án þess að ég sé
að draga úr árangrinum tel ég
að þær hafi verið frekar
heppnar að fá Röa, fremur
en Kolbotn eða Trond-
heims-öm. Röa vann
norsku deildina fremur
óvænt nú síðast og er öllu
jöfriu veikasta liðið af
þessum þremur. En ár-
angurinn er frábær og
Margrét Ura Viðarsdóttir Skoraöi fjögur
Zn -æg m°rk ge9n tveimur bestu
riöilsinsen varsvo hvlld Iþriðja leiknum
Dóra María á leið til Bandaríkjanna:
Ætlum að gera allt til
að halda leikinönnum
úrsht-
in í
leiknum
sýna hversu
sterkt lið Valur er
með,“ sagði Ásthildur.
Finnar lagðir á heima-
velli
Næsti leikur var gegn heima-
mönnum i FC United, finnsku
meisturunum. „Finnar hafa verið
svipaðir að styrkleika og við,“ segir
Ásthildur. „En þær komust inn á EM
sem haldið var í Englandi í sumar
sem er auðvitað frábær árangur."
Valur hélt sínu í leiknum og unnu
2-1, með mörkum Margrétar Láru
Viðarsdóttur.
Á laugardaginn mættu svo
Valsstúlkur eistnesku meisturunum í
Pámu og þrátt fyrir að Elísabet hafi
hvílt marga leikmenn, svo sem
markaskorarann Margréti Lám
Viðarsdóttur, var Valsliðið komið í
6-0 eftir 28. mínútna leik og gat leyft
sér að taka því rólega það sem efdr
lifði.
Milliriðlakeppnin fer fram 13.-17.
september en ekki er ljóst hvar sú
keppni fer fram í riðh Vals. Nú þegar
er ljóst hvaða liðum Valur mun
mæta. Þau em sænska liðið
Djurgárden, sem komst alla leið í úr-
slit keppnina í fyrra og em ríkjandi
meistarar í Sviþjóð, Alma KTZH frá
Kazakhstan og ZFK Masinac-Classic
Nis frá Serbíu og Svartfjallalandi.
Sem fyrr segir komast efstu tvö liðin
úr þeim riðli áfram í fjórðungsúrslit.
Á leið í sögubækurnar
„Nú er kominn stór möguleiki fyr-
ir Val að skrifa sig inn í söguna," sagði
Vanda Sigurgeirsdóttir. „Framundan
er stórmerkilegur viðburður því Val-
ur á góðan möguleika á að komast
áfram í átta liða úrslit."
Vanda var þjálfari KR er liðið tók
þátt í
keppn-
inni árið
2003 og mættí
þá serbneska liðinu ZFK. KR
tapaði leiknum, 1-3. „Þær
eiga að vinna þetta lið. Það
vantaði mjög margar af okkar
bestu leikmönnum og við
náðum að komast yfir i leikn-
um,“ rifjar hún upp.
Lið Alma er að nokkm leytí
óskrifað blað en þó er ljóst að
Valur á góða möguleika gegn
því liði. Djurgárden er vitanlega
mjög sterkt lið en sænska deild-
in er ein sú allra besta í heimin-
um.
Möguleikar Vals em góðir en
árangur liðsins hingað til er
einn og sér sögulegur. „Þetta er
mjög sérstakt og langt fram úr
okkar björtustu vonum," sagði
Eh'sabet Gunnarsdóttir, þjálfari
Vals. „En við ætluðum okkur
alltaf áffarn og trúðum að við
gætum það. Strax frá okkar
fyrsta fundi í haust gerðum við
okkur grein fyrir hvað við ætluð-
um að gera. Við ætluðum að
spila agað og sækja hratt og það
hefur allt gengið eftir. Við fór-
um ekki í þetta verkefni með
lítið hjarta."
eirikurst@dv.is
MörkVals:
Dóra María Lárusdóttir 3 (18., 20.,
63.), Laufey Ólafsdóttir 2 (5., 90.),
Guðný Björk Óöinsdóttir 2 (2„ 28.),
Málfríður Sigurðardóttlr (25.).
Skot: 28-1
Rangstæður: 12-0
Aukaspyrnur fengnar: 3-10
Horn: 4-3
Hvað sagði Ellsabet:
„Þetta var frekar létt, það verður að
segjast. Ég leyföi mér aö hvlla þær
Margréti Láru, (risi Andrésdóttur og
Laufeyju Jóhannsdóttur og skipti
svo Dóru Stefánsdóttur og Málfríði
Sigurðardóttur út af eftir hálftlma
leik. Þá var staðan orðln 6-0 og við
gáfum svo mikið eftir I slöari hálf-
leik. Þær áttu reyndar bara eitt skot
að marki og skoruðu úr því en við
vorum orðnar þreyttar og vildum
ólmar klára þetta verkefni.
v nna riði inc
Mörk Vals:
Margét Lára Viðarsdóttir 2 (vlti 16,.
41.)
Skot: 10-11
Rangstæður: 1-7
Aukaspyrnur fengnar: 10-12
Horn: 1-9
Hvað sagði Ellsabet:
„Þetta llð Innlheldur stóran hluta U-
21 landsliðs Finna og nokkra A-
landsliðsmenn llka. Þaö er mjög
sterkt og I raun mjög svipað því
norska. Fyrri hálfleikurinn varfrá-
bær hjá okkur og spilaðist alveg
eins og við ætluðumst tíl. Vlð náö-
um að skora tvisvar og þær lágu
svo mikið á okkur f þeim slðari. Þær
voru betri aðilinn og skoruöu verð-
skuldað mark en við náðum sem
betur fer að vinna leikinn. Guð-
björg markvörður var klárlega
maður þessa leiks."
Elísabet Gunnarsdóttir þjálfari Vals segir
að það sé Ijóst að Dóra María Lárus-
dóttir er á leiðinni til Bandarfkj-
anna um næstu mánaöa-
mót enda sé hún á
v ' leiðinniíhá-
skólanám
þar-
lendis,
„Envið
munum skoða
alla möguleika á að
fá hana aftur svo hún geti
spilað meö okkur í riðlakeppn
inni. Svo eru tveir eða þrír leikmenn
sem ætla að reyna fyrir sér í Svíþjóð eft-
ir tlmabilið. Þær ná riðlakeppninni en
það er svo spuming hvað þær gera. Við
verðum að skoða það þegar þar að kem-
ur.“
Elísabet segir að það sé annars stíf
leikjaáætlun framundan. „Við eigum leik í
deildiimi strax á miðvikudag og svo eru
líka landsleikir og bikarúrslitaleikur gegn
Breiðabliki framundan."
Mörk Vals:
Margét Lára Viöarsdóttir 2 (22., 53.),
Dóra María Lárusdóttir (31.), Guðný
Björk Óðinsdóttir (90.).
Skot: 10-9
Rangstæður: 10-16
Aukaspyrnur fengnar: 7-9
Horn: 5-3
Hvað sagði Elfsabet:
„Þetta er grfðarlega sterkt lið en
þær hafa klárlega vanmetið okkur.
Þær voru I raun hundfúlar að hafa
þurft að taka þátt 11. umferð
keppninnar. En okkar plan I
leiknum var að blða eftir að þær
gerðu mistök og leyfa þeim að
stjórna leiknum. Við sóttum svo
hratt á þær og það heppnaðist og
við náðum fljótlega að skora tvö
mörk. Þetta var klárlega okkar lang-
besti leikur I sumar."