Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2005, Side 18
18 MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST2005
Sport DV
Bentí
landsliðið
Darren Bent, sóknarmaður
Charlton, hefur verið kallaður inn
í enska landsliðshópinn sem leik-
ur á mið\ikudaginn vináttulands-
leik gegn Danmörku. Hann kem-
ur inn í hópinn í stað Andy John-
son sem meiddist í 1-1 ja&iteflis-
leik Crystal Palace gegn Norwich í
ensku l.deildinni á lattgardag eftir
aö hafa skorað jöfriunarmark
Palace. Alan Smith hjá Manchest-
er United baðst undan því að
koma inn í hópinn í staðinn fyrir
Bent þar sem hann aetíar sér að
leika heilan leik með varaliði fé-
lagsins á þriðjudag til að koma sér
í gott leikform. Bent hefur aldrei
leikið með A-landsliði Englands
en hann kemur úr U21 landslið-
inu, hann er í fantaformi um
þessar mundir og skoraði tvö
mörk í 3-1 sigri Charlton í úrvals-
deildinrú á laugardag.
Juve vill
Cassano
Juventus heldur áfram að
revna að fá sóknarmanninn Ant-
onio Cassano frá Roma en hann
verður samningslaus eftir tímabil-
ið. i orráðamenn Roma hafa verið
að reyna að fá Cassano til að
skrifa undir nýjan samning en
það gengur erfiðlega. Heyrst hef-
ur að þeir hafi hótað því að
gevma hann á bekknum heilt
tímabil ef hann skrifar ekki undir
samning sem allra fyrst. Juventus
er að reyna allt
sem félagið
gemr til að fá
Cassano en
nýjasta útspilið
er það að bjóða
Roma að fá
Fabrizio Miccoli í * Mfer
skiptum en hann
hefur gefið það
skýrt til kynna að
hann sé ekki sátt-
ur við að verma
varamannabekk-
inn f Tórínó.
Reiknað er með
þvi að Juventus
bíði með að
koma með tii-
boð þar til við
lokunar félaga-
skipta-
gluggans. "/
Ásthildur
skoraði
Ásthildur Helgadóttir, krratt-
spyrnukona með Malmö í Sví-
þjóö, skoraði fyrsta mark sinna
mann er liðið bar sigurorð af
Sunnena í sænsku úrvalsdeild-
inni. Malmö er í öðru sæti deild-
arinnar með 37 stig, rétt eins og
Umea sem sitja á toppi deildar-
innar með öllu betra markahlut-
fall en Malmö. Djurgárden, and-
stæðingar Vals f 2. umferð Evr-
ópukeppni félagsliða, er f þriðja
sæti með 24 stig eftir 13 umferðir,
Woodgate að
spila á ný
Jonathan Woodgate, leikmað-
ur Real Madrid, mun marka end-
urkomu sína eftir að hafa verið
meiddur í sextán mánuði raeð þvf
að leika með unglingaliðum Real
Madrid fyrst um sinn - drengjum
sem eru fjórtán og fimmtán ára
gamlir. ..Unglingamir eru ekki
jafn sterkir og fullorðnir knatt-
spymumenn og hentar það
Woodv betur fvrst um sinn. Hann
verður að ná sjálfstrausti sínu aft-
ur jafnt og þétt og gleyma þeim
meiðslum sem hafa hrjáð nann."
Woodgate fór meö aðalliðinu f
tveggja vikna æfingaferð ti! Aust-
urríkis en lék ekkert þar.
Þrír leikir fóru fram í Landsbankadeild karla í gærkvöldi. KR vann loksins sigur í
Frostaskjóli er liðið vann ÍBV, 1-0. Þá vann Grindavík Fylkismenn heldur óvænt,
3-0, og Fram gerði sér lítið fyrir og vann upp á Skaga, 2-1.
I Markaskorarinn Sigmundur
Kristjdnsson skoraöi mark KR i leiknum.
Loksins sigur hjá KR
„Við stefhdum að því að spila
góðan fótbolta hér í dag og það tókst
og mér fannst þessi sigur fyllilega
sanngjarn," sagði Kristján Finn-
bogason, fyrirliði KR-inga, sem
unnu góðan 1-0 sigur á ÍBV í gær og
eru því að verða komnir í þokkaleg
mál í deildinni, á meðan ÍBV er
áfram f bullandi fallbaráttu.
Nokkur batamerki var að sjá liði
KR í leiknum og greinilegt að Sigur-
steinn Gíslason er að ná að setja sitt
handbragð á leik liðsins, þar sem
boltinn er farinn að ganga betur
manna á milli. Það var þó aðeins
þrumufleygur Sigmundar Kristjáns-
sonar sem skildi liðin tvö að í gær og
þó KRingar hafi verið betri aðilinn á
Hart barist Gunnar Þúr
Gunnarsson og Hjörtur
Júllusson. DV-mynd Brink
vellinum, áttu Eýjamenn nokkur
hættuleg færi í leiknum og KR getur
þakkað markverði sínum Kristjáni
Finnbogasyni fyrir að hafa fengið
þrjú stig í gær.
Þrátt fyrir sigurinn í gær vill Krist-
ján ekki meina að KR sé komið á
lygnan sjó. „Næstu tveir leikir eru
gríðarlega mikilvægir og eru gegn
liðum sem eru fyrir ofan okkur í töfl-
unni, þannig að þeir verða mjög erf-
iðir,“ sagði fyrirliðinn eftir leikinn.
Fram klifrar upp töfluna
Framarar halda áfram á sigur-
braut og í gær unnu þeir verðskuld-
aðan 2-1 útisigur á Skagamönnum.
Daninn Bo Henriksen heldur áfram
að skora og hann kom Fram yfir í
gær eftir sendingu frá Andra Fannari
Ottósyni. Það var eina mark fyrri
hálfleiks en á 65.mínútu jöfnuðu
Skagamenn úr ansi vafasamri víta-
spyrnu. Garðar Örn Hinriksson
dæmdi Eggert Stefánsson brotlegan
og á punktinn fór Hjörtur Hjartar-
son og skoraði af miklu ör-
yggí-
Eftir þetta mark þá vökn-
uðu Skagamenn og sýndu
fi'n tilþrif án þess þó að ná að
skora. Sigurmark leiksins kom síðan
á 80.mínútu en þá var það Viðar
Guðjónsson sem skoraði gott mark
með vinstri. Síðustu mínútumar
léku Framarar einum færri því Jo-
hann Karlefjard fékk að líta rauða
spjaldið fyrir tveggja fóta tæklingu.
Sigur Framara var fyllilega verð-
skuldaður en þeim langaði mun
meira í stigin þrjú og þau fengu þeir
á endanum. Liðið hefur leikið mjög
vel í undanfömum leikjum og er á
miklu skriði um þessar mundir.
sjá batamerki á liðinu fyrr en á síð-
ustu tíu mínútum leiksins, en þá
höfðu Grindvlkingar þegar gert út
um leikinn með sjálfsmarki Guðna
Rúnars Helgasonar. Grindvíkingar
áttu sigurinn fyllilega skilinn í gær
og er allt annað að sjá til liðsins í
dag, eri var í 8-0 tapinu gegn FH á
dögunum. iEf menn rífa sig ekki upp
eftir 8-0 tap, geta þeir bara fundið
sér eitthvað annað að gera,“ sagði
Óli Stefán Flóventsson, leikmaður
Grindavíkur eftir leikinn.
Grindavík berst enn
Grindvíkingar hafa ekki sagt sitt
síðasta í botnbaráttunni í sumar, en
í gær tóku þeir slakt lið Fylkis í
kennslustund á heimavelli sínum í
Grindavík. Leikurinn fór frekar ró-
lega af stað, en eftir rúmlega
halftímaleik skoraði Óskar Öm
Hauksson eitt af fallegri mörkum
sumarsins með hjólhestaspyrnu og
nýskipaður sóknarmaður liðsins, Óli
Stefán Flóventsson bætti við öðm
marki þeirra gulklæddu nokkmm
mínútum síðar. Þrátt fyrir tvær
skiptingar í hálfleik hjá Þorláki þjálf-
ara, virtist lið Fylkis áhugalaust og
þunglamalegt og í raun var ekki að
LANDSBANKADEILDIN
KR-lBV 1-0
Grindavlk-Fylkir MÉSI
(A-Fram 1-2
Staðan:
FH 13 13 0 0 39-5 39
Valur 13 10 0 3 27-9 30
ÍA 14 6 2 6 17-18 20
Keflavík 13 5 5 3 24-27 20
Fylkir 14 5 2 7 23-25 17
Fram 14 5 2 7 15-20 17
KR 14 5 1 8 15-21 16
Grindavík 13 3 3 7 14-28 12
Þróttur 13 2 4 7 15-21 10
IBV 13 3 1 9 10-25 10
Gunnar Heiðar Þorvaldsson stendur sig vel í Svíþjóð:
Aftur þrenna og er kominn á spjöld sög
„Ég held að við emm tveir sem
höfum tvisvar skorað þrennu á sama
tímabilinu síðan að sænska úrvals-
deildin var stofnuð,“ sagði Gunnar
Heiðar Þorvaldsson, hæstánægður
með þrennuna sem hann skoraði í
6-0 sigurleik Halmstad á botnliði
Sundsvall. Auk þess að skora mörkin
þrjú lagði Gunnar Heiðar tvö mörk
upp til viðbótar og átti hann því þátt
í fimm af sex mörkum liðsins. „Það
var allt á öðmm endanum eftir leik-
inn,“ segir Gunnar Heiðar. „Ég fór
svo í nokkur sjónvarpsviðtöl og tugi
blaðaviðtala eftir leikinn og vissi ég
ekki hvaðan helmingurinn af því
fólki kom,“ segir hann og hlær.
„Maður brosti bara og hafði gam-
an."
„Þetta var roslega mikilvægur
leikur fyrir okkur. Við emm frekar
neðarlega í deildinni sem stendur
sem er alveg ótrúlegt miðað við
mannskapinn sem liðið hefur. Hlut-
irnir hafa ekki verið að ganga upp
hjá okkur í síðustu leikjum en við
ætluðum að sýna í dag hvað við get-
um og við vildum sýna að við ættum
ekki heima í þessum hluta deildar-
innar. Það eru núna átta umferðir
eftir og ég tel það afar ólíklegt að við
munum ekki halda sæti okkar í
deildinni."
Gunnari líkar vistin vel í Svíþjóð
en hann hefur nú unnið sér inn sæti
í byrjunarliði Halmstad eftir að hafa
vermt varamannabekkinn í upphafi
tímabils. Hann varð reyndar fyrir
smávægilegum meiðslum ekki alls
fyrir löngu og missti af þremur leikj-
um. Hann minnti þó all rækilega á
sig í dag.
eirikurst@dv.is
„Ég fór í nokkur
sjónvarpsviðtöl og
tugi blaðaviðtala
Gunnar Heiðar Þorvaldsson
Skoraöi þrennu ööru sinni i sum-
ar meö sænska liöinu Halmstad.