Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2005, Blaðsíða 23
J3V Sport
MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST2005 23
f Sumarið hef-
ur svo sannar-
lega verið far-
sælt fyrir tennis-
kappann Arnar
Sigurðsson sem
varð í gær
íslandsmeistari
níunda árið í
röð. Arnar hefur
unnið frábær
afrek á árinu og
ljóst að framtíð
hans í heimi
íþróttarinnar er
björt.
A heimsmælikvarða
„Þetta veitti
mérmikið
sjálfstraust
og sýndi að
vegurinn er
ekki svo
langur."
[slandsmeistarinn Arnar
Sigurðsson lyfti um helgina
sinum níundan íslandsmeist-
aratitli í tennis í röð. Hann bar
sigurorð af Raj Bonifucius i
úrslitaleiknum eins og svo oft
áður.
Arnar Sigurðsson varð í gær íslandsmeistari í tennis níunda árið
í röð en hann er 23 ára og má með sanni segja að hann sé á
hraðri uppleið í tennisheiminum. í síðasta mánuði varð hann
fyrstur íslendinga til að komast á heimslista atvinnumanna í
einliðaleik en þeim magnaða áfanga náði hann eftir mót í Kassel
í Þýskalandi sem var liður í ATP-mótaröðinni. Nokkrum dögum
síðar vann hann sigur á einum af 100 bestu tennisleikurum
heims.
Það er mikið afrek að komast inn
á heimslistann en Arnar segist þó
hafa haft það á tilfinningunni að það
myndi gerast, það hefði bara verið
spurningin hvenær.
„Þetta small saman á þessu móti
í Þýskalandi þegar ég og Andri Jóns-
son fengum fyrstu stigin í tvfliðaleik.
Ég komst síðan í gegnum undan-
keppnina og í sjálfa aðalkeppnina
þar sem ég vann í fyrstu umferð í
hörkuleik fyrir firaman fulla stúku af
áhorfendum. Þetta var ákveðið
spennufall þar sem ég var búinn að
bíða lengi eftir því að komast inn á
þennan lista. Það er svo rosalegur
flöldi manna að berjast um þetta,"
sagði Amar.
Ótrúlegt afrek
Fljódega eftir þetta firækna afrek
hélt Arnar til keppni á Davis Cup þar
sem hann vann eitt mesta íþrótta-
afrek íslendings á árinu
þegar hann sigraði
keppenda sem hefur
verið á topp 100 yfir
bestu tennisleikara
heims síðustu tíu ár.
Arnar og íris íslandsmeistarar
Það kom fáum á óvart er Amar Sigurðsson, TFK, og íris Staub, TFK,
urðu um helgina íslandsmeistarar í tennis en bæði unnu þau úrslita-
leild sína mjög örugglega. í tvenndarleik sigurðu þau Jón Axel Jónsson
og íris Staub, bæði úr TFK, en Arnar Sigurðsson og Davíð Halldórsson,
TFK urðu íslandsmeistarar í tvfliðaleik karla. Andri Jónsson, sem
tapaði fyrir Raj Bonifacius í undanúrslitum, vann Davfð í leik um
þriðja sáetið í einliðaleik karla. Andri knúði fram sigur í oddalotu sem
hann vann með átta settum gegn sex.
„Þetta er maður sem hefur unnið sér
inn yfir 200 milljónir í verðlaunafé
um tíðina og svo hefur hann einnig
fengið fjárhæðir í gegnum samninga
við íþróttafyrirtæki og slrkt. Stuttu
áður en ég.vann hann var hann að
leggja menn sem eru meðal tíu
bestu í heiminum," sagði Amar en
þetta er mesta afrek íslensks tennis-
leikara hingað til.
Vakti mikla athygli
Þessi sigur Arnars vakti athygli
víða og til dæmis .greindu dagblöð
sem gefin eru út í Kalifomíu í
Bandaríkjunum frá þessu en þar er
Amar í skóla. „Þetta veitti mér mikið
sjálfstraust og sýndi að vegurinn er
ekki svo langur. Ég hef keppt við níu
sem em nú meðal 150 bestu í heim-
inum og hef unnið þrjá af þeim. Það
sýnir að allt er hægt ef vfljinn er fýrir
hendi," sagði Amar sem hefur átt
frábært sumar svo ekki
meira annað sagt.
„Það hefur gengið vel
í sumar. Ég setti mér
ákveðin markmið, eins og
t.d. að komast inn á atvinnu-
mannalistann. Það hefur verið mik-
ill stöðugleiki hjá mér í sumar og ég
tel mig vera orðinn heil
steyptari leikmann."
Markaskorari í fótbolt-
anum
Arnar byrjaði níu ára
gamall í tennis en hann var
einnig liðtækur í fótbolta og
var á sínum tíma markakóngur
Shellmótsins. Hann valdi þó tenn-
is framyfir og sér ekki eftir því.
Hann ætlar sér að hella sér af krafti
út í atvinnumannaferilinn þegar
hann hefur lokið skólagöngu í
Bandaríkjunum en þar á hann eitt
ár eftir. Hann hefur spflað í banda-
rískum háskólatennis með frábær-
um árangri og var valinn leikmaður
ársins í skólanum sínum. Nánast all-
ur hans tími fer í tennis og skólann
en hann uppsker svo sannarlega
eins og hann sáir.
„Eftir áramót þá
keppi ég hveija
einustu helgi
frá lokjanúar
þar til um
miðjan
Ég hef sett mér markmið sem ég
ætla að taka í skrefum og vonandi
held ég áfram á þessari braut,"
sagði Arnar.
elvar@dv.is
h\TT