Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2005, Side 29
DV Fréttir
MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST2005 29
Úr bloggheimum
Ég þegi
„Ég stend á mótum
Laugavegs og
Klapparstígs og
fylgist meö Gay Pride
skrúðgöngunni. Árni
Magnússon gengur fram-
hjá. Við hliðina ámér heyrist karl-
maðurá þrítugsaldri segja við kær-
ustu sína:„Sérðu! Þarna er mennta-
málaráðherra!" Ég þegi."
Atli Bollason - bollason.blog-
spot.com
Póetískt
„Aiiavega, Ibrahim Ferrer er dáinn, og
það er leiðinlegt.
Ég verð að viðurkenna,
að mérþóttisér-
staklega gaman,
jafnvel Ijóðrænt,
að sjá fréttina
um Björgólf
Thor og ísinn
framan á DV um
daginn. Póetískt er
kannski réttara orð, en Ijóðrænt.
Stundum, og bara einstaka sinnum,
verða breyskleikar guðanna lýðum
Ijósir. Guð lét andskotann gabba sig I
Jobsbók - féll í freistni - Þór þurfti að
klæðast kvenhami til að endur-
heimta Mjölni, að lokum fékkAkkiles
eitraða ör í hælinn - og stundum
lenda ríkustu menn í heimi iþví að
eiga ekki innistæðu fyrir ís.*
Eiríkur Örn Norðdahl
blog.central.is/amen
Situr og syrgir
„Afhverju er ég á
Laugarvatni? Af
hverju eru bara til
fimm vikna gamlir
Moggar niðri i
staffaeldhúsi? Af
hverju var Eiríkur Örn
Norðdahl fyrsti fjölmiðillinn sem
sagði mér að Ibrahim Ferrer væri dá-
inn? Ó mig auma, þessi andlitsfríði
sjarmör sem eitt sinn blikkaði litlu
systur úr glugganum á rútu. Ég slekk
á Sigur Rós. Einnar mínútu þögn í
lobbíinu."
Krístin Svava Tómasdóttir
blog.central.is/sacredshit
Berlínarmúrinn reistur
Þennan dag árið 1961, tveimur
dögum eftir að hafa hindrað aðgang
milli Austur- og Vestur-Berlínar með
gaddavír, hófu stjómvöld í Austur-
Þýskalandi byggingu Berlínarmúrsins.
Hann varð fimmtíu kílómetra langur,
úr steinsteypu og gaddavír.
Berlínarmúrinn hafði það hlutverk
að stöðva vaxandi flóttamannastraum
frá Austur-Þýskalandi til Vestur-
Þýskalands. í ágúst 1961 flúðu að
meðaltali tvö þúsund Austur-Þjóð-
verjar yfir til vestursins á hveijum degi.
Margt flóttamannanna var vel mennt-
að fólk sem mikill missir var að og
hafði þetta slæm áhrif á efnahagslífið í
Austur-Þýskalandi.
Við lok sfðari heimsstyijaldarinnar
var Þýskalandi skipt á milli sigurvegar-
anna. Höfuðborginni Berlín var sömu-
leiðis skipt, jafnvel þótt hún væri inni á
miðju svæði sem Sovétríkin fengu í
sínar hendur. Bretar, Frakkar og
Bandarikjamenn sameinuðu þá hluta
sem þeir fengu í Vestur-Þýskaland.
Þegar múrinn var reistur 1961 hafði
spennan magnast mjög á milli austurs
og vesturs.
Bætt var við Berlínarmúrinn út
árið 1961. Hann þjónaði hlutverki sínu
vel og sífellt færri náðu að flýja yfir til
vestursins. Frá 1961 til 1989, þegar
múrinn var rifinn, höfðu aðeins um
fimm þúsund manns náð að flýja yfir.
Enn fleiri höfðu verið teknir höndum
áður en þeir komust yfir og 191 var
drepinn við flóttatilraun.
Undir lok níunda áratugarins voru
Sovétmenn komnir svo að fótum fr am
að þeir treystu sér ekki tfl að verja
kommúníska stjómkerfið í evrópsku
Lesendur DV eru hvattir til að senda okkur tölvupóst á netfangið ritstjorn@dv.is og láta í Ijós skoðanir sínar á málefnum liðandi stundar.
Vond þjónusta í Bónus í Kringlunni
Reiður viðskiptavmm úr Bónus
hringdi:
Ég fór í Bónus í Kringlunni á dög-
unum til þess að kaupa mér matvæli
eins og gengur og gerist. Ég hef farið
víða um land og verslað meðal ann-
ars í Bónus á Egilsstöðum og Akur-
eyri en aldrei hef ég kynnst eins lé-
legri þjónustu og í Bónus í Kringl-
unni. Ekki nóg með það að ég hafi
þurft að bíða í röð í 12 mínútur.
Heldur mætti ég leiðindaviðmóti hjá
afgreiðsludrengnum. Hann lét sem
hann sæi ekki viðskiptavinina og
hlustaði á Ipod og söng með. í stað-
inn fyrir að sinna viðskiptavinum
sem borga fyrir hans þjónustu. Því-
lík ósvífni og yfirlæti.
Bónus hefrir gert margt gott fyrir
neytendur og get ég ekki kvartað yfir
vöruverðinu í verslunum þeirra. Ég
er þó ekki tilbúin að mæta svona
hroka og stælum fyrir lægri mjólkur-
lítra. Þá er allt eins hægt að hafa
sjálfsafgreiðslu í þessum verslunum,
ef þetta á að vera svona.
Kannski er rétta lausnin að þeir
Jón Ásgeir og Jóhannes faðir hans
hækki launin hjá þessum aumingj-
ans starfsmönnum í Bónus. Ein-
hverra hfluta vegna grunar mig að
drengurinn með Ipod-spilarann hafi
Lesendur
ekki verið á neinum forstjóralaun-
um. Einhvers staðar heyrði ég að
þessir krakkar sem vinna þama fái
aðeins eina kaffipásu yfir daginn,
tvær ef vel liggur á yfirmönnum.
Hvað sem því líður vfl ég senda
vinsamleg tflmæli til verslunarstjóra
Bónus í Kringlunni og biðja hann að
taka Ipod-spilara af starfsmönnum
sínum.
Útlendingar í sturtu!
Guðnýhringdi:
Mér firmst óþolandi að útlending-
ar geti farið ofan í sundlaugar án þess
að þrífa sig fyrst. Á sumrin fyllast
laugar landsins af þreyttum og oft illa
lyktandi ferðamönnum sem sjaldn-
ast stoppa við í sturtunum áður en
þeir stinga sér ofan í vatnið. Á meðan
sundverðir standa vörð um að ís-
lensku börnin þrífi sig almennilega
áður en þau fara út í laugina komast
útlendingamir upp með að sleppa
sturtunni eða í mesta lagi bleyta sig í
sundfötunum. fslensku bömin vita
að þau eiga að þrífa sig áður en þau
fara ofan í og þau fara langflest eftir
þeim reglum svo verðimir geta sleppt
Lesendur
því að fylgjast með þeim. Oft finnst
manni eins og þeir nenni einfaldlega
ekki að útskýra fyrir útlendingunum
að þeir verði að þrrfa sig án sundfata
og horfi því í aðra átt á meðan þessir
gestir koma sér í laugina.
Grey útlendingamir geta ekkert
að þessu gert. Þeir vita einfaldlega
ekki betur þótt skilti hangi uppi um
ingum i sturtu að mati
lesanda.
alla veggi. Mér finnst tími
kominn tfl að baðverðim-
ir h'ti af bömunum og einbeiti sér að
siða til þetta ágætis fólk sem oftar en
ekld er einmitt komið í sund til að
þrífa sig eftir langa vem í tjaldi eða á
reiðhjóli á leið sinni um landið. Ég
skfl alveg að þeir vflji nota
þessar laugar enda flestar
íslenskar sundlaugar tfl fyr-
irmyndar. Við skulum halda þeim
þannig og láta alla þrífa sig áður en
þeir stinga sér ofan í vatnið.
í dag
árið 1936 hófust fram-
lcvæmdir við byggingu
Háskóla íslands þegar
tíu atvinnulausir stúd-
entar byrjuðu að grafa
fyrir grunninum. Bygg-
ingin var formlega tek-
in í notkun 17. júní 1940.
lepprikjunum með valdi. Hinn 9. nóv-
ember 1989 gerðist sá heimssöguiegi
atburður, að Berlínarmúrinn, sem
hafði staðið ffá árinu 1961, tákn frelsis
og óffelsis, var brotinn niður af fbúum
Austur-Berlínar.
Smáu samfélögin
virka
Nú hallar sumri og ferðalögum
fækkar, skólamir byrja og bömin
komast í rétta rútínu, ferðaþjón-
ustan minnkar og fólk endar góða
samvem á mismunandi hátt. Ég er
stödd á Höfn í Hornafirði og upp-
lifði hátíð við Jökulsárlón þar sem
vertinn þakkaði sínu fólki samver-
una með þvílrkri sýningu af flug-
eldum og upplýstum jökum og
sveitungar vom með ball á eftir.
Þetta hefur hann gert um nokk-
urra ára skeið og fólk í nágranna-
byggðum leggur á sig klukku-
stundaralcstur um miðnætti til
þess að taka þátt í þessu með
þeim og er stemmingin mjög góð.
Mér er sem ég sæi höfuðborgar-
búa gera þetta í rigningunni eins
og var við lónið núna á laugar-
dagskvöld. Þetta sýnir hvað lands-
byggðarfólk lætur sig varða vel-
gengni náungans og samkenndin
er eins og rauður þráður þegar
komið er í smærri samfélög. Ef þú
ert að byggja þá hjálpa menn hver
öðmm og miðla af þekkingu sinni
fyrir nú utan hvað frjálsræðið er
meira hjá börnunum. Hið unga og
hæfileikaríka fólk ætti að prófa að
vera á svona stöðum í þessum litlu
samfélögum. Það em nánast allir
eitthvað númer.
Erfiðast í myrkrinu
„Þetta tekur náttúrulega á enda
veðrið búið að vera misjafnt," segir
Kjartan Jakob Hauksson, kafari og sjó-
maður sem mun fljótlega ljúka ferð
sinni hringinn í kringum landið á ára-
báti. Þegar blaðamaður heyrði í Kjart-
ani var hann staddur á Stokkseyri en
þangað kom hann á laugardagskvöld-
ið eftir að hafa róið í 30 tíma samfellt.
Aðferðin sem Kjartan notar er svokall-
aður ólympískur róður þar sem fæt-
urnir em einnig notaðir. „Ég ræð stíft
og er ekkert að dóla við þetta enda get-
ur maður aldrei treyst veðrinu," segir
Kjartan, sem er að láta gamlan draum
rætast.
„Þetta hefur verið gamall draumur
hjá mér og í leiðinni undirbúningur
fyrir að róa yfir Atlantshafið," segir
Kjartan Jakob, en hann stefnir á ferð
yfir Atlanshafið á næstu tveimur til
þremur ámm og ætlar hann sér að róa
einn án fylgdarbáts. „Ég mun einfald-
lega taka með mér slatta af mat og
leggja af stað.“ Er hringferðinni lýkur
Fjölskyldan erstundum
hrædd um mann, aðal-
lega mamma og börnin,
en þau láta sig hafa
þetta enda ýmsu vön.
verður Kjartan sá fyrsti sem róið hefur
hringinn f kringum landið án aðstoðar
frá mótor eða segli, en á ýmsu hefur
gengið í ferðalaginu. Hann lagði upp-
haflega af stað frá Reykjavík í byrjun
sumars en varð að byrja aftur eftir að
hafa eyðilagt bátinn í brimi á Horn-
ströndum. Seinna lagði hann svo aftur
af stað ffá Grindavík á sjómannadag-
inn.
„í heildina séð hefur veðrið verið
afar gott en þetta er samt alltaf erfitt í
myrkrinu um nætur," segir Kjartan og
bætir við að það hjálpi að hann sé al-
veg laus við myrkfælni. „Fjölskyldan
er stundum hrædd um mann, aðal-
lega mamma og bömin, en þau iáta
sig hafa þetta enda ýmsu vön. Ég
starfa sem kafari og sjómaður og þau
því vön að ég sé annað hvort úti á sjó
eða ofan í sjó."
Kjartan býst við að vera kominn til
Reykjavíkur fyrir næstu helgi enda vill
hann ekki missa af hátíðahöldunum á
menningarnótt. „Það má segja að ég
sé kominn af því að erfiðasta kaflan-
um er lokið. Héðan af verður þetta
auðvelt. Svo er bara að skella sér á ball
um kvöldið."
,, . „„ wpröa fvrstur allra til að róa umhverfis Island. Hann er
jrtan Jakob H“uks*on því vanur sjónum. Ferðin er hluti af undirbúningi
f“rl °c ft/Hrferð hans yfir Atlantshafið á árabáti. Kjartan ætlar að róa áður ófarna
ð yfír hafið. Hann býst við að leggja af stað í leiðangurinn eftir tvö til þrju ár.