Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2005, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2005, Blaðsíða 34
jhl er melra ptáss í hehrttí rflrÖaotiB >áta um törftmn Melstari Sýnd ki. 8 og 10.30 Bargarbia kl. 5,20,8 og 10.30 Sýnd kl. 4 oq 6 í brividd Broken Flowers Fantastic Fourö.i. 1 Wedding Crashers Ævintýraferðin kl. 8og10.10 kl. 8 kl. 5.50 og 10.10 kl.6 ★★★★ •HJ.MBl. ★ ★★★ BROKE'N KlOWjjR; “Har»n var kvennat>o#mM.., en nú kemur forttöinTtoaktö a honum/' Fekk Grand Prtx ver&launtn i Cannes. Hefur fengið etnróma tof gagnrýnenda um hetm attan. Sýnd kl. 5,50,8 og 10.10 U 16ára sýnd kl. 8 og 10.20 Sýnd ILúxus kl. 5,50,8og 10.10 ----------------- ★★★ Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.20 8.1.10 ára Sýnd kl. 4 ÍSLEMSKT TAL Tónleikar • Söngkonan Andrea Gylfadóttir og píanóleikarinn Kjartan Valde- marsson leika á tónleikum á Næsta bar í kvöld klukkan 22. Langt er um liðið síðan þessi skemmtilegi dúett hefur komið fram en þau fagna endurkomunni í kvöld með því að leika eingöngu lög úr kvikmyndum. Ókeypis er inn og allir velkomnir. • Fyrstu tónleikarnir í hádegistón- leikaröð Hafiiarborgar, menningar- og listastofnunnar Hafnarfjarðar, eru i dag klukkan 12. Gestur á fyrstu tónleikum vetrarins er sópransöngkonan Elín Ósk Óskars- dóttir. Hún syngur aríur eftir Moz- art, Verdi, Puccini og fleiri við und- irleik Antoníu Hevesi. Iceland Airwaves-tónlistarhátíðin verður haldin í næsta mán- uði og sífellt bætist í hóp erlendra gesta. Nú hefur verið stað- fest að breska plötuútgáfan Moshi Moshi verði með sérstakt kvöld á hátíðinni og það sama gildi um danska plötufyrirtæk- ið Crunchy Frog. Béð viúliét é ðimm Breska plötuútgáfan Moshi Moshi og hin danska Chrunchy Frog, verða með sérstök kvöld á Iceland Airwaves tónlistarhátíðinni í október. í fréttatil- kynningu frá aðstandendum hátíðar- innar kemur fiam að átta listamenn komi fram á vegum plötufyrirtækj- anna. Stærsta nafiúð er án efa ástr- alska hljómsveitin Architecture in Helsinki sem vakið hefur mikla athygli upp á síðkastið. Hin íjögur nöfnin sem koma á veg- um Moshi Moshi em sænski dúettinn Lo-Fi-Fnk, sem gefur út fyrstu breið- skífu sína í haust, Metronomyfiá Bret- landi, sem hefur endurhljóð- blandað fyrir listamenn á borð við Roots Manuva og Franz Ferdinand, bandaríska tríóið Au Revoir Simo- ne, sem líkt hefur verið við The Pos- tal Service j Architecture in Helsinki ."1 virkilega spennandi ó strölsk ■M hljómsveit sem heiðrar Is- jji lendinga með nærveru sinni M d Airwaves. og Stereolab, og svo Kristinn Gunnar Bjamason, sem kallar sig Unsound. Kristinn, eða KGB eins og hann er gjaman kallaður, gefur út fyrstu breið- skífu sína hjá Moshi Moshi innan tíð- ar. Hún hefur fengið nafnið This Is How You Should Be Living. Þekktasta nafnið sem Crunchy Frog býður upp á á Airwaves er Junior Senior. Sveitin sló í gegn um allan heim fyrir tveimur árum og hyggst kynna nýja breiðskífu sína fyrir íslend- ingum. Þá koma einnig tvær sveitir sem heimsóttu ísland í mars á þessu ári og léku á Grand Rokki. Þetta em Powersolo og epo-555. Airwaves-hátíðin verður haldin i Unsound Kristinn Gunnar spilar d Is- landi d vegum er- lendrar útgdfu. Reykjavík dagana 19.-23. október næstkomandi. Stærsm erlendu listamennimir sem staðfest hafa komu sína em Babyshambles, The Fiery Fumaces, The Zutons og luliette & The Licks. Miðasala hefst í næstu viku. Knminn af sjúkrahúsi Rappdólgnum og glæpamanninum Suge Knight var hleypt afspitala um helgina. Hann varskot- inn í veislu í Mi- ami d dögunum og hafa margar getgdtur verið um hver skaut hann. Lögreglan í Mi- ami hefur ekki handtekið neinn vegna mdlsins og kvartar undan vitnum sem eru víst alls ekki nógu samvinnuþýð. Suge þurfti að fara i aðgerð þarsem byssu- kúlan var fjarlægð úr löppinni d honum og gert var við brotið bein. Hausar fara að fjúka fyrst Suge hefur ndð sér. Ætlar ekki að enda eins og Cher Leikkonan Jodie Foster ^gagnrýnir stallsyst- k ur sína Cher fyrir t að hafa gengist undir lýtaað- gerðir og segir hana heyja „tap- aða orrustu" við það að eldast. Jodie ersjdlf 43 dra og viðurkennir að hún sé farin að eldast í útliti. Hún hefurþó heitið því að leggjast aldrei undir hnif- inn eins og Cher hefur margoft gert.„Ég er farin að finna fyrir breytingunum en ætla ekki að heyja tapaða orrustu. Ég ætla ekki að verða Cher." Gorillaz stálu toppsætinu á breska smáskífulistanum af Oasis Damon nær fram hefndum á Gallagher-bræðrum Tíu árum eftir að barátta Blur og Oasis um hvor væri stærsta hljómsveit Bret- lands náði hámarki hefur Damon Albam náð firam hefiidum. Eins og frægt varð gáfu Blur og Oasis út sama dag og náði Oasis toppsætinu, en vinsældir Blur minnkuðu í kjöl- farið. ur hrósuðu sigri, nokkuð sem þeim leiddist hreint ekki. Damon Al- bam, söngvari Blur, hefur farið ótroðnar slóðir í tónlistarsköpun sinni síðan þetta var. Bæði hefur hann gert tílraunakenndari tón- list með Blur, hann hefur gefið út sólóefni sem seint verður talið vinsældavænt og svo starfrækir hann auðvitað hljómsveitina Gorillaz. Og það er einmitt með Gorillaz sem Damon hefur tekist að hefna sín lítillega á Gallag- her-bræðrum. í vik- unni komst nýja lagið Dare í efsta sæti breska smáskífulist- ans og ýttí þar með lagi Oasis, The Importance of Being Idle, niður í fimmta sætið. AlexPetridis, tón- Liam Ekkert sér- staklega hress. listargagnrýnandi The Guardian, segir þetta þó ekki al veg sambærilegt við einvígið fyrir tíu árum. „Það skiptir Oasis litlu máli hvort nýrri plötu gangi vel, fólk vill alltaf sjá þá á tónleikum. Damon er aftur á móti listamaður- inn sem hefur þróast." Gorillaz Eiga vin sælasta lagið í Bretlandi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.