Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2005, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2005, Blaðsíða 3
DV Fyrst og fremst MIÐVIKUDACUR 7. SEPTEMBER 2005 3 Ævintýri lesin inn á hljoir plötu Sigurður Sigurjónsson Margrét G uðmundsdóttir, Bessi Bjarnason, Elva Glsla- dóttir og 6 Isli Alfreðsson. „Ég man ekki eftir því þegar myndin var tek- in en ég man eftir að hafa lesið inn á þessa plötu,“ segir Sigurður Sigurjónsson leikari. Sig- urður segir að ýmis ævintýri hafi verið lesin inn á plötuna, t.d. Öskubuska og Stígvélaði köttur- inn. „Þegar myndin var tekin var ég nýbyrjaður að starfa sem leikari í Þjóðleikhúsinu og Bessi og Gísli sem eru með mér Gamla myndin Sigurður Sigurjóns leikari Hefurbrugðið sérl mörg hlutverk í gegnum tíðina. á myndinni voru samstarfsfélagar mínir þar," segir Sigurður. Hann segir að Gísli hafi fengið sig í þetta verkefni en hann stjórnaði því. „Myndin er tekin í SG-stúdíói sem mig minnir að hafi verið til húsa á Skúlagötunni," segir Sig- urður. Hann segir að þetta hafi verið skemmtilegt verkefni og aðeins eitt af mörgum sem hann sinnti á þessum tíma. „Þetta tímabil er ljúft í minningunni en ég er ekki viss um að þessi ágæta plata hafi verið gefin út á geisladiski," segir Sigurður. Spurning dagsins Leiðinlegasta vinna sem þú hefur unnið Símsala ekki góð fyrir sjálfsmyndina „Símsala, leiðinlegasta djobb í heimi, af þvi að maður fær 100 þúsund nei á hverjum degi. Það er ekki gott fyrir sjálfsmyndina." Jón Tryggvi Unnarsson verslunarmaður. „Skafa timbur, ég var að vinna í því þeg- ar ég var 17-18 ára.Það var frekar leið- inlegt, ég var líka svo latur Þá“ Haukur Friðþjófsson sjó- maður. „Skurðgröftur, var í því þegar ég var 18-19 ára. Vildi ekki vera í því aft- ur.“ Donald Ing- ólfsson heimavinnandi. „Vareinu sinni öskukall. Það varfrekar leið- inlegt og ein- hæft en ágæt- lega borgað." Haukur Þór Hauksson framkvæmda- stjóri. „Öll störfin hafa verið mjög skemmtileg. Annars hefði ég ekki unnið við þau. Var hjá Loftleiðum í 46 ár og hafði alltafgaman af því." Anna Lilja Kvaran, sjálfboða- liði hjá Rauða krossinum. DV lékforvitni á að vita hvert væri allra leiðinlegasta starf sem vegfarendur á Laugavegi hefðu haft um ævina. Læra allir af meistaranum Hamborgarabúlla Tómasar er einn rómaðasti matsölustaður mið- borgarinnar. Ljósmyndari DV átti leið hjá staðnum í gær, stóðst ekki mátið og skellti sér inn á einn sveitt- S----------------------V 'Það er staðreynd... ...að býfluga hefur fímm augu, tvö samsett augu sitt hvorum megin á höfðinu og þijú frumstæð augu sem staðsett eru ofan á höfðinu sem gegna því hlutverki að átta sig á styrk- leika ljóssins. Skyndimyndin Að krumpa malbikið þýðir að auka hraða bifreiðar snögg- lega, gefa í. Málið an borgara. Hann smellti þó af einni mynd í leiðinni. Svona til að réttlæta ferðina fyrir sjálfum sér. „Kokkamir hérna steikja bestu borgarana í bænum," sagði örn kokkur kokhraustur við ljósmynd- ara. „Enda emm við allir búnir að læra af meistaranum. Honum Tomma sjálfum. Hann kenndi mér allt sem ég kann.“ ^Þarfekki að stöðva fólkj sem framkvæmir gegndarlaust á kostn- aö skattborgarans án þess að hafa snefil af bisnissviti?," spyr Ög- mundur Jónasson á heima- sfðu sinnu þar sem hann gagnrýnir hömlulausar stóriðjuframkvæmdir stjórnvalda og sinnuleysi fjölmiðla gagnvart þeim. ÞÆR ERU HALFSYSTUR Leikkonan & doktorinn Katla Margrét Þorgeirsdóttir leikkona og Herdis Þorgeirsdóttir, doktor f alþjóðalögum og prófessor við Viðskiptahá- ^ skólann á Bifröst í Borgarfirði, eru hálfsystur. Faðir þeirra beggja er Þorgeir Þorsteinsson, fyrrverandi lögreglustjóri á Kefiavíkurflugvelli. Katla Margrét hefur þegar skipað sér f fremstu röð íslenskra leikkvenna og Herdís hefur tekið sinn sess meðal þeirra sem færastir þykja á fræðasviði laga og mannréttinda. Þær Herdís og Katia Margrét þykja sláandi Ifkar um margt og þá sér- staklega brosið. Svefnsófar með heilsudvnu Recor ■—4. —-——— NSEO SVEFNSÓFI160 / 209x95cm - SENSEO SVEFNSÓFI140 / 187x95cm - Margir litir Komdu í verslun okkar að Faxafeni 5 og sjáðu glæsilegan sýningarsal okkar fullan af nýjum svefnsófum. Lenny svefnsófi m. 161 cm íungu. 260x90 cm - Litir Comel og Brúnn. Svefnsvæði 135x215 cm. Svefnsófar með heilsudýnu og MicroFiber áklæði í mörgum litum og stærðum. r i VW svefnsófi 184x91 cm-LhirBrúnt og svart leður. Svefnsvæði 150x200 cm. Kim svefnsófi 203x95 cm - Litir Camel, hvitur, brúnn. I Svefnsvæði 143x193/215 cm. Sýningarsalur á neðri hæð fullur af nýjum svefnsófum, glæsileg tilboð í gangi! Wimtex svefnsófar eru allir með rúmfatageymslu. Betra Faxafeni 5 • Sími 588 8477 • www.betrabak.is —, mm mm Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 11-15

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.