Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2005, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2005, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2005 Fréttir XXV Snæugla á batavegi Snæugla sem fannst föst í girðingu skammt frá bæn- um Ósi, rétt innan við Hólmavík, í haust er að braggast þó svo að enn sé tvísýnt um hvort hún nái bata. Uglan var send í Hús- dýragarðinn þar sem hún hefur hlotið viðamikla læknismeðferð. Hún var með heljarinnar stórt sár á vængnum og var það saumað eins og kostur var og síðan fór uglan á lyfjakúr. Gestir garðsins geta barið hana augum en hún dvelur í smádýrahús- inu. Frá þessu er sagt á strandir.is. Deilt um utan- landsferð Deilur eru komnar upp í stjóm sveitarfélagsins Skagaijarðar. Ekki um leik- skólamál eða fjárhagsstöðu heldur umsókn sveitarstjór- ans Ársæls Guðmundssonar um endurmenntunarstyrk. Formaður byggðaráðs lagð- ist gegn umsókninni en Ar- sæll vildi nota styrkinn til að sækja málþing um stöðu sveitarstjómarstigsins í EES- samstarfinu í Brussel. Hann varð fýrir vonbrigðum vegna þessa og sakar formanninn um að notast við tiktúmr eða dagsform geðslags við afgreiðslu mála. Siqurjón nýr ráðherra Sigurjón Þórðarson þing- maður Frjálslynda flokksins er orðinn ráðherra. Alltént heldur hann því fram í pistli á heima- síðu sinni. Um síðustu helgi hélt hann ræðu á landsþingi Junior Chamber vegna forfalla eins ráðherra úr ríkisstjóminni. Við það tækifæri óskaði Sig- tujón eftir því að hureyfingin kæmi þeim skilaboðum til viðkomandi ráðherra að hann væri til í að leysa hann af í fleiri verkefnum. Sigur- jón bætti svo um betur og sagðist vel geta hugsað sér að leysa ráðherrann af til frambúðar. Arna Rúnarsdóttir, hestakona og ljósmyndari, á sér draum um að byggja sundlaug fyrir hross við hesthús sitt í Víðidal. Borgaryfirvöld hafa hafnað umsókn hennar þar að lútandi á þeim forsendum að það samrýmist ekki deiliskipulagi á svæðinu. En Arna ætlar ekki að gefast upp. Hestakona vill taygyja sunúlaug en fær ekki Landsþekkt hestakona hefur sótt um leyfi til að byggja sundlaug við hesthús sitt í Víðidal. Borgaryfirvöld hafa hafnað umsókn hennar með þeim rökum að sundlaugar við hesthús samrýmist ekki fyrirliggjandi deiliskipulagi á svæðinu. Ama Rúnarsdóttir, hestakona og ljósmyndari, keypti nýverið stórt hesthús af Bjama Eiríki Sigurðssyni sem þar hafði rekið reiðskólann Þyril um árabil. Vegna heilsubrests seldi Bjarni Eiríkur örnu hesthús sitt og einbeitir sér nú að Njáluferð- um á hrossum í Fljótshlíð. Hvinur frá Holtsmúla Heimsmeistari ítölti meS hæstu einkunn sem gefín hefur veriö. Þjálfaður I sundlaug. Ekki ætlaði Arna sér að synda sjálfí sund- lauginni heldur var hugmyndin að byggja sundaðstöðu fyrir hross og jafnvel önn- ur dýr. í umsólcn sinni til borgaryfirvalda sækir Arna eldd eingöngu um að fá að byggja sundlaug við hesthúsið heldur einnig að stækka það til muna og byggja aðra hæð á húsið að hluta. Ekld ætlaði Ama sér að synda sjálf í sundlauginni heldur var hug- myndin að byggja sundaðstöðu íyrir hross og jafnvel önnur dýr. Líka fyrir hunda Hestasundlaugar em vel þelckt fyrirbæri víða í Evrópu en sund- sprettur þykir góð þjálfun fyrir reið- hross og þá sérstaklega veðhlaupa- hestá. Að auki er Ama mikil áhuga- manneskja um hunda og hefur meðal annars gefið út plaköt af ís- lenska hundinum og öllum þeim Ama Rúnarsdóttir Hefur kynnt sérhestasundlaugar erlendis en sundþykir ein- hver besta hreyfíng sem veö- hlaupahestar geta fengið. litaafbrigðum sem hann prýða. Hugmynd hennar var að leyfa hundaeigendum að láta hunda sína synda í hestasundlauginni einn dag í viku en mikil eftirspurn er eftir slíkri þjónustu. Líkt og hross er talið að hundar hafi gott af því að hreyfa sig og þjálfa í vatni. Sundið svínvirkar Svíar hafa lengi þjálfað íslenska hestinn í sundlaugum og þykir það meðal annars skýra það að þeir baka íslendinga yfirleitt í skeiði á heimsmeistaramótum. Þá má geta þess að Hvinur frá Holtsmúla, heimsmeistari í tölti og sá hestur sem hæstu einkunn hefur hlotið í þeirri grein, er þrautþjálfaður í sundlaug. Gefst ekki upp Ama Rúnarsdóttir vildi ekki ræða stórbrotnar hugmyndir sínar í gær en á henni er að heyra að málinu sé alls ekki lokið. Ama hefur farið gagn- gert til útlanda til að kynna sér hestasundlaugar og hyggst ekki leggja árar í bát þrátt fýrir skilnings- leysi borgaryfirvalda. Hestasundlaug Vel þekkt fyrirbæri erlendis og þykir sjálfsagður hluti af almennriþjálfun hrossa. Samsærið í sjónvarpinu Svarthöfði Svarthöfði hefur næmt auga fýrir samsæmm. Hann var búinn að sjá Baugsmálið út löngu áður en það komst í hámæli. Sérstaklega með rík- islögreglustjórann og þátt hans í þessu öllu. Sá það í augum hans. En burtséð frá því. Nú hefur nýtt samsæri litið dagsins ljós og ætti ekki að fara fram hjá neinum. Því það fer fram í sjónvarpinu á besta tíma. Stöð 2 keypti Loga Bergmann og Ríkissjón- varpið brást við með því að kaupa Þórhall Gunnarsson. Svarthöfði hefur rökstuddan gmn um að Logi og Þór- hallur hafi sammælst um þessa at- burðarás til þess eins að hcékka eigin laun. Ljóst er að laun Loga hafa hækk- að verulega við að fara yfir á Stöð 2 og laun Þórhalls ekki minna við að fara yfir á Rflássjónvarpið. Einfaldast hefði að sjálfsögðu ver- ið að sjónvarpsstöðvamar hefðu skipt á sléttu. Logi og Þórhallur em í svip- uðum gæðaflokki og gætu þess vegna verið tvíburar; dökkir yfirlitum með glampa í augum. En sjónvarpsstöðv- amar fengu ekki við neitt ráðið. Sam- ráð Loga og Þórhalls kom stöðvunum í opna skjöldu, atburðarásin var hröð og fýrr en varði small allt saman eins og ráðgert hafði verið. Á nokkrum klukkustundum vom vistaskiptin í höfii og eftir sátu Logi og Þórhallur með öll tromp á hendi. Að vísu skiptir þetta litlu fýrir sjón- varpsáhorfendur sem horfa jafn mik- ið á Stöð 2 og Rflássjónvarpið. Þórhallur og Logi verða á skjánum þótt hvor á sinni stöðinni sé og annarri en áður. Leikfléttan gekk upp en afliotagjöldin verða að hækka. Svarthöfða er sagt að fléttan hafi verið dýr. En til þess var leikur- inn gerður. Snjallir menn, Logi og Þórhallur. Svarthöfði Hvernig hefur þu það? Ég hefþað bara gott. Kosningarnar gengu vel þótt auövitaö hefði þátttaka Pólverja á Islandi mátt hafa verið meiri og betri,“segir Katrín Guðmundsson, starfsmaður á Þjóðminjasafni Islands og fulltrúi í nefnd vegna pólsku þingkosninganna.„Við erum búin aö ákveða að auglýsa meira fyrir forsetakosningar sem verða i Póllandi 9. októ- ber. Vonandi koma fleiri þá.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.