Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2005, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2005, Side 13
DV Fréttir FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2005 13 iPod nano gallaður Fjöldi eintaka iPod nano hefur reynst gallaður og hef- ur Apple-tölvurisinn boðist til að skipta á nýjum við þá neytendur sem vilja. Þegar spÚarinn var kynntur fyrir nokkrum vikum var litið á hann sem algjöra byltingu vegna smæðarinnar. Síðan kvörtuðu neytendur mikið yfir því að skjár spilarans gaf sig á fyrstu dögunum. Erfitt hjá fylkisstjóra Kathleen Blanco, fylkis- stjóri Louisiana, kastaði mæðinni þegar hún beið eftir Bush Bandaríkjafor- seta á þriðjudaginn. Blanco og Bush flugu í þyrlu yfir þau svæði Louisiana og Texas sem fóru verst út úr fellibyljunum Katrínu og Rítu. í gær varði Blanco viðbrögð sín við Katrínu fyrir þingnefnd í Wash- ington. Þar sem sonurinn lést Foreldrar brasilíska raf- virkjans Jean Charles de Menezes skoðuðu í gær lestarpallinn sem hann var drepinn á í London. Men- ezes var á leið í morgun- lestina í lok júlí þegar óein- kennisklæddir lögreglu- menn töldu hann hryðju- verkamann og skutu hann sjö sinnum í höfuðið. At- vikið var mikið gagnrýnt og er enn í rannsókn. Stærsti maður í heimi Mongólski kinda- hirðirinn Bao Xishun var á dögunum viðurkenndur af Heimsmetabók Guinness sem stærsti maður heims. Hann er 2,36 metrar á hæð. Bao er 55 ára gamall og sést hér á Torgi hins himneska friðar í Peking í Kína. Tvær fjórtán ára gamlar franskar vinkonur frömdu sjálfsmorð á föstudaginn þegar þær hoppuðu niður af sautjándu hæð í blokk í úthverfi Parísar. Frakkar eru skelf- ingu lostnir eftir atburðinn. Hinar fjdrtán ára gömlu Marion og Virginie voru óað- skiljanlegar vinkonur. Þær voru ekki í sama bekk en voru alltaf saman. Þær aðhyUtust „goth“-tískuna, klæddu sig í sömu, svörtu fötin, máluðu sig hvítar og hlustuðu á sömu tónlist. Samkvæmt foreldrum þeirra höfðu þær ekki sýnt þess merki að þær væru líkleg- ar til að fremja sjálfsmorð. i n 9 < 11 ! % 4 - 'f dauo Lögreglan hafði afskipti af þeim fyrir helgi þar sem þær höfðu strokið að heiman en lögreglumaðurinn sem ræddi við þær sagði að þær hefðu ver- ið mjög eðlilegar og ffekar þroskaðar. „Þær vom kannski dálítið uppteknar af dauðanum eins og algengt er með krakka sem aðhyllast þessa tísku en ekkert meira en gengur og gerist með krakka á þessum aldri," sagði lög- reglumaðurinn við enska blaðið The Guardian. Uppteknar af dauðanum Jafríaldrar stúlknanna segja þó að þær hafi borið þess merki að þær væm mjög uppteknar af dauðanum. „Þær töluðu allan tímann um dauð- ann og hvemig þær ættu að fremja sjálfsmorð," sagði ein jafnaldra þeirra. Á bloggsíðu Marion skrifaði hún mikið um ofbeldi og reiði í garð þjóðfélagsins. Ætluðu að koma á óvart Svo virðist sem vinkonurnar hafi skipulagt sjálfsmorðið vel. Þær buðu tveimur strákum upp í íbúð vinar þeirra á föstudaginn. Á meðan strák- amir biðu inni í stofu fóm stúlkumar inn í herbergi til að koma strákunum á óvart. „Þið megið koma inn,‘‘ kall- aði önnur stúlknanna að lokum. Þegar strákarnir opnuðu dyrnar blasti við þeim hræðileg sjón. Vin- konumar stóðu í gluggakistunni, héldust hönd í hönd og brostu til strákanna. Síðan hoppuðu þær út f opinn dauðann. Lífið ekki þess virði að lifa „Það var ekkert sem við gátum gert. Þær bara hoppuðu," sagði annar strákanna í viðtaJi við franskt blað. í lófa annarrar stúlkunnar fundust handskrifuð skilaboð: „Lífið er ekki þess virði að lifa því.“ oskar@dv.is Franskir verkamenn óánægðir með einkavæðingu ríkisins Tóku skemmtiferðaskip í gíslingu Æsileg atburðarás átti sér stað á frönsku skemmtiferðaskipi í gær og fyrradag. Meðlimir stéttarfélags verkamanna á Korsíku tóku risastórt skemmtiferðaskip í sínar hendur og sigldu því frá Marseille til Korsíku. Þannig vildu þeir mótmæla þeirri ákvörðun að einkavæða ferjufyrir- tækið SNCM sem á skipið. Um þijátíu verkamenn réðust á skipið á þriðjudag og yfirbuguðu áhöfnina, sem taldi um fjörutíu manns. Skipinu var lagt við höfríina í Marseille en þeir leystu landfestar og sigldu af stað til Korsíku. Skipið kom til Korsíku í gær en þar beið sérsveit ffanska hersins með íjölda þyrlna. Þær flugu af stað og slepptu um 50 sérsveitarmönnum á skipið. Á meðan stóðu verkamennimir, klöppuðu og blístruðu og gerðu grín að sérsveitar- mönnunum. Þeir voru allir hand- teknir. Skipinu var snúið við og því Þyrlurnar mættar Um fímm- tlu grímuklæddir sérsveitar- menn létu sig siga á skipið til að ná tökum á ástandinu. siglt aftur að strönd Frakklands. Talið er að stéttarfélag verka- manna á Korsfku sé í samstarfi með Frelsishreyfingu Korsíku. Vígalegir Sérsveitar- mennirnir handtóku verkamennino, sem hlógu á meðan.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.