Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2005, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2005, Síða 18
18 FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2005 Sport W Kewell aftur áról Ástralinn Harry Kewell er byrj- aður að æfa að fullum krafti á nýj- an leik en hann hefitr verið með eindæmum óheppinn með meiðsli á sínum ferli. Kewell hefur lengi glímt við meiðsli ínára t f en loks- ins eftir að hann náði sér góðum afþeim / komíljósað haimvarkvið- slitinn ogþurfti að fara í aðgerð vegna þess í sumar. Kewell, sem valinn / var í landsliðshóp / Ástrala í vikunni, mun þó ekki bytjaaðleika með aðailiði Liverpool fyrr en fyrsta lagi eftir tvær vikur. Hann verður á vara- mannabekk varaliðs Liverpool í vikunni og mun fara hægt af stað. 1 I I Diaz orðaður við Mónakó Argentínumaðurinn Ramon Diaz, sem á sínum tíma var félagi Diego Maradona í framlínu argentíska landsliðsins, er nú sterklega orðaður við knatt- spyrnustjórastöðuna hjá Monakó. En Didier Deschamps sagði ný- lega upp störfum hjá félaginu, þax sem ilia hefur gengið hjá félaginu nú í upphafi leiktíðar. Diaz var knattspymustjóri Oxford United en hann var rekinn þaðan vegna slaks árangurs. Margir fleiri hafa verið orðaðir við Monakó að und- anfömu og má þar nefha Paul Le Guen, Javier Irureta og Alberto Zaccheroni, fyrirverandi knatt- spyrnustjóri AC Milan. En Diaz þykir líklegastur þar sem hann þekkir ágætlega til hjá félaginu eftir að hafa starfað þar sem ung- lingaþjálfari á árum áður. KSÍ sektað um hálfa milljón Knattspymusamband íslands var sektað um 500 þúsund ís- lenskar krónur vegna fjölda ánúnninga sem A-landslið karla fékk í tveimur síðustu leikjum í undankeppni heimsmeistara- mótsins í knattspymu. Fjórirleik- menn íslenska liðsins fengu að líta gula spjaldið í leiknum gegn Króatíu á Laugardalsvelli og í leiknum gegn Búlgaríu ' voru fimm leikmenn B áminntir. Fyrirþessar 7 níu áminningar var KSÍ sektað um 500 r þúsund krónu. Eiður Smári Guðjohnsen, iandsliðsfyrir- iiði, og Her- mann Hreið- arsson vom meðal þeirra fimm sem áminntir vom f leiknum gegn Búlgaríu og fi verða þeir þvf í bannifleiknum gegn Svíþjóö í í næsta mánuði. Æk Stórþjálfarinn Alfreð Gíslason hjá Magdeburg gagnrýndi íslenska U21 árs landslið- ið fyrir úthaldsleysi á HM í Ungverjalandi í síðasta mánuði. Viggó Sigurðsson landsliðsþjálfari gefur ekki mikið fyrir gagnrýni Alfreðs. Viggó segir bara bulla Alfrea „Ég held að menn eins og Alfreð eigi að huga að sínu eigin liði en ekki vera að gefa útyfirlýsingr frá einhverjum mönnum sem hugsan- lega hafa verið einhvers staðar." Viggó Sigurðsson, þjálfari U21 árs og A-landsliðs íslands, er mjög óhress með fullyrðingar Alfreðs Gíslasonar, þjálfara þýska stórliðsins Magdeburg, í DV í gær þar sem Alfreð segir að ís- lenska ungmennalandsliðið hafi ekki verið í líkamlegu ástandi til að komast í gegnum heimsmeistaramótið í Ungverjalandi í síð- asta mánuði og það sé ástæðan fyrir því hversu liðinu gekk illa. Alfreð sá ekki mótið sjálfur vegna anna en sendi aðstoðarþjálfara sinn til Ungverjalands og fékk skýrslu frá honum um frammistöðu íslenska liðið. „Ég varð bara var við að þessi að- stoðarmaður Alfreðs hafi bara séð einn leik með íslenska landsliðinu. Ég commentera ekki á svona bull, við æfðum mjög vel og komum vel undirbúnir til leiks," sagði Viggó Sig- urðsson £ viðtali við DV Sport, að- spurður um viðbrögð hans við gagn- rýni Alfreðs. íslenska U21 árs landsliðið varð í 9. sæti mótsins, vann Kongó, Chile, Suður-Kóreu og fsrael en tapaði fyrir Spáni, Þýskalandi, Egyptalandi og Danmörku. Þessir sömu strákar urðu Evr- ópumeistarar með 18 ára landsliði íslands á sínum tíma og því voru gerðar mikl- ar væntingar til liðsins fyrir HM. „íslensku leikmennimir voru gjörsamlega búnir eftir 10 mínútna leik. Þetta hlýtur að vekja upp spurningar hvað er að gerast á íslandi. Úthaldsleysi hefur ekki háð okkur fram að þessu," sagði Alfreð í DV í gær. eigi að huga að sínu eigin liði en ekki vera að gefa út yf- irlýsingar frá ein- hveijum mönn- um sem hugs- anlega hafa ver- | ið einhvers stað- . ar. Ég hef ekki hugmynd um hvað hann er að tala. Landsliðið var í toppformi á þessu móti í Ungverjalandi. Ég hef farið í gegnum margan undirbún- inginn undanfarin 20 ár og það var ekki úthaldsleysi sem var vandamál- ið í Ungverjalandi," sagði Viggó. Óheppnir? En hvað fór þá úrskeiðis í Ung- verjalandi? „Ég er búinn að fara í gegnum það. Við vomm í erfiðum riðli. Við töpuðum naumlega fýrir Spán- verjum og Þjóðverjum og það er skýringin á því sem á eftir kom. Þetta vom auðvitað gríðarleg vonbrigði og langt fyrir neðan okkar væntingar," sagði Viggó. En getur verið að Alfreð, sem hefur . gert Magdeburg bæði að Þýska- lands- og Evrópumeisturum, sé að gagnrýna þjálfunaraðferðir almennt á Islandi en ekki bara hjá Viggó? „Það voru ekki þjálfarar félagslið- anna sem sáu um undirbúning landsliðsins. Sá undirbúningur fór fram í sumar, þegar tímabilið var búið á fsiandi," sagði Viggó. Næsta verkefni Viggós Sigurðs- sonar sem landsliðsþjálfara er með A-landsliðinu í janúar en þá fer fram úrslitákeppni Evrópumótsins. ís- land olli verulegum vonbrigðum í úrslitum HM fyrr á þessu ári þegar landsliðið varð í 15. sæti, sem er ein- hver lélegasti árangur íslenska landsliðsins á stórmóti frá upphafi. thorsteinngunn@dv.is Ekki hugmynd um hvað hann er að tala Viggó er hins vegar á allt öðm máli og skilur ekki hvað Alfreð er að fara. „Ég held að menn eins og Alfreð Þjálfarar deila Viggó Sigurðsson landsliðsþjálfari gefurlítið fyrir gagnrýni eins virtasta þjáifara Evrópu, Alfreðs Gíslasonar, sem sagði U-21 árs lið Viggós ekki vera í neinu formi. Viggó segir að Alfreð sé að bulla. íslenski hópurinn í leikjunum gegn Pólverjum og Svíum: Eiður Smári Landsliðsþjálfaramir Ásgeir Sig- urvinsson og Logi Ólafsson tilkynntu í gær íslenska landsliðshópinn sem spilar við Póiveija og Svía 7. og 12. október næstkomandi. Eiður Smári Guðjohnsen og Hermann Hreiðars- son em ekki hópnum en þeir verða í leikbanni gegn Svíum í undankeppni HM og vom því ekki valdir í leikinn gegn Pólveijum sem er liður í undir- búningi liðsins fyrir leikinn í Stokk- hólmi. Þeir Logi ogÁsgeir þurfa því að út- nefna nýjan fyrirliða því Eiður Smári og Hermann hafa verið aðal- og vara- fyrirliði liðsins. Þrír leikmenn í ís- lenska hópnum hafa áður borið fýrir- liðabandið en það em þeirÁmi Gaut- ur Arason, Tryggvi Guðmundsson og Kristján Finnbogason. Ámi Gautur gæti þó misst af leiknum því kona hans á von á bami og Hermann ekki með á þessum tíma og ef svo fer að Árni Gautur verði ekki með þá mun valið standa á milli Daða Lámssonar, markvarðar FH og Fjalars Þorgeirs- sonar, markvarðar Þróttar. Alls em þrír leikmenn í íslenska hópnum sem leika í sænsku úrvals- deildinni og spila því á heimavígstöðum. Þetta em þeir Sölvi Geir Ottsen, sem er eini nýliðinni í hópnum og Kári Árnason, sem leika með Djurgárden og Gunnar Heiðar Þorvaldsson, sem leikur með Halm- stad og er nú markahæsti leik- maðurinn í sænsku úrvals- deildinni með 13 mörk í 20 leikjum. Árni Gautur gæti þó misst afleiknum því kona hans á von á barni á þessum tíma Nýr fyrirliði? Árni Gautur Arason er líklegastur til þess að bera fyrirliðabandið í leikjunum við Pólverja og Svía. Það gæti þó farið svo að hann yrði ekki með. DV-mynd Pjetur LANDSLIÐSHOPURINN mm Landsliðsþjálfararnir Ásgeir Si<_ vinsson og Logi Ólafsson tilkynntu í gær íslenska Jandslir spilarvið Pólverja og Svía. Markmenn: Árni Gautur Arason Válerenga IF Kristján Finnbogason KR Aðrir leikmenn: Brynjar Björn Gunnarsson Reading Arnar Þór Viðarsson Lokeren Tryggvi Guðmundsson FH Heiðar Helguson Fulham Auðun Helgason Indriði Sigurðsson Gylfi Einarsson Kristján Örn Sigurðsson Veigar Páll Gunnarsson Stefán Glslason Grétar Rafn Stéinsson AZ Alkmaar Kári Árnason Djurgárdens IF Gunnar H. Þorvaldsson Halmstad Jóhannes Þór Haröarson Start Bjarni Ólafur Eiríksson Valur Sölvi Geir Ottesen Djurgárdens IF

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.