Símablaðið

Volume
Main publication:

Símablaðið - 01.11.1931, Page 21

Símablaðið - 01.11.1931, Page 21
SÍMABLAÐIÐ 43 Fyrlr 25 árum. Færeyjar og ísland. Eins og flestum mun kunnugt komust Fær- eyjar í símasamband við umheiminn sama sumarið og ísland, en aðeins fyr um sumar- ið, eða 26. jiili 1906. Um símasamband til þessara fjarlægu eyja liafði mikið verið rætt og ritað um langan tíma. Og einn þeirra er til máls tóku var Georg Brandes. Fer hér á eftir kafli úr grein er hann rit- aði 1905, um enskuhættuna fyrir Færeyjar. Kemur það einnig fram í greininni, að til orða hefir komið að leggja sæsímann til Bergen. „ . .. . Um langa tíð liafa Færeying- ar þráð þá stund er þeir gæti sent fyrsta símskeytið. En þó liafa aðrir þráð sæsímann enn meir. Það eru ensku togarafélögin, sem myndi hafa geisilegan hagnað af símasambandi við ísland og Færeyjar, og styrkja að- stöðu sina á eyjunum enn meir. Þeir menn, sem berjast fyrir sjálf- stæði Færeyja, og sambandi þeirra við Danmörku, sjjyrja livers vegna enskir útgerðarmenn, livers vegna enskur iðnaður, verslun og viðskifti eigi að auðgast á sæsímanum. Þeim hefir ekki verið það dulið, að verslun- arviðskifti Færeyja smátt og smátt iiverfa frá Danmörku til Englands. Hin síðustu ár liafa hafist nokkur verslunarviðskifti við Noreg, en þar virðast vera örðugleikar i vegi, og þessir menn óttast, að þau liverfi al- gerlega, er sæsímasambandið er kom- ið. Því hin fyrirhugaða lega sæsímans muni ólijákvæmilega draga viðskiftin suður á hóginn, til Englands. En fyrst ]>að nú er danskt félag og danska rik- ið sem kosta sæsimalagninguna, því þá að leggja hann til Englands? Væri ókleift að leggja liann til Jótlands- skaga? Eða austur á við, til Bergen? Sú leið er ekki mikið lengri en til Englands. í Færeyjum eru menn þeirrar skoð- unar, og telja það víst, að hið beina símasamhand við England geri eyj- arnar fjárhagslega háðar Englending- um, dragi þær smám saman inn undir yfirráð þeirra. Að Islendingar óttist ekki liið beina samhand við England stafi af því, að þeir eigi þann þjóðernislega mótstöðu- kraft er Færeyinga skorti enn þá. Vegna þessa ótta hefir hinn færeyski ])jóðþingsmaður ekki einungis rætt málið við ráðandi menn á Islandi, en einnig farið til Kristjaníu til að kvnna sér undirtektir norsku stjórnarinnar því viðvíkjandi, að leggja Islands-sæ- símann til Noregs. Eg neita því ekki, að mér virðist þessi ótti Færeyinga full mikill. Eng- lendingar myndi geta haft símasam- hand við Færeyjar, hvaða leið sem sæ- síminn lægi. Hvort símskeyti kemur nokkrum mínútum fyr eða seinna til skila, liefir í fæstum tilfellum mikla þýðingu. En væri nú liallast að þráðlausu sambandi, væri öll þessi vandamál úr sögunni.“ Marseillaisen frá spönskum stöðvum. Þegar spanska lýðveldið var stofnað hættu spanskar útvarpsstöðvar að kveðja með spönskum hirðmars, en spila i þess stað Marseillaisen, þar til Spánn hefir eignast nýjan þjóðsöng.

x

Símablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.