Símablaðið

Volume
Main publication:

Símablaðið - 01.11.1931, Page 27

Símablaðið - 01.11.1931, Page 27
SlMABLAÐ IÐ 49 Suinarleyfin. Um langt skeið hafa sumarleyfin verið á dagskrá hjá símamönnum. Margsinnis liefir verið sýnt fram á það, að starf afgreiðslufólksins við símann er þess eðlis, að það þarf að hafa góð not af sumarleyfunum, eigi það að halda heilsunni. í nokkur ár liafa sumarleyfin verið 2 vikur. En oft vill það svo verða, að símafólkið kemur jafn þreytt að starf- inu aftur. Veðráttan er oft þannig, að mönnum verða engin not að sumar- levfinu. Uað hefir líka verið hent á það, að islenska símafólkið hefði þörf fvrir lengra leyfi en starfssystkini þess í flestum löndum. Veldur því hinn langi vetur. Og fyr eða siðar hlýtur að reka að því, að tandssíminn sór að heilsa og starfsþrek starfsfólksins krefst þess, að leyfin verði lengd. Við því væri ekkert að segja, þó nokkuð af fríthnanum væri að vetri til. Tíðkast það víða erlendis. Og væri hægt að örfa iþróttalíf og fjallaferðir meðal símafólksins að vetri til, myndi vetrarleyfin fullkom- lega ná tilgangi sínum. Starfsfc'dkið liér i Reykjavik hefir nú eignast dvalarheimili í grend við Reykjavik, en þó nægilega langt burtu til þess að þar er hægt að iðka vetrar- iþróttir, — skíða- og skautaferðir; og þess er að vænta, að bráðlega verði fríunum svo fyrir komið, að þar geti starfsfólkið einnig dvalið um tíma að vetrinum. Hér i blaðinu hefir áður verið gerð- ur samanburður á fríuni íslenska símafólksins og símafólks í nokkrum öðrum löndiun. Hér á eftir skal það gert, til fróð- leiks, nokkru nánar. Búlgaría: Þar er sumarleyfið 30 dagar. Auk þess geta starfsmenn fengið frí, alt að sjö dögum, með fullum launum, t. d. til að sitja stéttarþing, og jafnvel fundi i íþróttafélögum og öðrum menning- arfélögum. England: Árið 1920 voru sett lög um kjör opin- l)erra starfsmanna þar í landi. Frí- timinn er eftir þeim 18—30 dagar, þó eru helgidagar ekki taldir með. Venju- legast er friið gefið að sumrinu, en sé því skift, er meiri liluti þess að sumr- inu. Ennfremur fá menn alt að 6 daga frí er þeir gifta sig eða við fráfall ná- komins ættingja, og í öðrum sérstök- um tilfellum. Finnland: Samkvæmt reglugerð frá 29. des. 1922 fá menn 14 frídaga eftir eins árs þjónustu, þrjár vikur eftir 5 ára þjón- ustu og 30 daga eftir 10 ára þjónustu- aldur. Fríinu má skifta. Frakkland: Með reglugerð frá 22. maí 1925 var leyfistíminn ákveðinn 3 vikur, þó er ekki haldið fast við það ákvæði, held- ur oft veitt mánaðar fri. Einnig fá menn nokkurra claga fri ef sérstakar ástæður eru fyrir liendi, líkt og í Eng- landi, eða til að nota sér borgaraleg réttindi. Holland: Þar er frítíminn 12—24 virkir dagar.

x

Símablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.