Símablaðið - 01.11.1931, Qupperneq 30
52
SlMABLAÐIÐ
Sumarleyfin og frídagana þarf að
taka til rækilegrar yfirvegunar, og
semja fastar reglur þar um.
Að það liefir ekki þegar verið gert,
má símafólkið sjálfu sér um kenna.
Deyfð þess og afskiftaleysi af félags-
málum, er þess valdandi, og ekkert
annað. Gæsirnar fljúga ekki steiktar
upp í mann.
Það ætti símafólkinu að fara að
lærast iivað af hverju.
A. G. Þ.
Ny tekjugrein.
Þakkarskeyti.
í Þýskalandi hefir verið stungið upp
á því, að síminn leyfði svokölluð þakk-
arskevti. Væri það á þann liátt, að
prentuð yrði skevti með viðeigandi
texta, t. d. þakklæti fyrir lieillaskeyti
á brúðkaupsdaginn, afmælisdaginn o.
s. frv. eða fyrir auðsýnda samúð.
Þetta væri vel þess vert, að taka til
athugunar einnig liér á landi. Myndi
þessi nýjung auka tekjur símans nokk-
uð, og á þessum krepputímum er liend-
inni ekki sláandi móti nokkru, er gef-
ur tekjur í ríkissjóð, jafnvel þó smá-
vaxnar sé.
Heillaskeyti eru nú orðin stór liður
í viðskiftum símans. Við giftingar og
fermingar, eða önnur hátíðleg tæki-
færi, fær sami maðurinn oft svo tug-
um, og jafnvel hundruðum skiftir af
þeim. Og það er orðin föst vcnja, og
kurteisisskylda, að senda þakkarkort
fyrir. Það er þá talsvert verk, fyrir-
höfn og líka nokkur kostnaður. Marg-
ir mundu heldur kjósa, væri þess kost-
ur, að láta símann annast það, gegn
vægu gjaldi. Hann myndi þá afhenda
símanum lista yfir þá, er þakkarskeyti
skyldi senda til, og velja textann.
Smám saman myndi þessi þakkarað-
ferð verða föst venja. En vitanlega
mætti gjaldið ekki verða neitt nærri
því, sem nú er fyrir venjul. skevti.
Eyðublöðin vrði að prenta í stóru upp-
lagi, svo að kostnaðurinn yrði ekki
mikill.
Aðalatriðið er, að þessu yrði hagan-
lega fvrir komið, svo að almenningur
teidi það þess vert að notfæra sér það,
og' að það yrði nokkur tekjugrein fyr-
ir landssímann.
Miimingarsjóíur
Crísla J. Ólafsonar.
Það var ætlunin að birta í þessu
blaði skipulagsskrá fyrir minningar-
sjóðinn, en því miður gat það ekki
orðið. Verður það væntanlega hægt i
næsta blaði. Verður hér þá einnig gerð
skilagrein fyrir gjöfum í hann.
Símablaðið vill geta þess, að gefnu
tilefni, að gjafir i minningarsjóðinn
eru ekki einskorðaðar við símamenn,
en gjöfum frá vinum Gisla sál. utan
símans mvndi einnig tekið með þökk-
um.
Kalundborgarstöðina
ætla Danir að stækka í náinni framííð, en
hve mikið, mun ekki enn ákveðið.
Bylgjulengdin verður hin sama áfram.