Símablaðið - 01.11.1931, Page 35
SÍMABLAÐIÐ
57
stöðu sinnar til að opna augun á fjár-
veitingavaldinu.
Launalögin eru orðin til skammar.
Eftir þeim taka laun allir elstu og
reyndustu starfsmenn þjóðfélagsins.
En utan þeirra hafa um flciri ár sprott-
ið upp eins og gorkúlur hálaunaðir
starfsmenn með allskonar titlum, „full-
trúar" og „skrifstofustjórar“, með þús-
unda króna árslaun fram vfir menn í
sambærilegum stöðum, er fá laun eftir
launalögunum. Það óréttlæti er við
þetta skapast, og sú gremja er það
veldur, er nóg til þess, að hver borg-
ar ætti að heimta endurskoðun launa-
laganna.
Nýlega hélt Félag símamanna fund
til að ræða lækkun dýrtíðarupphótar-
innar. Var sá fundur óvenjulegá vel
sóttur, og sýndi hve alvarleg launa-
kjörin nú eru orðin. Var kosin nefnd
til að taka málið til rækilegrar vfir-
vegunar, og er vonandi, að hún geti
unnið í samráði við landssimastjór-
ann, og að það starf heri góðan ár-
angur.
X.
Úr símaskránni 1906.
„Talstöðvar eru í:
Pósthússtræti 2 (á miðstöðinni),
Túngötu 2 (á Café „Uppsalir"),
Kolasundi 1 (á Café ,,Klampenborg“),
Hverfisgötu (á Café ,,Norðurpóllinn“).
Símtal þaðan við bæjarmenn, þá er talfæri
hafa, kostar 10 aura.“
Pað lítur helst út fyrir að einn liðurinn í
starfi Bæjarsímans hafi þá verið að „reka
kaffihús“.
Stéttafrlðnr eða stéttabarátta.
Heimurinn er altaf að versna, hon-
um fer aftur með hverjum degi sem
líður. Þannig farast mörgu eldra fólki
orð og einnig þvi, sem vngra er, þótt
það standi á öðru stigi aldurs og
þroska. Og svona liefir það altaf ver-
ið, hver kynslóðin eftir aðra, sú, sem
liefir verið að kveðja, hefir ekki getað
skilið þá yngri. Þess vegna hefir hún
kveðið upp þennan harða dóm. Hún
skilur ekki einföldustu atburði hvers
dags sem er að liða. Því þegar ómar
frá baráttu hinna undirokuðu herast
til eyrna liennar, þá lokar hún augun-
um og skilur ekkert i þessum látum.
Það eru óþarfa æsingar, sem sanna
spádóm hennar um það, að heimur
versnandi fer. Og þegar kreppur
koma, sem leiða af sér lirun og enn þá
meiri örbirgð, þá trúir liún best skýr-
ingum þeirra, sem setja kreppurnar i
samband við dökkva blctti á vfirborði
sólar.
En sumum af hinni yngri kvnslóð
fer öðruvísi, þeim, sem skilja það. að
sá friður, sem hin eldri kvnslóð og
fylgjendur hennar krefjast, er ekki i
samræmi við þær brevtingar, sem
orðnar eru á öllum sviðum. Og þeim
skilst lika, að stéttafriðurinn leiðir til
dauða fyrir allar stéttir. en að það er
hlutverk stéttabaráttunnar að skana
sterka. starfsama og frjálsa stétt. Ef
menn hætta að gera kröfur til lífsins,
há er voðinn vis, þvi hver og einn, sem
lætur skcika að sköpuðu í beim efn-
um. mun uppskera það er hann sáði.
Það er eðli lifsins að hinn sterki sigr-
ar hinn veika. Til þess þarf ekkert ilt