Símablaðið - 01.11.1931, Síða 38
(50
SÍMABLAÐIÐ
Umburðarbréf
Nr. 18, 18. maí. — Gæsliistöðvarnar og R,-
umdæmi. Frá 1. júní n.k. verða landssíma-
stöðvarnar Teigur og Múlakot í Fljótshlíð 2.
fl. alt árið.
Nr. 19, 30. maí. — F'rá deginum i dag er
landssimastöðin í Þrastalandi opnuð aftur
sem 1. fl. B stöð.
Nr. 20, 1. júní. — Gæslustöðvarnar. Lands-
símastöðin Sandlækur verður lokuð fyrst um
sinn frá deginum i dag að telja.
Nr. 21, 1. júní. — Gæsiustöðvarnar og R,-
umdæmi. Frá deginum i dag og fyrst um
sinn verður stöðin á Þingvöllum 1. fl. B.
Nr. 22, 4. júní. — í dag er opnuð 3. fl.
landssímastöð á Grýtubakka í Grýtubakka-
hreppi í Eyjafirði. Merki: Grb. Talsímagjöld
fyrst um sinn: Grb—Ho, Lfs og Gk. 35 aur-
ar, annars eins og Gk. Gæslust. Akureyri.
Nr. 23, 1. júlí. — Gæslustöðvarnar. Frá og
með deginum í dag er landssímastöðin á
Hjalteyri 3. flokks stöð alt árið.
Nr. 24, 2. júlí. — Gæslustöðvarnar. í dag
er opnuð 3. fl. landssímastöð í Ljárskógum
í Laxárdalshreppi, Dalasýslu. Merki: Ljá.
Talsímagjöld fyrst um sinn ])essi: Ljá—Hjh,
Ásg og Bdl 35 aurar, Ljá—Bug 100 aurar.
Annars sömu gjöld og frá Hjh. Gæslustöð
Borðeyri.
Nr. 25, 18. júlí. Gæslustöðvarnar og R-um-
dæmi. — í dag eru opnaðar 3. fl. landssíma-
stöðvar á Borg í Borgarhreppi og Arnarstapa
á Mýrum. Merki Borg og Astp. Talsímagjöld:
Borg—Astp—Bg 35 aurar, Borg og Brúarfoss
50 aurar. Annars sömu gjöld og frá Bg. F'rá
Astp—Lgf og Borg 35 aurar, Astp—Bg 50
aurar. Annars söinu gjöld og frá Lgf.
Nr. 26, 27. júlí. Gæslustöðvarnar og' R-um-
dæmi. — I dag eru opnaðar 3. fl. landssíina-
stöðvar á Narfastöðum í Reykjadal og Skútu-
stöðum við Mývatn. Merki í sömu röð Nst
og Skút. Gæslustöð Akureyri. Talsímagjöld
fyrst um sinn sömu og frá Breiðumýri.
Nr. 27, 27. júlí. — í dag er opnuð 3. fl.
landssímastöð á Oddsstöðum í Lundarreykja-
dal. Merki Odd. Gæslust. R. Talsimagjöld
fyrst um sinn: Odd—Lund—Skld—Brl—Fit
35 aurar. Annars somu gjold og frá Lundi í
Lundarreykjadal.
Nr. 28, 28. júlí. Gæslustöðvarnar og R-um-
dæmi. —• Frá og með 1. ágúst verður stöðin
á Skútustöðum við Mývatn 2. fl. landssíma-
stöð. Tilkynnist.
Nr. 29, 1. ág. — Mánudaginn 3. ágúst verð-
ur afgreiðslutími landssimans á öllum stöðv-
um, sami sem sunnudagur væri.
Nr. 30, 15. ág. — Gisli Ólafson landssíma-
stjóri andaðist i nótt í Kaupmannahöfn.
Nr. 31, 17. ág. ■— Að gefnu tilefni er hér
með lagt fyrir stöðvarnar að innheimta gjöld
fyrir símtöl á sendistöðinni. Þó má skrásetja
símtöl sem útfarin frá viðtökustöðinni, ef
símanotandi sjálfur óskar eða hefir samið
sérstaklega um það við hlutaðeigandi stöðv-
arstjóra.
Nr. 32, 19. ág. — Stjórnarráðið hefir sett
mig landssímastjóra. G. J. Hliðdal.
Nr. 33, 3. sept. Stövarnar 1. fl. A og B. —
í tilefni af greftrun Gísla J. Ólafson lands-
símastjóra verður öll símaafgreiðsla stöðv-
uð i 5 mínútur kl. 13,00 til 13,05 í dag.
Nr. 34, 8. sept. — í dag verða opnaðar 3.
fl. landssímastöðvar á Efrimýrum i Engi-
hlíðarhreppi, gæslustöð Borðeyri, og Álfadal
við Ingjaldssand i Mýrahreppi. Gæslustöð
ísafjörður. Merki í sömu röð: Emý og Afd.
Talsímagjöld fyrst um sinn þessi: Emý—Hös
Sey B1 35 aurar, Emý—Ska 50 aurar, annars
sömu gjöld og frá Höskuldsstöðum. Frá Afd
—Kjb, Fl, Ho 50 aurar, Afd—ís, Hd, Gml, Þi
og Np 100 aurar. Annars sömu gjöld og Flat-
eyri.
Nr. 35, 8. sept. — Landssímastöðin Þrasta-
lundur er lokuð frá deginum i dag.
Nr. 36, 10. sept. Til stöðvanna milli Víkur
og Hóla. — Suðurlandslínunni hefir nú ver-
ið komið í betra lag en áður til langsamtala
milli suðvesturlandsins og Austfjarða, og eru
stöðvarnar, sem á línunni eru milli Víkur og
Hóla, beðnar að stilla sér út af línunni utan
afgreiðslutima þeirra og forðast alla af-
greiðslu á öðrum timum nema nauðsyn
krefji. Vænti eg þess eindregið að stöðvarn-
ar hjálpi á þenna hátt til þess að linan megi
koma að sem mestum notum og gefa sem
mestar tekjur, enda gríðarmiklu fé verið
kostað til hennar.
Nr. 37, 11. sept. — Vegna húsbruna á Hóli
í Hvammssveit er stöðin þar lokuð fyrst um
sinn.