Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.01.1940, Blaðsíða 18

Símablaðið - 01.01.1940, Blaðsíða 18
2 S í M A B L A Ð 1 Ð vík og Hafnarfirði, en þetta tel ég hið þýðingarmesta fyrir þjóðlífið. Mætti vitanlega rita mikið mál um livern þessara einstöku liða. Þegar fram líða stundir, mun þetta þrent: sæsímasambandið, talsam- bandið við útlönd og bátastöðvarnar, þykja merkilegustu áfangarnir, og um leið þeir, sem marka dýpstu sporin í framþróun þjóðlífsins og atvinnuveg- anna. Mönnum fundust heiðarnar íslensku strax breytast, er síminn var strengdur yfir þær 1906, og hægt var í dimmviðrum að rekja sig' áfram, staur frá staur, yfir þær. Þó var þetta ekki nema lítilfjörleg byrjun hjá því, sem nú er að gerast við það, að síminn smátt og smátt kemur inn á heimilin og fylgir mönnum út á sjóinn. Sjómennirnir eiga hauk i horni, þar sem loft- skéyta- eða talstöðin er, en á hinum vígstöðvunum er mannfáum sveitabónd- anum símaþægindin ómetanleg. Hvergi hefir síminn átt meira erindi, og hvergi hefir síminn orðið til eins mikils góðs, eins og hjá vorri einangruðu og strjálhúandi þjóð, þar sem allar aðrar samgöngur eru svo örðugar og ófullkomnar. I símanum reka menn öll sín erindi. Hann brúar fjarlægðirnar, gerir vistlegra og bet- ur unandi i sveitum landsins, hann er lifæð verslunar og athafna í kaup- túnunum og' liann eykur afkomumöguleikana og örvggið á sjónum. Framtiðin? Hún er hjört og markmiðið augljóst: Sími á hvern bæ á landi og í hvern bát á .sjó! Þótt uppfylling þessa markmiðs liggi í framtíð- inni, eygjum vér það raunverulega nú þegar. Vér verðum að lialda sömu braut áfram, en þurfum þó sífelt að gæta þess, að alt, sem landssímanum viðkemur, jafnt gamalt sem njdt, fullnægi kröfum tímans, m. ö. o. að hin alþjóðlega þróun í símamálum fari ekki fram hjá oss. Landssímans bíða því vissulega mörg verkefni í framtiðinni, þótt ýms þeirra séu oss enn að meira eða minna leyti hulin. Þessum fáu línum mínum vil ég svo ljúka með hestu árnaðaróskum til Félags ísl. símamanna, sem varð 25 ára hinn 27. febr. siðastl., og' til Síma- blaðsins, sem nú er jafngamait. Félög' og' blöð hafa það fram yfir dauðlega menn, að þau þurfa ekki að eldast, geta lialdið áfram að vera sí-ung, og þeim heyrir því framtíðin til í ríkari mæli en einstaklingnum. — Það er von min og ósk, að F.I.S. og Símablaðið mæti verkefnum framtiðarinnar með skilningi og' drengskap og með heill alþjóðar fyrir augum, en það verður að síðustu einnig lieill einstaklingsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.