Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.01.1940, Blaðsíða 26

Símablaðið - 01.01.1940, Blaðsíða 26
10 S I M A B L A Ð I Ð inn í mvrka nótt, þar sem mæta þeim villimenska og hörmungar. Ekki getur hjá því farið, að þungir skuggar hennar falli á okkar fátæku þjóð, þó fjarlæg sé að vegalengd hin- um mikla hildarleik. Fyrst og fremst ber okkur þá að beita félagssamtök- um okkar sem hlekk í viðleitni þjóð- félagsins að standa sem einn maður gegn aðsteðjandi vandræðum. — En einhvern tíma lýsir af degi. Og í dögun hins nýja tima, látum við hendur standa fram úr ermum í félagsmálum okkar, og — sem góðir borgarar — í því starfi að reisa við það i þjóðfélagi okkar, sem hrunið kann að liafa í stormi hinnar líðandi nætur. Formenn félagsins hafa verið: Ottó B. Arnar loftskeytafræðingur, 1915, 1916 og 1917. Gunnar Schram umdæmisstjóri A., 1918, 1919, 1920, 1921, 1922 og 1923. Sigurður Dahlmann umdæmisstjóri ís., 1924. Gunnar Bachmann símritari R., 1925 og 1926. Guðmundur Sigmundsson loftskeytamaður R., 1927, 1928, 1929 og 1930. Halldór Skaptason bókari, 1931. Andrés G. Þormar aðalgjaldkeri, 1932, 1933, 1934, 1937, 1938 og 1940. Guðmundur Jóhannesson innh.gjaldkeri, 1935 og 1936. Theodór Lilliendahl stöðvarvörður, 1939. NÝ SAMVINNA. Á yfirstandandi vetri hafa formenn stétta- félaga opinberra starfsmanna haft mikla samvinnu um að gæta hagsmuna þessara stétta gagnvart rikisstjórn og Alþingi við ákvörðun verðlagsuppbótarinnar, og hefir síst veitt af því. Löngun einstakra þingmanna og áhrifa- manna til að þjarma að þessum stéttum hefir verið æði áberandi undanfarið. Og þegar þetta er ritað, (16./4.) er rikið ekki enn farið að greiða sínum starfsmönnum neina verðlagsuppbót, þó það fyrir löngu sé búið að sklyda flesta aðra vinnuveitend- ur til þess. NTú loksins er von um, að þetta mál verði leitt til lykta á næstunni, án þess að opin- berir starfsmenn verði afskiptir, og má hik- laust þakka það samvinnu formanna félag- anna Er þess að vænta, að hér sé um að ræða upphaf að viðtækari samvinnu, því að und- anfarin ár haf fært þessum stéttum heim sanninn um það, að ekki er vanþörf á henni. Það skal tekið fram hér, eins og oft hef- ur verið bent á hér í blaðinu, að í þjón- ustu ríkisins eru bæði þarfir og óþarfir starfsmenn, að starfsmannahald rikisins er orðið því ofurefli, — en um það má ríkið kenna forráðamönnum sinum, — og þeim einum. En hinir nauðsynlegu starfsmenn hins opinbera hafa enga ástæðu til þess að vera si og æ fótaþurka lýðskrumara, sem telja sér það vænlegt í valdabrölti sínu, að gylla kjör þeirra, — vekja til þeirra öfund annara stétta og tortryggni nm skyldurækni þeirra. Opinberir starfsmenn hafa ekki skapað sér neinn vettvang, þar sem staðið er á verði fyrir þá. Ef til vill er með þeirri samvinnu, sem hér er drepið á, byrjað á myndun hans.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.