Símablaðið - 01.01.1940, Page 20
S í M A B L A Ð I Ð
í svo fjölmennri stétt skapast mörg við-
fangsefni, — mörg vandamál.
Símamannastéttin hefur verið, og er, lág-
launastétt sem heild.
Um áratugi hefur hún þurft að glíma við
afleiðingar þess hugsunarháttar, er talsíma-
konustarfið var talið dægrastytting fyrir dæt-
ur embættismanna og annara efnamanna —
og launað þar eftir. Þessi hugsunarháttur
hafði jafnvel áhrif á launakjör við þau störf,
er smám saman bættust við, og falin voru
karlmönnum.
Á þessu sviði hefur starf félagsins verið
að miklu leyti, eins og gefur að skilja. Og
mér er mikið gleðiefni, á þessum timamót-
um, að geta litið til baka yfir hið ákjósan-
legasta samstarf við alla yfirmenn stofnun-
arinnar, á öllum tímum, um að stuðla að
því, að þessi stétt geti búið við þau launa-
kjör, er henni hæfa, og þjóðfélagið hefur ráð
á að veita henni.
Sérstaklega vil ég geta þess um núver-
andi forstjóra stofnunarinnar, hversu ant
hann hefur látið sér um að bæta öll starfs-
skilyrði símafólksins, réttindi þess og önn-
ur kjör., — svo og persónulega að styðja
okkur í því erfiða viðfangsefni, að koma
okkur upp vistlegum dvalarheimilum á hin-
um fegurstu stöðum, og sem þið sjáið mynd-
ir af hér á veggjunum.
En það hefur verið annað aðalviðfangs-
efni félags okkar, og því erfiðara, sem ekki
er hjá okkur um auðugan garð að gresja.
í þessum málum hefur símastjórnin og
símastéttin í raun og veru haft sama sjón-
armið. Og ég vænti þess, að svo verði ætíð.
En, eins og ég hefi áður tekið fram, þá
gefur að skilja, að í svo fjölmennri stofn-
un komi svo að segja daglega fyrir við-
fangsefni, þar sem sjónarmiðin eru ekki hin
sömu.
Við eigum stundum hágt með að skilja
það, að stjórn símans velur aðrar leiðir en
þær, sem við teljum heppilegar, — tekur
aðrar ákvarðanir en þær, sem við teljum
réttar.
Og símastjórnin á sjálfsagt oft og einatt
örðugt með að skilja okkar sjónarmið. En
þetta getur ekki öðruvísi verið, og verður
altaf til staðar þar, sem ekki rikir einn vilji
og ein skoðun.
En vilji beggja til þess að brúa fjarlægð-
ina milli þessara tveggja sjónarmiða, i hin-
um einstöku málum, hefur verið til staðar
og verður altaf til staðar, svo lengi sem for-
stjórastaðan — ein vandasamasta staðai þjóð-
félagsins, — er skipuð manni, sem skilur
það, að stéttin og stofnunin er eitt.
Það er okkur símafólkinu mikið gleðiefni,
að sjá hér samankominn svo stóran og frið-
an hóp meyja og manna, og vita af öðrum
hópum víðsvegar um land, sem með okkur
fagna þessum tímamótum.
Þessi fjöldi gesta, sem tekur þátt í fagn-
aðinum með okkur, og allar þær árnaðar-
óskir, sem okkur hafa borist, virðist sanna
okkur það, sem við raunar oft höfum þreif-
að á, að símamannastéttin á yfirleitt vin-
sældum að fagna. Hverju hún helst getur
þakkað þær, skal ég ekki ræða itarlega að
þessu sinni. En á þetta vil ég benda:
Starf símamannastéttarinnar er nokkuð
sérstaks eðlis.
I þessu litla þjóðfélagi, þar sem tveir menn
tæplega mætast, sem ekki vita einhver deili
hvor á öðrum, og þar sem löngunin eftir
því að vita meira um náungann, á frjósam-
ari jarðveg en meðal fjölmennari þjóða, —
þar er þessi stétt í raun og veru undar-
legur hópur manna; hópur manna, sem frá
hinu daglega starfi dreifist út á meðal fjöld-
ans, með margþætta vitneskju um einkalíf
og einkamál mannanna, sem verða á vegi
hans.
Símamannastéttin er í raun og veru trún-
aðarvinur einstaklinganna í þjóðfélaginu. í
hennar hlutskifti fellur það daglega, að bera
milli þeirra hin viðkvæmustu einkamál, og
leyndarmál á sviði viðskifta og stjórnmála.
I okkar landi, þar sem ekki verður ann-
að sagt, en að tiltrúin til náungans sé nokk-
uð takmörkuð, er erfitt að halda þeirri til-
trú, sem þessi aðstaða — þetta starf, krefur.
En ég verð að taka þær vinsældir, sem
stéttin jafnan hefur fundið að hún átti að
fagna hjá öllum fjöldanum, en þó einkum
þeim, sem mest eiga undir trúnaði hennar,
verslunarstéttinni, blaðamönnunum, stjórn-
málamönnunum, — ég verð að taka þær sem
sönnun þess, að hún sem heild hafi verið
þessum vanda vaxin.
Og það er henni þá eitt mesta fagnaðar-
efnið á þessum timamótum, og hefur verið