Símablaðið

Volume
Main publication:

Símablaðið - 01.01.1940, Page 37

Símablaðið - 01.01.1940, Page 37
SlMABLAÐIÐ 21 störf miðast við nákvæmlega tilsett- an tíma, og einn verður að taka við af öðrum. Sem betur fer, mun starfs- fólk simans þola samanburð á þvi sviði við flestar ef ekki allar opin- berar stofnanir, en þar sem stöðugt fjölgar nýjum starfsmönnum, þá vill það verða eins og máltækið segir: „misjafn sauður i mörgu fé“. Landssíminn liefir lagt fram tals- vert fé á undanförnum árum til þess að örfa' stundvisi starfsfólksins og til skýrslugerðar um stundvísi þess. Á eg þar við hinar marg-umtöluðu stimpil- klukkur og kostnað í sambandi við þær. En liver er svo árangurinn af þess- um tilkostnaði? Undangengin 4—5 ár, sem skýrslu- gerðin hefir verið mest áberandi, munu ekki liafa orðið neinar fram- farir i stundvisinni, heldur þvert á móti. Svo sem starfsmannareglur okkar mæla fvrir, skal óstundvísi refsað, með því að viðkomandi er að árinu loknu látinn vinna af sér tvöfaldan þann tima, sem hann befir mætt of seint til vinnu sinnar. Þessa aðferð álit eg ekki heppilega til þess að bæta úr mis- fellunum. Þvi Jjetta vill verða til þess, að viðkomandi lítur á óstundvísi sína sem sitt einkamál, — því bann vinni þetta af sér með tvöföldum tíma, og að stofnunin megi því vel við una. í þessu sambandi mætti líta á hvern- ig þessi refsivinna beinlínis verður til þess að rýra tekjur þeirra stundvísu, þar sem þeir verða alveg afskiftir aukavinnu, meðan hinir seku eru að afplána svndir sínar, og það einmitt sömu mennirnir, sem á sinum tíma hafa orðið til þess, að bæta á sig vinnu hinna óstundvísu, þegar þeir ekki hafa mætt á réttum tíma. Mér hefir komið til hugar, hvort ekki mætti fá betri árangur með nokkrum breytingum, sem gætu orðið að samkomulagi milli símastjórnar- innar og F.Í.S., á því fvrirkomulagi, sem nú er. Eg hefi hugsað mér, að Landssím- inn sýndi nú þeim starfsmönnum, — og þeir eru langsamlega i meirihluta, — sem árum saman og jafnvel ára- tugum saman, hafa sýnt stundvísi og árvekni i störfum sínum, það traust, að undanskilja þá þessum stimpling- um, en láta einungis þá syndugu lialda áfram að stimpla. Eg liefi alveg á- kveðna trú á, að þeim mundi fljótt fækka, sem þyrftu að stilla sér oft á dag upp fyrir framan stimpilklukk- urnar. Það vrði verk símastjóranna og deild- arstjóranna, að koma sér saman um, hverjum bæri að sýna þetta traust, og mætti þá stvðjast við skýrslur undan- genginna ára. Viðkomandi yfirmenn vrði síðan að fylgjast með því fram- vegis, hvort stai’fsfólkið er traustsins verðugt. — Eins og nú liáttar, er viðkomandi deildarstjórum ekki treyst til þess, að Iiafa þetta eftirlit á hendi. Má það undarlegt heita, og ekki til þess fall- ið, að ala upp ábyrga yfirmenn. Verð- ur að vænta þess, að slíkt stafi frem- ur af athugunarleysi en vantrausti, — og ætti þá ekki að standa í vegi fyrir lausn þessa vandræðamáls. Sé ekki liægt að leysa það á þenna hátt, hvað er þá um hæfileika yfir- mannanna og deildarstjóranna? Væri ekki rökrétt að álykta, að þeim gæti verið meira en lítið ábótavant?

x

Símablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.