Símablaðið - 01.01.1940, Side 44
28
SÍMABLAÐIÐ
Talstöðvar í
Það var sumarið
1929 sem fyrst voru
gerðar tilraunir
neð orkulitlar tal-
stöðvar í íslenskum
veiðiskipum. Snorri
Arnar, sem þá var
starfsmaður loft-
skeytastöðvarinnar í Reykjavík, og á-
vall mikill áhugamaður um alt sem að
radio lýtur, smíðaði
tvær talstöðvar og
var afl þeirra um 1
watt í loftneti.
Snorri lét reyna þessar stöðvar í tog-
urum og reyndust þær vel langdrægar.
T. d. heyrðust þær í Reykjavík frá Hala-
miðum, Húnaflóa og viðar .Öldulengdin,
sem notuð var, var nálægt 350 metrum.
Allir togarar voru þá eins og nú, út
búnir loftskeytastöðvum (morse) og
mest öll viðskifti þeirra fóru fram á
dulmáli. Engin eftirspurn var þess vegna
eftir talstöðvum handa hinum stærri
veiðiskipum (togurunum), en um línu-
veiðara og mótorháta var ekki farið að
liugsa þá, enda vantaði talstöðvar á
landi til að annast slík viðskifti.
Snemma sumars 1932 fóru línuveið-
araskipstjórar þess á leit við G. Hliðdal
landssímastjóra, að landssíminn leigði
þeim talstöðvar til reynslu. Þetta mál
var auðsótt við landssímastjóra og var
vrkfræðingi símans G. Rriem falið að
sjá um þessa tilraun. Sveinbjörn Egils-
son, útvarpsstöðvarstjóri, var fenginn
til að smíða 2 talstöðvar, 4 watt í loft-
neti, en hann liafði áður smíðað fyrir
landssímann slíkar stöðvar fyrir Flatev
á Rreiðafirði, Papey og Djúpavog. Þess-
ar talstöðvar voru svo settar í línuveið-
arana „Ármann“ og „Nonna“ rétt fyrir
síldveiðitímann, og höfðu allir aðilar
ánægju af þeirri reynslu, sem fékst með
þessum stöðvum. Þar með hefst ný og
merkileg þjónustugrein hjá landssim-
anum.
Á næsta ári (1933) voru stöðvarnar
orðnar 13 og 1934 um haustið, voru
45 stöðvar landssímans í íslenskum
veiðiskipum. Sveinbjörn Egilsson
smíðaði 15 og verkstæði útvarpsins 40
talstöðvar fyrir landssímann, en liaust-
ið 1935 tók verkstæði landssímans að sér
smíði talstöðvanna og hefir haft hana
með höndum síðan. í janúar s. 1. voru
270 slíkar stöðvar i íslenskum skipum
og 11 í eyjum og öðrum afskektum
stöðum.
Þegar þetta er ritað eru um 170 skip
yfir 10 tonna, sem ekki hafa talstöðvar
og álíka mörg undir 10 tonna, sem til
mála gæti komið að fengju stöðvar, en
þá sennilega af annari gerð.
Talstöð, smíðuð á verkstæði Lancsímans.
Enda þótt landssíminn leigi nú 270
skipum smátalstöðvar, verður að skoða
þessa þjónustugrein enn þá á tilrauna-
bátum og skipum