Símablaðið

Árgangur
Main publication:

Símablaðið - 01.01.1940, Síða 45

Símablaðið - 01.01.1940, Síða 45
S i M A B L A Ð I fí 29 stigi. Á næstu árum verður ekki að eins fjölgað talstöðvum í skipum, heldur verða einnig þær, sem fyrii’ eru endur- bættar og talstöðvaþjónustan skipu- lögð betur eu nú er. Fyrst og fremst þarf að kenna sjó- mönnunum að fara með talstöðvarnar og nota þær til öryggis og nauðsynja en ekki eins og leikfang. Einnig þarf að fjölga öldulengdum stöðvanna, útbúa þær með mikrótelefón og sjá um að skipin eigi kost á góðum, glöggum og næmum viðtækjum. En eins og áður er sagt stendur þetta alt til bóta. Á næstu árum mun verða unnið að því að full- komna og endurbæta þessi tæki, svo framarlega að styrjöldin ekki hefti framkvæmdir á þessu sviði eins og svo mörgum öðrum. Sá sem þetta ritar hefir frá byrjun haft á liendi úthlutun talstöðvanna og er þess vegna vel kunnugur rekstri þeirra og áliti sjómanna og útgerðar- manna á gildi talstöðvanna. Enginn, sem haft hefir talstöð, vill án hennar vera. Allir eru sammála um, að betra tæki til öryggis á sjónum sé ekki hugsanlegt. Hrakningar m.b. Krist- jáns hafa líka undirrstrikað þessa nauð- svn. Útgerðarmenn hafa tjáð mér, að þeir gætu ekki haldið sínum góðu skip- stjórum eða formönnum, ef þeir ættu að vera án talstöðvar. Og viðkvæði þeirra er: „Fái eg ekki talstöð í bátinn get eg lagt árar í bát og hætt að gera út.“ Mér eru kunn fjölda mörg tilfelli, þar sem talstöð hefir orðið til þess að bjarga lífi manna og öðru verðmæti. um, Siglufirði og ísafirði, og vorið 1935, á Seyðisfirði. I vetur var sett upp talstöð í Höfn í Hornafirði. Þann 10. maí 1938 var opnað talsam- band við skipin vfir talbrú á loftskeyta- stöðinni í Reykjavík og er nú unnið að því að koma upp talbrú og öruggri við- töku á Siglufirði og í Yestmannaeyjum. Talsambandið yfir loftskeytastöðina i Reykjavík er vinsælt og eykst hröðum skrefum. T. d. voru í mars 1939 afgreidd 478 símtöl yfir talbrúna i Reykjavík, en 1080 símtöl í mars 1940. En þetta talsamband er einnig vin- sælt hjá fjölda útvarpshlustenda í Reykjavík. Þetta sama fólk, sem á sín- um tima ætlaði að springa af vandlæt- ingu þegar „hlerunarmálið“ svokallaða var á döfinni, situr nú og nýtur þess að hlusta á einkasímtöl manna á milli, á skipum og í landi. Margir verða að hlusta á þetta óviljandi vegna þess að tæki þeirra eru óglögg, en þeir eru fleiri, sem lilusta á þessi samtöl viljandi og elta þau uppi á viðtækinu. Morgunblaðið sagði nýlega að þetta væri ekki beinlínis „fallegt“ og verður naumast komist vægara að orði. Rráðlega verða gerðar ráðstafanir til að fyrirbyggja að óviðkomandi heyri þessi skipasamtöl jafn alment og nú er. —o— Árið 1934 var komið upp nýtisku tal- stöðvum í Reykjavik, Vestmannaeyj-

x

Símablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.