Símablaðið - 01.01.1940, Síða 52
36
SÍMABLAÐIÐ
Næsta tölublað Símablaðsins, sem
kemur út fyrri hluta maímán., fjallar aðal-
lega um hið nýja lagafrumvarp. Verður það
rætt frá báðum hliðum, svo að félagar fái
betur g-ert sér grein fyrir gildi þess.
Félagafréttir bíða næsta blaðs.
Verðlagsuppbótin.
Um þaS leyti, sem verið er að ljúka prent-
un blaðsins, eru loks séS afdrif frumvarps-
ins um verðlagsuppbót starfsmanna ríkisins.
Var það loks samþykt 23. apríl, á fundi i
sam. þingi, eftir að hafa velkst á milli þing-
deildanna vikum saman. Óteljandi breyt-
ingatillögur komu fram við það i Nd., sem
jafnóðum var komið fyrir kattarnef i Ed.
og loks i sam. þingi.
Er frumv. nú að mestu óbreytt frá því,
sem það var í upphafi, að öðru leyti en
því, að fjárhagsnefnd Ed. lagfærði nokkuð
flokkaskiftinguna, fyrir tilmæli formanna
stéttafélaganna.
En umræðurnar á Alþingi hafa verið fróð-
legar fyrir opinbera starfsmenn. Má vera, að
siðar gefist tækifæri til að athuga þær nokk-
uð, og þá einkum framkomu einstakra þing-
manna, er sigldu með kjósendadekrið við
hún, en öll lestarrúm full af óverðskulduð-
um bitlingum.
Halldór Ólafsson
löggiltur rafvirkjameistari,
Þingholtsstræti 3. — Sími 4775.
Viðgerðaverkstæði fyrir raf-
magnsvélar og rafmagnstæki.
Raflagnir allskonar.
Benzín
Aflmest
Hreinast
Best
Benzín-ge/mar vorir (grænir)
eru allsstaðar meðfram þjóð-
vegunum-
Olíuverzlun
r'
Islands h.f.
Félagsprentsmiðjan h.f.