Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2005, Blaðsíða 3
VCt jío trtv^
DV Fyrst og fremst
?00£ STOWTOÓW v flUDkQl \VQ\f\<l
ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 2005 3
Spurning dagsins
Myndir þú kaupa bíl af
Ástþóri Magnússyni?
Treysti honum ekki
„Nei, ég treysti honum ekki. Þar að auki hefég
engan áhuga á því að eignast eitthvað sem
hann hefur átt."
Ægir Guðmundsson runner.
„Nei, og
það er mitt
eina svar."
Rósa Líf
Christiansen
nemi.
„Nei,
hann erljótur."
Kolfinna Guð-
laugsdóttir
nemi.
„Nei,
Ástþór er mjög
grunsamlegur
og ekki hjálpar
útlitið."
Kristjana
Birna Birgis-
dóttir nemi.
„Já, efég
myndi fá hann á
góðu verði."
Þórir Hlynur
Ríkharðsson
nemi. .
Forsetaframbjóðandinn Ástþór Magnússon tengist umdeildu bílafyrirtæki á
netinu en þar býður hann upp á bandaríska bíla á kostakjörum.Ástþór er flutt-
ur til Bretlands en er þó langt frá því að segja bless við ísland.
Launamunur kynjanna
ekki eini launamunurinn
í morgunútvarpi í
dag var fjallað um
fæðingarorlof karla
Rætt var við hæstráð-
endur í banka. Spurt
var hver ástæða væri fýrir því að
karlar fari síður í fæðingarorlof
en konur en sérstaklega var fjall-
að um hátekjuhópinn. Var það
vegna launataps? Það getur
verið erfitt að sjá á eftir
þeim peningum sem tap-
ast, eða hvað? Vegna þaks
sem er á greiðslum fer
maður með tvær milljónir
á mánuði niður í 480 þús-
und en viðmiðunarþakið á
greiðslur úr F æðingarorlofs-
sjóði er 600 þúsund og eru að há-
marki greidd 80% af þvi. Þetta
var fullkomlega eðlileg
spurning og svarið var
líka heiðarlegt. Banka-
maðurinn sagði aðra
þætti ráða en
launatapið. Mér varð
þó hugsað til þess hve
langt við erum komin frá
heimi lágtekjufólksins,
launamannsins sem er með að-
eins brot af þvi sem hátekjukarl-
inn bæri úr býtum í fæðingaror-
lofiþrátt fyrir launaskerðingu!
Það sem hins vegar kórónaði
þessa umræðu voru þau orða-
skipti sem fylgdu í kjölfar þessa.
Er launamunur í bankanum - það
er á milli kynja? Svar: Eini mun-
urinn sem vert er að skoða er
launamunurinn á milli kynja,
hvort sömu laun eru greidd fyrir
sambærileg störf...
Þennan launamun á vissulega að
skoða enda eindregin krafa reist
um það og nýlega eftirminnilega
undirstrikuð af hálfu þjóðarinn-
ar.Undir hitt get ég ekki tekið að
þetta sé eini launamunurinn sem
vert sé að skoða. Launamunurinn
í þjóðfélaginu er að færast í
Ms
ískyggilegt misrétt-
ishorf. Bilið á milli
láglaunafólks og há-
tekjufólks er orðið
að risastórri gjá
sem aðskilur þjóðina. Aðskilnað-
argjár eða aðskilnaðarmúrar eru
ekki aðeins ranglátir.
Þeir eru hættulegir.
Þeir svipta okkur
því sem við eigum
sameiginlegt.
Það er fátt sem
sameinar þann
sem fær greiddar
tvær milljónir
króna á mánuði fyrir
vinnu sína og hinn sem
fær eitt hundrað þúsund krónur,
annað en jörðin sem þeir ganga
á. Þótt þeir búi í sama landi lifa
þeir ekki í sama samfélagi. Að
vísu sameinar velferðarþjón-
ustan okkur öll - ennþá. Að
henni eigum við öll jafnan að-
gang. Þegar við erum orðin
mikið veik og lögst á sjúkra-
hús veit enginn lengur hvernig
við höfum þénað um dagana. Vel-
ferðarþjónustan er þannig sam-
einandi. Þetta skiptir miklu máli.
Það skiptir máli að við séum ein
þjóð í landinu. Sameinuð þjóð
getur fengið
miklu áorkað.
Sundrað sam-
félag morknar
innanfrá. Þess
vegna skiptir
velferðarkerfið
máli. Og þess
vegna er vert að
skoða launamun-
inn. Ekki bara
milli kynja
heldur
allra,
karla og
kvenna.
Ögmundur Jónasson alþingismaður ritar á vef sinn: ogmundur.is
. »Þótt
aLmenjiingur
sjafþað ekkibýr
tflgancpfr að baki
h°ppsms. Hann '
skyldurækni
°ÆnSd1eSÍ’
blindar dómcrreinri
rnanna. I lýðræðisríkium
erundirlerliðdáiíV/ð ^
1s?íSS1 en * einr*ö- Á
isnkjum en í eðli
sinu það
sama.“
Hér á landi virðist vera í góðri uppsiglingu gleiddar-
legur samruni á öllum sviðum sem minnir á það sem
áður var kallað halelújahopp. Nú væri hægt að kalla
þetta halelújapopp eða sambland af
Vegna þess að bæði einkennast af sjálfsánægju,
Hoppin eru runnin undan rifjum ráðamanna og for-
ystukvenna en muna engu framávið fyrir almenning.
Samt eru hoppin tengd honum eins og múgæsingarn
ar voru í einræðisríkjum.
Og almenningur er sífellt reiðubúinn til
að hoppa þegar kallað er: Hoppið nú því
hugsjónin er mikil! Hann hoppar niður
Laugaveginn í Gay pride. Hann hoppar á
ljósahátíðum. Hann hoppar á menning-
amótt og í kvennagöngum eins og Hitler,
Stalín, Mussolini, Franco og Salazar hefðu
smalað honum £ reksturinn með hug-
myndafræði sem hann botnar hvorki upp
né niður í en hoppar engu að síður til að
hoppa af því aðrir hoppa. Þótt al-
menningur sjái það ekki býr til-
gangur að baki hoppsins. Hann
er tengdur skyldurækni,
hlýðni og kennd sem
blindar dómgreind
manna. í lýðræðisríkj-
um er undirferlið dálítið öðmvísi en í
einræðisríkjum en í eðli sínu það sama.
í báðum tilvikum felast einkenni þess
í því að birta látlaust tölur t.d. um hagnað. Likt og
sífelldar niðurstöður um glæsiárangur í fimm ára
Sovétríkjanna í vatnsorkumálum áttu
vekja rússneskt þjóðarstolt og reka lýðinn
áfram eigum við að hrífast af því hvað einkavæð-
ríkisíyrirtækja skilar kaupendum þeirra miklum
arði.
Annað í svipuðum dúr og í einræðisríki er
fréttin um að Reykjavíkurborg hyggist greiða
starfsfólki sínu, líklega konum, hæfnislaun fyrir
árangur í starfi. Maður gæti haldið að lofsungna
„jafnréttið" þar hafi gert starfskraftana að þvílík-
um skussum að grípa verði til sömu ráða og
Stalín sem fann upp hvetjandi ofurverkamenn,
stakanovitsa, en Franco virtnuforka. Þeir fengu
umbun og vöktu samkeppni. Tilgangur einræðisins
var að vekja í fólki þrælinn. Hjá borginni verður
afleiðingin sú að jafnréttið snýst upp í and-
stæðu sína: Til verða hamhleypur og læpur.
1
Guðbergur Bergsson
VIÐURKENND VARAHLUTAÞJÓNUSTA í 44 ár
Útvegum notaða skotbómulyftara
Úrval notaðra lyftara á lager
MANIIOU
^«P0N
PON PÉTUR O. NIKULÁSSON ehf.
Melabraut 23 • 220 Hafnarfjörður
Símar 552 2650 & 552 0110 • FAX: 552 1588 • e-maiL: pon@pon.is
TJ
JiJjiJ
jvjíit
EÍZJ-J' "
/jjííuo Jj\i_rj
íií\£J£J.
LÉíi
Fjórhjóladrifinn
Fjórhjólastýrður
Lyftigeta: 3.400 KG
Lyftihæö: 6.050 MM
Gafflar: 1.200 MM
Vél: Perkins Turbo intercooler, 123 HÖ
LOAD SENSING!! Samtímis glussahreyfingar
án aukins snúningshraða vélar.