Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2005, Side 4
Fréttir DV
4 ÞRÍÐJUDAGu‘r17nÓVEMBÍR2005
Selma
kærastinn
ekki
Selma Björk Gunn-
arsdóttir er laus
úr gæsluvarð-
haldsvist sem
hún var úr-
skurðuð í vegna
sinnar að fíkniefnainn-
flutningi í gegnum pósthús
þar sem hún var starfsmað-
ur. Kærasti Selmu, Björn
Sigmarsson, situr enn í
gæsluvarðhaldi á meðan
rannsókn málsins heldur
áfram hjá lögreglu en Björn
er talinn eiga meiri og
stærri þátt í málinu en
Selma. Gæsluvarðhaldið
yfir Selmu rann út á föstu-
daginn. Þau hafa bæði ját-
að sína hlutdeild í málinu
að nokkru leyti en nokkuð
ber í milli varðandi fram-
burð þeirra um hlut hvors í
innflutningnum.
Engir þing-
menn til Eyja
Þingmenn Suðurkjör-
dæmis munu ekki fara til
Vestmannaeyja í dag eins og
ákveðið var. Þar með er
runnin út í sandinn önnur
tilraun þeirra til að heim-
sækja Eyjar á þessu hausti.
Fyrst ætluðu þeir að koma
síðasta föstudag en þá
hamlaði veður för þeirra.
Nú er það hins vegar ekki
veðrið sem veldur því að
þingmennimir koma ekki
heldur er svo mikið að gera
hjá bæjarstjóra, forseta bæj-
arstjómar og formanni bæj-
arráðs en þeir verða allir
íjarverandi frá eynni í dag.
Eiður Eiríkur
Eiður Eiríkur
Baldvinsson, eig-
andi starfs-
mannaleigunanr
2b, er þessa dag-
ana harðlega gagn-
rýndur fyrir ómann
úðlega fram-
komu
gagnvart
pólsku verkafóki sem hann
leigði út til vinnu á Kára-
hnjúkum. Eiður hefur áður
fengist við vafasöm við-
skipti því árið 1996 hlaut
hann tveggja mánaða skil-
orðsbundinn dóm auk
greiðslu skaðabóta fyrir
skjalafals og fjársvik. Dóm-
inn hlaut hann fyrir að nota
falsaða ávísun til að kaupa
sér bifreið og vélsleða.
dæmdurfyrir
fjársvik
Arið 1984 opnaði Sundlaug Seltjarnarness við mikinn fögnuð íbúa í kaupstaðnum.
Laugin hefur verið frá opnun griðastaður eldri borgara sem þar hittast, tala saman
og synda nokkrar ferðir. Frá opnun hefur hinn 91 árs gamli Lúðvík Geirsson mætt
með konu sinni Arnbjörgu Sigtryggsdóttur á hverjum morgni klukkan sjö. í dag
snýr Lúðvík sér bara á hina hliðina á morgnana og sefur lengur.
J Þessi laug er ekkert
flott en hún er samt
sem áður
-
Lúðvík og Arn-
björg Heimsóttu
sundlaugina í slð-
asta skiptið í bili i
Q ær.
>
...
I dag hefjast framkvæmdir við endurbætur á Sundlaug Seltjarn-
arness. Laugin hefur verið griðastaður eldri borgara frá árinu
1984 þegar hún opnaði. í um 21 ár hefur Lúðvík Geirsson ásamt
konu hans Arnbjörgu Sigtryggsdóttur mætt hvern einasta morg-
un í laugina, hitt kunningja og synt nokkrar ferðir. Nú mun Lúð-
vík ekki komast í sund í 6 mánuði, eða á meðan framkvæmdir
standa yfir. Hann segir sundið ástæðuna fyrir langlífi sínu.
„Já, við konan höfum komið
hingað síðan 1984 á hverjum degi
fyrir utan þau skipti sem við erum í
útlöndum," segir Lúðvík Geirsson.
Hann er þekktur á meðal starfsfólks
sundlaugarinnar og gesta. Lúðvík er
sá elsti sem sækir sundlaugina og
ber aldurinn ótrúlega vel ásamt Am-
björgu Sigtryggsdóttur konu sinni.
Þau sækja laugina hvernig sem viðr-
ar og stunda íþróttir og leikfimi af
kappi.
Sundlaugin er heilsubrunnur
„Þegar sundlauginni er lokað get-
um við ekki farið neitt annað," segir
Lúðvík sem býr með Arnbjörgu í
íbúðum aldraðra á Skólabraut.
„Við förum í sund alltaf klukkan
sjö á morgnana og göngum hingað
en laugin er ekki langt frá heimili
okkar. Við erum síðan í leikfimi
tvisvar í viku og tökum svo þátt í
boccia," segir Lúðvík en þau hjónin
hafa unnið til margra verðlauna í
þeirri íþrótt.
„Sundlaugin er heilsubrunnur og
ég er fullviss um að sundið hafi stór-
kostleg áhrif á heilsuna," segir Lúð-
vfk spurður um langlífi hans.
Snýr sér á hina hliðina
Lúðvík segir breytingarnar langt
frá því að vera nauðsynlegar.
„Það er ekki ávallt gott að allt sé
rosalega flott. Þessi laug er ekkert
flott en hún er samt sem áður besta
laugin. Besta vatnið er hérna og því
eru flestir sammála," segir Lúðvík.
„Ég efast um að ég gæti vanist því að
synda annars staðar en hingað kem-
ur fólk ótrúlega langt að til þess að
synda í þessu vatni og hitta fólkið
sem hér er."
En þrátt fýrir skoðanir Lúðvíks
eru framkvæmdimar hafnar og
hann verður að finna sér eitthvað
annað að gera:
„Maður reynir að snúa sér á hina
hliðina og reyna að sofa til tíu. Okk-
ur er boðið upp á keyrslu í Vestur-
bæjarlaugina en enginn hefur skráð
Heitu pottarnir
Þarsem fólkhitt-
istog spjallaði
umalltámilli
himins og iarðar.
l snfena
sig á það. Það eru flestir hérna vel á
sig komnir og geta því keyrt bíl en ég
sé ekki svo vel og get þar af leiðandi
ekki keyrt og heimsótt aðrar sund-
laugar."
Tvisvar á ári til Spánar
Lúðvík og Arnbjörg segjast ekki
geta nýtt sér að sundlaugargestum
hefur verið boðinn akstur í sund í
Vesturbæjarlaugina. Það stangast á
við leikfimi og aðrar tómstundir sem
þau ásamt öðmm eldri borgumm
taka þátt í.
„Eg vona að heilsunni hraki ekki
þessa sex mánuði sem laugin er lok-
uð. Á þessum aldri á maður ekki 20
til 30 ár eftir. En við hjónin emm svo
vel á okkur komin að við fömm alltaf
á haustin og vorin til Spánar og
emm þar í þrjár vikur. Við nýtum
tímann erlendis og göngum rosa-
lega mikið," segir Lúðvík.
Telja dagana
Hjónin segjast telja dagana þar til
sundlaugin verði opnuð að nýju.
„Við reynum bara að ganga úti
eins lengi og veður leyfir. Svo reyn-
um við að fara í aðra laug ef við get-
um. Annars er ég bara ekki viss um
að ég hafi áhuga á að fara annað.
Hér hef ég mína sundbraut og það er
líka svo mikið atriði að hitta fólkið
sem hér er. Starfsfólkið hér og allir
sem sundlaugina sækja em svo ynd-
isleg," segirLúðvík.
„Við verðum að drífa okkur, Lúlli,
leikfimin er að byrja," segir Ambjörg
og þar lauk spjalli blaðámanns við
þessi ótrúlega hressu hjón.
atli@dv.is
Látnir Bretar koma að góðu gagni
Jólin nálgast. Innan við tveir
mánuður þar til ljósin skína skærast
og allt verður gott. Svarthöfði hlakk-
ar til.
Fyrsti jólasveinninn er kominn á
stjá. SjálfurÁstþór Magnússon kem-
ur færandi hendi. Kvikmyndaleik-
stjórar og annað gott fólk fær nú að
kaupa ameríska jeppabíla á spott-
prís til að komast leiðar sinnar milli
bæjarhluta og ná að kaupa allar jóla-
gjafirnar í einni ferð. Allt Ástþóri að
þákka.
Þetta em mikil undur. Það furðu-
legasta er þó að Ástþór virðist ekkert
vilja kannast við þetta góðverk sitt;
að færa okkur lúxusbíla á hálfvirði
bara ef við nennum að smella með
músinni nokkmm sinnum. Ástþór
% p
>• Svarthöföi
er hæverskur maður sem lítið vill
halda á lofti sínum stærstu sigmm.
Svarthöfði gæti ekki hugsað sér
betri bílasala en Ástþór Magnússon.
Allir bílar frá honum em næstum
ókeypis friðarins bílar sem engan
meiða - og ömgglega síst af öllu eig-
andann sem ekki má við meiri þján-
ingum eftir að hafa endurfjármagn-
að skuldasúpunna þrisvar sinnum.
Nú berast líka fréttir af því að Ást-
þór sé byrjaður aftur að safna fyrir
börnum sem standa í hrakningum
úti í heimi. Hugvitsamlegt lottó í
bresku stórblaði þar sem von er á
Hvernig hefur þú það?
„Ég hefþað mjög gott. Platan mín var að koma út og hefur fengið jákvæðar
móttökur, “ segir Daníel Ágúst Haraidsson söngvari.„Allir í fjölskyldunni
eru heilsuhraustir og hér drýpur í raun smjör afhverju strái."
milljónavinningi rambi þátttakend-
ur á að innihald minningargreina og
andlátsfrétta sé þeim hagstætt. Þetta
er frábært. Reyndar vill Ástþór ekki
kannast neitt við neitt en Svarthöfði
veit að það er bara hógværð mein-
lætamannsins góða.
Kannski finnst einhverjum
ósmekklegt að efna til happdrættis á
gröfum nýlátinna Englendinga. En
það er bara vitleysa. Dána fólkið er
einfaldlega vannýtt auðlind.
Eins dauði er annars brauð.
Svarthöfði