Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2005, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2005, Side 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 2005 Fréttir DV Snjórinn felldi þjófinn Brotist var inn í verslun- ina Krílið á ísafirði um helgina. Þegar lögreglu- menn og eigendur komu á vettvang var þjófurinn á bak og burt. Lögreglu- mennimir dóu ekki ráða- lausir því þar sem nýfaiiin mjöll var yflr öllu gátu þeir rakið sporin frá Krílinu að húsi þar sem þjófurinn var gest- komandi. Kom hann viljug- ur með lögreglu á lögreglu- stöðina þar sem hann svaf úr sér áfengisvímuna og gekk frá sínum málum skil- merkilega. Lögreglan á ísa- firði segir þjóflnn iðrast sáran gjörða sinna. Ný bryggja í Grindavík Unnið er við að setja út nýjar flotbryggjur í Grinda- vflc. Þessar bryggjur em samtals 50 metra langar og koma til viðbótar bryggjum sem fýrir em og er ætlað að leysa af hólmi þær elstu sem em að verða úr sér gengnar að því er segir á vefsíðu Vflcurfrétta. Eftir að framkvæmdum er lokið ættu öll olíufélögin að hafa möguleika á aðstöðu til ol- íudreiflngar í Grindavíkur- höfn. Nýjar reglur umhergögn Ný reglugerð hefur tekið gildi um flutning hergagna með loftförum um íslenskt yflrráðasvæði. Helsta breyt- ingin frá fyrri reglugerð er að leyfisveitingar em færð- ar frá samgöngumálaráðu- neytinu til Flugmálastjórn- ar. Allur flutningur her- gagna með loftförum um íslenskt yfirráðasvæði er því óheimill nema með sérstöku leyfi Flugmála- stjórnar. í ákveðnum til- vflcurn ber Flugmálastjórn þó að hafa samráð við samgönguráðu- neytið áður en leyfi er veitt. Reglugerðin nær þó hvorki um rfldsflug né loftför Landhelgisgæslunnar eða íslenskra stjórnvalda. „Flutningabíllinn kemur rétt bráöum. Ég er að flytja bú- slóðina suður I dag,“segir Kristbjörg Lóa Árnadóttir, leikskólakennari og bóndi á Skjaldfönn i Isafjarðardjúpi. Landsíminn bara að veðrið leyfi mér að komast suður i dag þannig að ég geti tæmt úr bílnum. Við erum að flytja til Reykjavikur yfír vetur- inn. Það er frekar upp á nauð- syn en þægindi. Drengurinn minn er langveikur þannig að við viljum vera nærþjónustu fyrir hann. Maður gerir allt fyr- ir börnin sín." í dag eru liðnir 242 dagar síðan Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra lofaði úrbót- um á Sólvangi. Enn búa vistmenn í herbergjum sem þeir þurfa að deila með þrem- ur eða fjórum öðrum. Heilbrigðisráðherra virðist ekki taka málið það alvarlega að hann sýni vilja í verki til að leysa þennan vanda. Jón heilbrigiisrótherra aðgerðalaus í 242 daga I Jón Kristjánsson heilbrigðisráð- herra Hefurekkert gert fyrir vistmenn [ á Sólvangi síðan hann lofaði úrbót- um fyrir 242 dög- um. Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingar- innar Segir núverandi ástand á Sólvangi þjóðarskömm. Erna Fríða Berg, forstöðumaður Sól- vangs Villekkitala við blaðamann DVum ástandið á Sólvangi. Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra fékk þá fyrirspurn á Alþingi á dögunum hversu margir einstaklingar deildu herbergi með ókunnugu fólki og var svar hans að tæplega þúsund manns ættu ekki sitt eigið herbergi til afnota. Ráðherra viðurkennir að brotið sé á mannréttindum þessa fólks en hefur samt setið aðgerðalaus í 242 daga án þess að bæta úr óviðunandi ástandi vistmanna hjúkrunarheimilisins Sólvangs í Hahiarfirði. Hjukrunarheimilið Sólvangur Vistmenn búa enn við afleitar aðstæður þrátt fyrir loforð heil- brigðisráðherra um úrbætur fyrir 242 dögi Tæplega þúsund einstaklingar búa við þær aðstæður f dag að deila herbergi með ókunnugu fólki. Kom þetta fram í svari Jóns Kristjánsson- ar heilbrigðisráðherra við fyrirspum Björgvins G. Sigurðssonar, þing- manns Samfylkingarinnar, á Alþingi á dögunum. í samtali við DV sagði Björgvin að hann biði enn eftir svari við þeirri fyrirspum hversu margir séu í brýnni þörf fyrir vistun á hjúkr- unarheimili. Er ráðherra búinn að hafa mánuð til að svara. Vill ekki vernda friðhelgi einkalífs í umræðum á Alþingi var Jón Kristjánsson spurður að því hvort ekki ætti að binda í lög friðhelgi einkalífs eldri borgara sem annarra og banna það að vista fólk í herbergi með ókunnugu fólki. Tók heilbrigð- isráðherra ekki undir þá fyrirspum sem Björgvin G. Sigurðsson lagði fyrir hann. Segir Björgvin á vefsíðu sinni bjorgvin.is að: „...rfldsvaldið brýtur lög á íbúum Sólvangs og um leið mörgum öðrum íbúum öldmn- arstofnana sem enda ævina einsog um dýr í búri í þröngu sambýli við bláó- kunnugt fólk." Segir Björgvin á vef- síðu sinni að núverandi ástand sé þjóðarskömm. Mannréttindabrot Eins og kom fram í DV síðastlið- inn laugardag em til strangari lög um aðbúnað dýra en manna. í lög- um um rétt sjúklinga og vistmanna heilbrigðisstoftiana er ekki talað um aðbúnað. í þessum lögum kemur fram að virða beri mannréttindi ein- staklinga sem dvelja á heilbrigðis- stofhunum. Jón Kristjánsson hefur viðurkennt að um mannréttinda- brot sé að ræða á Sólvangi. Þrátt fyr- ir það heldur hann áfram að brjóta á mannréttindum þeirra sem em vistaðir þar. Ekki náðist í ráðherra til að tjá sig um málið en eins og fram kom í frétt í Helgarblaði DV eru strangari reglur um meðferð dýra en aðbúnað gamals fólks. Vill ekki svara fyrir sig Ema Fríða Berg, forstöðukona hjúkmnarheimilisins Sólvangs, vildi ekki svara fyrirspurnum DV um fyr- „...rikisvaldið brýtur lög á íbúum Sölvangs og um leið mörgum öðr um íbúum öldrunarstofn- ana sem enda ævina einsog dýr í búri íþröngu sambýli við bláókunnugt fólk irkomulag á innlögnum heimilisins þegar hringt var í hana síðastíiðinn föstudag. Ema sagði að hún vildi ekki tala við blaðamann DV því umfjöllunin um Sólvang hefði ekki verið henni að skapi. Sólvangur tekur við vistmönnum á heimilið án þess að hafa pláss fyrir þá en vill síðan ekki ræða ástæðuna fyrir því. Hvorki náðist í Ernu Fríðu Berg né Sigþrúði Ingimundardótt- ur, hjúkmnarforstjóra Sól- vangs, við vinnslu þessarar fréttar. jakobina@dv.is Sagður hafa skallað mann á gamlárskvöld Einn ofbeldishrotta aftur fyrir dóm Lögreglustjórinn á Akureyri hefur höfðað mál á hendur Tómasi Pálssyni Eyþórssyni, 19 ára Akureyringi, en honum er gefið að sök að hafa skallað jafnaldra sinn í andlitið með þeim af- leiðingum að hann nefbrotnaði. Hin meinta árás átti sér stað í Nætursöl- unni við Strandgötu á Akureyri á gamlárskvöld í fyrra. Málið var þing- fest í gær og neitaði Tómas sök. Hann er krafinn um tæpar sex hundmð þús- und krónur í bætur auk þess sem kraf- ist er að Tómas verði dæmdur til refs- ingar. í september höfðaði lögreglustjór- inn á Akureyri annað mál á hendur Tómasi en hann var viðriðinn aðra af tveimur hrottafengnum Iflcamsárás- um á Akuryri sem leiddu til fjöldamót- mæla gegn ofbeldi á Akureyri. í þeirri árás, sem átti sér stað í mars, þvinguðu nokkrir drengir, þar á meðal Tómas, ungan mann í skott rauðrar Renault-bifreiðar og héldu honum nauðugum í um það bil klukkustund. Þeir óku bilnum að iðn- aðarsvæði þar sem drengurinn var tekinn úr skottinu. Þá fékk hann spark í andlitíð með þeim afleiðingum að hann datt í jörðina. Þá hófu Tómas og félagar hans að trampa á höfði drengsins. Hann var rifirm úr bol sín- um og buxum og dreginn eftir mal- arplani svo hann fékk slæmt svöðusár á bakið. Eftir þetta létu ofbeldismenn- imir loks staðar numið en stálu þó fyrst fötum drengsins, peningum hans og síma áður en þeir óku á brott. Tómas Pálsson Eyþórsson sagði í samtali við DV skömmu eftir árásina að fómarlambið hefði gert sér of dælt við yngri systur hans. Það væri ástæða misþyrminganna. Ekki náðist í Tómas í gær þrátt fyr- ir ítrekaðar tilraunir. andri@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.