Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2005, Síða 14
74 ÞRIÐJUDAGUR 1. NÖVEMBER 2005
tmwsmavanw
Fréttir DV
Tuttugu
spólna leiga
Hugsanlega er umsvifa-
minnsta myndabandaleiga
landsins rekin á Drangsnesi
í Strandasýslu. Að því er
segir á strandir.is hafði
fréttavefurinn ranglega
ályktað að engin mynd-
banaleiga væri eftir í sýsl-
unni eftir að leigunni á
Hólmavík var lokað í haust.
„Útibú Kaupfélags Stein-
grímsf]arðar hefur rekið
litla vídeóleigu í allmörg ár
á Drangsnesi sem enn er
opin. Titlar þar eru að vísu
ekki nema í kringum tutt-
ugu, en að sögn Jóns Al-
freðssonar kaupfélags-
stjóra, hefur það samt þótt
nokkuö gott miðað við not-
endafjölda," segir á strand-
ir.is.
Nyrsti bærinn
úr byggð
Hefðbundnum búskap
hefur verið hætt á nyrsta
bænum sem verið hefur í
heilsársbyggð á Ströndum
um langt árabil. Að því er
segir á strandir.is eru hjónin
Guðmundur G. Jónsson og
Sólveig Jónsdóttir á Munað-
amesi í Árneshreppi flutt í
Grundarfjörð. Þau eru sögð
hafa fellt mestallt fé sitt í
fyrrahaust en hafa verið
með nokkrar rollur þar til nú
í haust. „Að sögn þeirra
hjóna þá ætla þau sér að
taka upp hætti farfuglanna
og vera á Munaðamesi yfir
sumartímann, ifá vori fram
á haust," segir á strandir.is.
Lögmaðurver
eldhús
Karl A. Axelsson
hæstaréttarlögmað-
ur hefur sótt um
peningastyrk til að
hægt verði að varð-
veita hlóðaeldhús í
landi jarðarinnar
Bjalla í Landsveit í Rangár-
þingi ytra. Karl á Bjalla með
systkinum sínum og
fleimm. Hreppsráðið
frestaði afgreiðslu erindis
Karls á fimmtudag á meðan
atvinnu- og ferðamála-
nefnd tekur málið til um-
fjöllunar og tillögugerðar.
Minningarfé í
hljóðfæri
Sóknarnefiid Oddaldrkju
vill að notaðar verði fimm
hundmð þúsund krónur úr
minningarsjóði hjónanna
Guðrúnar Halldórsdóttur og
Sigurðar Guðmundssonar til
að kaupa hljóöfæri fyrir
Þykkvabæjarkirkju og safn-
aðarheimili Oddasóknar.
Hreppsráð Rangárþings ytra
samþykkir þetta en vill að
fyrst verði fengið samþykki
almenns fundar í sókninni
áður en féð greiðist út úr
minningarsjóðnum.
Sjö einstaklingar sitja í stjórn íþrótta- og tómstundaráðs. Fimm þeirra þiggja um
sjötíu þúsund krónur á mánuði fyrir að sitja í stjórninni. Það er víða pottur brot-
inn í mætingu stjórnarmanna og skilur Anna Kristinsdóttir, formaður ráðsins, ekk-
ert í áhugaleysi sumra stjórnarmanna.
Menn eiga ekki eð setjnst í
netndir neningnnnn vegna
Anna Kristinsdóttir, borgarfulltrúi R-listans og formaður
íþrótta- og tómstundaráðs, lýsir furðu sinni á áhugaleysi sumra
stjórnarmanna í ráðinu. Mæting stjórnarmanna á hálfsmánað-
arlega fundi er upp og ofan þrátt fyrir að allir stjórnarmenn, fyr-
ir utan Önnu og Kjartan Magnússon borgarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins, þiggi um sjötíu þúsund krónur á mánuði fyrir setu í
stjórninni.
Svandís Svavarsdóttir, Andrés
Jónsson og Ingvar Sverrisson, vara-
formaður ráðsins, sem sitja í ráðinu
fyrir hönd R-listans, sem og sjálf-
stæðismennirnir Benedikt Geirsson
og Bolli Thoroddsen, fá sjötíu þús-
und krónur á mánuði fyrir setu í
stjórn íþrótta- og tómstundaráðs.
Anna Kristinsdóttir, formaður ráðs-
ins, sagði í samtali við DV í gær að
henni þætti stundum skrýtið hversu
lítinn áhuga sumir nefndarmenn
sýndu.
Snýst ekki bara um peninga
Anna sagðist ekki hafa tekið eftir
því að einhverjir sérstakir mættu illa
á fundi en hún væri á þeirri skoðun
að stjórnarmenn ættu að fá borgað
fyrir hvern einstakan fund frekar en
fasta greiðslu, burtséð frá því hver
mætingin væri. „Svona starf á eldd
að snúast um peninga. Það er dýrt
að kalla inn varamenn og í raun
óþarfur aukakostnaður. Það þarf að
breyta launakerfinu fyrir þessi
nefndarstörf," sagði Anna.
Ungliðar vonbrigði
Anna sagðist hafa orðið fyrir mild-
um vonbrigðum með frammistöðu
ungu mannanna sem komu inn í
stjóm Iþrótta- og tómstundaráðs í
janúar. „Það á enginn að setjast í
stjómir nema hann hafi áhuga á því
starfi sem þar fer ffam. Ég undrast
stundum þessa ungu menn sem
komu inn í byrjun ársins. Ég hef til
dæmis ekki séð hann Bolla lengi á
fundum," sagði Anna og á þar við
Bolla Thoroddsen, formann Heim-
dalls og varaborgarfulltrúa Sjálfstæð-
isflokksins, sem hefur ekki mætt á
fund hjá ráðinu síðan 8. september,
samkvæmt fundargerðum á heima-
síðu íþrótta- og tómstundaráðs. j
Mikið að gera
Bolli Thoroddsen sagði í samtali
við DV í gær að það væm góðar og
gildar ástæður fyrir því að hann
hefði ekJd
mætt á fundi ráðsins í rúman einn
og hálfan mánuð. „Ég hef staðið í
kosningabaráttu, bæði hjá Heim-
dalli og SUS, og er nú í miðju próf-
kjöri. Það er ekkert mál að mæta á
þessa stjórnarfundi, fá sér að borða
og hafa það gott en ég hef alltaf ver-
ið fastur annars staðar," sagði Bolli.
Hann sagðist geta sagt það með
góðri samvisku að hann ynni fyrir
laununum sínum. „Ég hef mikinn
áhuga á þessum málaflokki og vísa
allri gagnrýni á bug. Ég hef tekið að
mér mál sem aðrir hafa ekki haft
áhuga á og klárað þau,“ sagði
Bolli.
„Ég undrast stundum
þessa ungu menn sem
komu inn i byrjun árs-
ins. Ég heftil dæmis
ekki séð hann Bolia
lengi á fundum
oskar@dv.is
Anna Kristinsdottir,
formaður (TR Vill breyta
launakerfinu fyrir nefnd-
arsetu og borga fyrir
hvern fund sem mætt er á
Bolli Thoroddsen Vís
ar allri gagnrýni á bug
og segist vinna gott og
óeigingjarn tstarf.
Hlutur kvenna rýr í borgarstjórnarslag Sjálfstæðisflokksins
AÖeins fimm konur í prófkjöri
Af tuttugu og fjórum frambjóð-
endum í prófkjöri Sjáifstæðisflokks-
ins vegna borgarstjórnarkosning-
anna eru aðeins fimm konur. Hlutur
kvenna verður því að teljast rýr og
skríður aðeins rétt yfir tuttugu pró-
sent:
„Þær mættu vera fleiri og það
virðist einhver deyfð yfir konunum í
flokknum," segir ein af símadömun-
um í Valhöll, höfuðstöðvum Sjálf-
stæðisflokksins við Háaleitisbraut.
„En þetta eru allt góðar konur og
það skiptir öllu," bætir hún við.
Konurnar fimm sem ætla að etja
kappi við karlana nítján í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins eru: Marta Guð-
jónsdóttir, kennari við Tjarnarskóla,
Sif Sigfúsdóttir, MA í mannauðs-
stjórnun og systir Árna bæjarstjóra í
Reykjanesbæ, Þorbjörg Helga Vig-
fúsdóttir, aðstoðarkona mennta-
málaráðherra, Hanna Birna Krist-
Marta Guðjónsdóttir Sif Sigfúsdóttir Systir bæj- Þorbjörg Helga Aðstoðar- Hanna Birna Kristjánsd. Jórunn Frímannsdóttir
Kennari við Tjarnarskóla. arstjórans í Reykjanesbæ. kona menntamálaráðherra. Núverandi borgarfulltrúi. Hjúkrunarkona og vefstjóri.
jánsdóttir borgarfulltrúi og Jórunn ur og ritstjóri doktor.is. vegna borgarstjórnarkosninganna
Frímannsdóttir, hjúkrunarfræðing- Prófkjör Sjálfstæðisflokksins fer frarn um næstu helgi.