Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2005, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2005, Síða 20
20 MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 2005 Sport DV Borgvardt á heimaslóðir? Daninn Allan Borgvardt sem leikið hefur með FH undanfarin þrjú sumur hangir nú í lausu lofti hjá Viking í Noregi, þangað sem hann fór í ágúst síðastliðn- um ffá FH. Samningur hans við félagið rennur út í dag og á hann ekki von á að framlengja samninginn úr þessu. Líklegast sé að hann sé á leið aftur til Danmerkur þar sem lið hafa sýnt því áhuga að gera við hann skammtímasamning. Valur oq Pálmi skrifa undir í dag Knattspyrnu- deild Vals hefur boðað til blaða- mannafundar í dag þar sem búist er við að þeir Valur Fannar Gíslason og Pálmi Rafn Pálmason verði kynntir til sögunn- ar sem leikmenn Vals. Valur hefur undanfarin ár leikið með Fylki en hann var þar áður á mála hjá Fram. Pálmi Rafn er Húsvíkingur að upplagi en lék með KA síðastliðið sumar við góðan orðstír. Þórður kemur til landsins í dag Þórður Guðjónsson sagði í samtali við DV Sport í gær að hann myndi annað hvort spila með ÍA eða FH í Landsbankadeildinni á næsta ári. Hann kemur heim til íslands í dag í einkagjörðum en segist ætla að nýta sér tækifærið og semja við annað hvort liðið á næstu dögum. Þórð- ur er nú á mála hjá Stoke City í ensku 1. deildinni en knattspyrnustjóri liðsins hefur gefið út að hann sé ekki inn í framtíðaráætlun- um hans. EKKIMISSA KV|j££lj| 19.15 KR-Grindavík í Hópbílabikar kvenna s&n,. 19.30 PSV-ACMilaná Sýn og Real Betis-Chel- sea á Sýn Extra. 21.40 Farið yfir leiki kvöldsins í meistara- deildinni með Guðna Bergs á Sýn. - Meistaradeildin fer aftur í gang í kvöld og er komið að fjórða leikdegi. Sem fyrr fara fram átta leikir í kvöld og átta á morgun. Alls geta sjö lið tryggt sér sæti í 16 liða úr- slitum keppninnar með sigri í umferðinni og þar af keppa þrjú í kvöld - Liverpool, Chelsea og Lyon. Þau tvö síðarnefndu voru í sömu sporum í fyrra og komust þá áfram Aftur í kvöld Chelsea-mennirnir Didier Drogba og Ricardo Carval- ho fagna marki gegn Real Betis i þriðju umferð Meistaradeildar- innar. Liðin mætast aftur íkvöld. FOOTBALl CLU8 Leikír kvöldsins E-riðill: PSV Eindhoven-AC Milan Schalke-Fenerbahce F-riðill: [ Rosenborg-Real Madrid Olympiakos-Lyon G-riðill Liverpool-Anderlecht Rcal Betis-Chelsea H-riðill Artmedia Bratislava-Rangers Internazionale-Porto Ef Liverpool ætlar sér sæti í 16 liða úrslitunum strax í kvöld verður það á kostnað Anderlecht sem mun þá að sama skapi eiga enga möguleika á áffamhaldandi þátttöku í keppninni. Real Betis er í álíka slæmri stöðu og hefur reyndar gengið bölvanlega heima fyrir síðan að liðið tapaði íyrir Chelsea, 4-0, í síðustu umferð. Það má því búast við þvi að bæði þessi lið, Real Betis og Anderlecht, muni berj- ast fyrir lífi sínu í kvöld. Lyon hefur átt frábæru gengi að fagna undir stjórn Gerards Houllier í Meistaradeildinni og unnið alla þrjá leiki sína í keppninni til þess. í kvöld mæta þeir Olympiakos á útivelli og hefur liðið reyndar aldrei unnið Grikkina á þeirra heimavelli. Olympiakos hefur að sama skapi að- eins tapað einum leik á heimavelli af síðustu átta gegn frönskum liðum á heimavelli og unnið síðustu fjóra. Gengi liðanna í keppninni er þó ólíkt þar sem Olympiakos hefur tap- að síðustu fjórum leikjum sínum í Meistaradeildinni en Lyon hefur ekki tapað átta leikjum í röð. E-riðill er galopinn og spennandi eins og stendur en þar trónir AC Mil- an á toppnum með fimm stig. PSV Eindhoven og Fenerbahce fylgja fast á hæla liðsins með fjögur stig en tvö fyrstnefndu liðin mætast í kvöld í ein- um af stórleikjum kvöldsins. PSV er reyndar á hörkusiglingu í Meistara- deildinni því það hefur ekki tapað síðustu níu leikjum sínum á heima- velli. í fyrra komst.liðið áfram úr riðla- keppninni í fyrsta sinn í sögu þess og komst alla leið í undanúrslit. Þar tap- aði liðið einmitt fyrir AC Milan xig á því harma að hefna nú. Sigur í kvöld mun fleyta sigurliðinu langleiðina inn í 16 liða úrslit keppninnar. Stórstjamanna í Real Madrid bíð- ur það verkefni að spila gegn Rosen- borg í Noregi en sigri liðið í kvöld mun aðeins stórslys koma í veg fyrir áframhaldandi þátttöku þess í keppninni. Eftir að hafa hikstað í haust virðist Real Madrid nú eiga gullið tækifæri að koma sér á beinu brautina en liðið vann góðan sigur á Real Betis í spænsku deildinni um helgina. I H-riðli mun spútniklið Art- media Bratislava freista þess að end- urtaka leikinn frá því að þeir spiluðu síðast gegn skosku liði á heimavelli er þeir mæta Rangers í kvöld. Síðast vann liðið 5-0 sigur á Celtic í for- keppninni en árangur þess hefur komið mjög á óvart og ef leikmenn Artmedia vinna í kvöld eiga þeir afar góðan möguleika á að koma sér áfram á næsta stig keppninnar. eirikurst@dv.is Ein skærasta tennisstjarna heims er týnd og tröllum gefin Jelena Dokic ekki sést síðan í ágúst Ein þekktasta tenniskonan í dag, Serbinn Jelena Dokic, er horfin af sjónarsviðinu og er engu líkara en að jörðin hafi gleypt hana. Tennis- heimurinn hefur ekkert heyrt af henni síðan í ágúst síðastliðnum. Dokic komst hæst í fjórða sæti styrkleikalista alþjóðatennissam- bandsins en er nú dottin niður í sæti númer 348 enda hefur hún lát- ið sig vanta á mót undanfarnar vik- ur og mánuði. Nú er svo komið að hún má ekki taka þátt í neinu móti á vegum sambandsins fyrr en hún greiðir tæplega 45 þúsund króna sekt. Ekki einu sinni faðir Dokic veit hvar dóttir hans er niðurkomin. „Ég hef ekki hugmynd um hvar dóttir mín er,“ sagði faðirinn í samtali við serbneskt dagblað en hann hefur það orðspor á sér að skapbráður í meira lagi. Var honum til að mynda vísað úr sæti sínu þegar hann horfði á dóttur sína spila á Wimbledon- rnóti eitt árið. Hin 22 ára Dokic sleit reyndar öllum tengslum við föður sinn fyrir fáeinum árum. Dokic hefur ekki unnið stórmót í tennis en besti árangur hennar er sæti í undanúrslitum á Wimbledon. Áhangendur hennar á heimasíð- unni jelena-dokic.com eru furðu lostnir yfir - 'iS**®*"' þessu öllu saman og velta því fyrir sér hvað hafi orðið um hetjuna, „hina fríðu“ eins og hún er kölluð. En mönnum þykir greinilegt að hún eigi langt í land með að ná fyrri getu en besta árangri sínum náði hún árið 2001 þegar hún þénaði samtals 1,2 milljónir dollara. í ár hefur hún þénað um 10 þúsund dollara. eirikurst@dv.is i: PSV Eindhoven-AC Milan: 1 -2. ’5> Þetta verður naumur 5 sigur hjá AC Milan. 'i- Real Betis-Chelsea: 1-3. £ Þaðer spurning hvort þeir •JjJ nenni að fara i þrjú mörk en X Chelsea vinnurleikinn létt. PSV Eindhoven-AC Milan: 1-2. Hafa verið hörkuleikir hjá þessum liðum en leikmenn Milan eru heitir eftirsigurá Juven tus. Real Betis-Chelsea: 0-1. Seiglu- sigursterkra Chelsea-manna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.