Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2005, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2005, Side 22
22 ' ÞRIÐJUdÁGUR1'. NÓVEMBER2ÓÖ5 Fjölskyldan fiV Ekki ala upp lygalaup Ef þú vilt ekki að barnið þitt leggi fyrir sig að Ijúga reglulega verðurðu að sýna gott fordæmi. Passaðu þig á því að skrökva ekki fyrir framan barnið. Ekki biðja barnið um að Ijúga fyrir þig, eins og til dæmis um aldur þinn eða segja sölumanninum í símanum að þú sért ekki heima. Börn gera ekki greinarmun á slíkri lygi og þeirri sem það segir þér. Skapaðu þægilegt andrúmsloft á heimilinu svo barn- inu finnist það ekki knúið að Ijúga ef það gerir eitthvað af sér. Reyndu líka að standa við öll loforð og útskýra vel ástæðuna ef þú getur ekki staðið við orð þín. m -< Viðbrögð barna við skilnaði Börn bregðast mismunandi við skilnaði foreldra sinna. Skiln- aðurinn getur skilj- anlega haft mikil áhrif enda hafa börnin oft áhyggjur af eigin öryggi og eru ekki alltaf sátt við út- komuna. Algeng- ar spurningar sem vakna eru: Ætla þau bæði að yfirgefa mig? Hvað gerði ég rangt? Er skilnað- urinn mér að kenna? Hvað mun verða um mig? Mörg börn kotna andlega illa út úr skilnaði og þá er rétt að leita hjálpar fagfólks því barnið getur upplifað mikinn kvíða og jafnvel einmanaleika. Unglingar og áfengi Áfengi hefur áhrif á heilann Með því að neyta áfengis minnkar dömgreind þín, viðbrögðin verða hægari, sjónin versnar, gloppur koma í minnið og samhæfing þfn minnkar. Áfengi hefur áhrif á líkama þinn Áfengi getur haft alvarleg áhrif á líffæri þín. Rannsóknir benda til þess að áfengi auki líkurnar á krabbameini. Áfengi tekur af þér sjálfsstjómina Áfengið brýtur niður höftin og veik- ir dómgreind þína. Þú ert líklegri til að taka ákvarðanir sem þú átt eftir að sjá eftir alla ævi, svo sem að stunda óvarið kynlíf eða stíga upp í bíl drukkins ökumanns. Áfengi getur drepið þig Árið 1998 var hægt að tengja 36% umferðarslysa við áfengisneyslu. Áfengisneysla undir lögaldri er ólögleg Þú mátt ekki neyta áfengis fyrr en þú ert orðin(n) tvítug(ur). Þú myndir ekki brjóta lögin að öðru leyti. Sæll sálfræðingur Ég er rúmlega tvítug og var að byrja að starfa á leik- skóla. Mér var boðið þetta starf og ég veit að það er erfitt að fá fólk á leikskólann og þess vegna lét ég til Íeið- ast. Ég vann á leik- skóla um nokkurra mánaða skeið fyrir nokkrum árum en fékk aldrei almenni- lega tilfinn- ingu fyrir starfinu. Núna finnst mér þetta allt í einu svo erfitt, þ.e.a.s. starfið, börnin eru sum mjög erfið og mér finnst erfitt að höndla þetta allt. Það bætir ekki úr skák að deildin sem ég vinn á er undirmönnuð og því er streitan ennþá meiri. Mig langar til að vita hvort þú hafir einhver góð ráð handa mér. Sæl leikskólastarfsmaður. Þú ættir að kanna hvort þú eigir ekki rétt á einhverjum námskeiðum, ég veit að þeir sem vinna á leikskóla eiga rétt á slíku. Ég legg til að þú ræð- ir það við leikskólastjórann hvaða námskeiðum þú eigir rétt á og hvaða stuðning þú getir fengið. Þegar ég starfaði við leikskóla hélt ég fyrirlestur um aga. í öllum leikskólum er ákveðin stefna varð- andi viðbrögð við agavandamálum og best að þú kynnir þér hana fyrst. Agavandamál em afgreidd á ýmsan hátt en meginstefnan er að tekið er á vandanum án þess að niðurlægja bamið og einnig verður að gæta þess að það valdi sem minnstri truflun. Að takast á við erfiða hegðun Það fyrsta sem þarf að gera þegar barn brýtur af sér er að stöðva hegð- unina. Því næst þarf að nefna óásætt- anlegu hegðunina við barnið svo það skynji hvað það gerði sem var rangt. Þar getur verið gott að láta barnið endurtaka hvað það gerði sem var rangt og benda því einnig á betri hegðun. T.d að biðja um að fá leik- föng lánuð í stað þess að rífa af næsta barni. Þegar fyrirmæli eru gefin er best að færa sig nær baminu, vera ákveð- inn á svipinn, segja nafn bamsins, halda augnsambandi og tala ákveð- inni röddu. Reglur á leikskóla Uppi á veggjum í flestum leikskól- um hangir blað um það hvemig er æskilegt að böm nagi sér í leikskólan- um. Þar er tekið á hlutum eins og að sitja og hlusta þegar sögur em lesnar, að taka ekki leikföng frá öðrum böm- um í leikstund og að sýna tillitssemi. Það hefur reynst mjög vel að sýna ungum börnum með látbragði til hvers er ætlast af þeim. T.d. að setja fingur á munn þýðir að tala ekki. Börn sem sýna erfiða hegðun Þegar börn sýna mjög erfiða hegð- un þarf oft að sérsníða prógramm fyr- ir þau. Oft er þetta gert í samstarfi við foreldra. í hverju tilfelli fyrir sig þarf að ákveða hvert vandamálið er. Er barnið erfitt í samvemstund, á matar- tímum eða annars staðar? Og einnig í hverju erfiðleikamir felast, á bamið •erfitt með að sitja kyrrt, talar það mik- ið eða sýnir það öðmm bömum árás- arhegðun? Fyrst þarf að ræða við barnið um hvers sé ætlast til af því í hverju tilfelli fyrir sig og síðan þarf að ákveða umbun. Það er að segja hver er ávinn- ingur bamsins ef það fer eftir settum reglum. Öryggi í samvistum við börn Það skiptir máli að vera sjálfum sér samkvæmur og ömggur í sam- skiptum við böm því þau skynja óör- yggi mjög vel. Samræmi milli starfs- manna er líka mikilvægt, þ.e. að einn sé ekki að leyfa eitthvað á meðan annar er að banna það sama. Reglulegir samstarfsfundir em góður vettvangur til að ræða þau vandamál sem upp koma og einnig gætir þú beðið um fund með leik- skólakennara ef þér finnst starfið vaxa þér í augum. Gangiþérvel. Verðurbarnið þitt vandræðaunglingur? Minnistöflur Vatið fæðubótarefni ársins 2002 í Finnlandi ■ |f FOSFOSER MEMORY oðs . og söluaðili sími: 551 9239 .birkiaska.is Eyddu tíma með ung■ lingnum þínum. Styrktu samband ykkar og hlustaðu á hann. J Fylgstu með ung- lingnum. Vertu með á hreinu hvert hann fer og með hverj- um hann eyðir tíma sínum. Settu reglur varðandi hegðun sem eru viðeigandi aldri unglingsins. Efhann brýtur reglurnar skaltu standa við hótaðar afleiðingar. Kynnstu vinum unglingsins og fjölskyldum vinanna einnig. Þróaðu lýðræðislegt andrúmsloft á heimilinu. Taktu mark á skoðunum unglingsins, beröu virðingu fyrir honum og horfðu í augu hans þegar hann talar. Bjóddu unglingnum hjálp með heimavinnuna. Spurðu unglinginn hvernig skóladagurinn hafí gengið og hvaða vandamál hafí komið upp. Ræddu við unglinginn um hópþrýsting og þær tilfinningalegu og líkamlegu breytingar semhannerað ganga i gegn um. Útskýrðu í rólegheit- unum við hverju þú býst afunglingnum. Aðstoðaðu ungling- inn við að taka réttar ákvarðanir með því að vera góð fyrirmynd. Notaðu eðlilegar afleiðingar ístað refs- ingar þegar reglur eru brotnar. Dæmi efbarnið krassar á borðið verður það að þrifa eftir sig.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.