Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2005, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2005, Qupperneq 27
DV Fréttír ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 2005 27 Hvolfþak Michelangelos afhjúpað Á þessum degi árið 1512 var hvolfþakið í Sixtínskú kapellunni í Róm sýnd almenningi í fyrsta skipt- ið, en það er skreytt myndum eftir Michelangelo. Þessi stórkostlega loftmynd Michelangelos er eitt af frægustu verkum hans. Hann var fjögur ár að ljúka verkinu og megnið af tímanum lá hann á bakinu á vinnupöllum uppi undir loftinu og málaði upp fyrir sig. Efni loftmynd- arinnar er sótt í sköpunarsöguna og ævi Krists. Þekktasti hluti verksins er sá sem fjallar um þann kafla sköpunarsögunnar þegar Guð skap- aði Adam. Michelangelo Buonarotti var einn mesti meistari endurreisnar- tímabilsins. Hann var fæddur í litlu þorpi á Ítalíu árið 1475 en ólst upp í Flórens þar sem endurreisnarstefn- an átti upptök sín. Michelangelo einbeitti sér mjög að því að teikna og mála hlutföll mannslíkamans rétt og frá öllum sjónarhornum. Það var ástæða þess að hann tók sér fyr- ir hendur að læra líifærafræði. Hann eyddi miklum tfma í að rannsaka fornklassískar höggmyndir og teikna naktar fyrirsætur. Það gerði Sixtínska kapellan Það tókMichelangelo fjögur ár að mála hvolfþakið I kapellunni. I dag árið 1991 var Hvíti víkingurinn frum- sýnd. Myndin er eftir Hrafn Gunnlaugsson og kostaði 450 millj- ónir króna. Hún var sú dýrasta sem ís- lendingur hafði gert. hann þar til hann gat gert það vand- ræðalaust. Michelangelo leit sjálfur á sig sem myndhöggvara og hjó stórfenglegar höggmyndir í marm- ara. Meðal þeirra frægustu eru Dav- íð og Pieta. Verk hans eru risastór og fólkið yfirnáttúrulega fallegt. SigurAur Jóntson hringdi: r1UIMkviMki.V1m.V4! á |urt íih vp'a mcr af tw- um hvlxai fa .1 k-ixtihilakminaAimi. rlUM nu-fl ltsll »1 ív .itna lij.i, |nim %cm vjí 1 t>K ItlllA luuin i-rta liana MpiWKnn m-il ktmitiu Sundlaugarvörðurínn segir Úr bloggheimum Björk og Barney „Vá. Ég fékk svo mikla gæsahúð I gær að ég hélt ég myndi sprínga. DaníelÁgúst brást mér ekki, enda bjóst ég ekki við neinu öðru en bull- andi snilld frá þessum manni. Þrátt fyrír það að Baldur kom með besta one-liner sem ég hefheyrt i langan tima:„Gaman að þvihvað Gabriela Friðriks er mikið að reyna að vera Matthew Barney og Daníel Ágúst er mikið að reyna að vera Björk. Gott skítamix þar á ferð." Solla - blog.central.is/hangerladies Þ'reytt, úldin, lúin „Svona er morguninn minn: Ég opna aug- un. Ég nudda þau og trúi ekki að nóttin sé „tiðirí'iég trúi að dagur byrji eftir 9 á vet- urna). Það er algjört myrkur inni sem úti - ég kveiki Ijósið. Fæ von t i augun. Fer i slopp- inn og tritla upp á efrí hæð- ina til aðfara I sturtu. Allter slökkt. Foreldr- arnir sofa. Kveiki tjósið inni á baðherbergi - fæ aftur illt i augun... andvarpa... fer i sturtu. Svo er mætt i skólann, þreytt, úldin, lúin. Við það aðsofnaí 2 tíma... fæ mér kaffi. Loks byrjar að birta og þá virðist þetta ekki lengur vera svoslæmt." Þórunn Helga - thorunnin.blogspot.com Ryksugað á hælum „Keypti mér rauða háhælaða skó um dag- inn. Þvílikir femme fatale skór. Langur og mjór hæll sem gæti stungið augun úrhvaða manni sem er. Þegar ég stíg í skóna getég allt. Eitt kvöldið I vikunni leiddist mérsvaka- lega, var búin að þrífa alla ibúðina, ekkert I sjónvarpinu, Valurað vinna, enginn til að tala við nema kettirnir Boris og Miho, trúið mér það er bara ekki holltað tala mikið við þau. Þrammaði um gólfað reyna að finna útúr þvihvað ég ætti að gera við sjálfa migþað sem eftir væri kvöldsins. Dattþáþað snjall- ræði í hug að ná i nýju skóna og ganga þá til fyrst ég væri núá þessu iði. Viti menn, um leið og ég steig ofan í skóna mundi ég að ég ætti tvo bjóra i isskápnum. Opnaði einn kveikti mér í sígó, tók upp símann og ákvað að hringja í fyrrverandi kærastana mina." Iris Anna Randversdóttir - blog.central.is/bassafanturinn Tilnefningin kom skemmtilega á óvart „Ég var satt best að segja ofsalega hissa og hafði ekki leitt hugann að því að það væri komið að Edduhátíð- inni," segir Guðlaug Elísabet Ólafs- dóttir leikkona sem er tilnefnd til Edduverðlauna fyrir leik sinn í Stelp- unum. Stelpurnar er gamanþáttur sem sýndur er á Stöð 2 við miklar vin- sældir og er svar við öllum þeim gamanþáttum sem eingöngu karl- menn hafa leikið í hingað til. „Þetta var búið að liggja í loftinu lengi og löngu orðið tímabært að vera með gamanþátt leikinn af stelp- um. Strákar hafa alltaf átt grínið og það hefur verið erfitt fyrir okkur stelpurnar að komast inn í þann geira. Loksins var ákveðið að kýla á það og þetta er að þrælvirka," segir Guðlaug. Áð sögn Guðlaugar er mjög skemmtilegt að vinna með þeim frá- bæm stelpum sem leika með henni. Allt starfsfólk sem komi að vinnslu þáttanna sé mikið fagfólk og góður andi sé í upptökuverinu. „Svo er ég líka að leika í geðklofn- um gamanleik í Hafnarfjarðarleik- húsinu sem heitir Himnaríki við frá- bærar móttökur. Það hefur verið fullt hús frá því við frumsýndum í byrjun september. Leikritið fjallar um ungt fólk sem fer upp í sumarbústað á fyllirí og ýmislegt skemmtilegt sem geristþar." Guðlaugu vantar nokkrar eining- ar til að klára meistaragráðu í Evr- „Þetta var báið að iiggja í ioftinu iengi og iöngu orðið tíma- bært að vera með gamanþátt ieikinn af stelpum ópufræðivali í hagnýtum hagvísind- um á Bifröst. „Ég setti námið á „hold“ því það er svo mikið að gera hjá mér núna en ég ætla að klára námið einhvem tím- ann,“ segir Guðlaug og er ósmeyk við veturinn. „Mér líður frábærlega vel, haustið er minn tími, kerti og róm- antík og að dúða sig, ég elska það.“ ilaug Elísabet ólafsdóttir er leikari að mennt. Hún lék í gamanÞáttunum íasúnan oq núna leikur hún í gamanþættinum Stelpurnar a Stoð 2. Hun er efnd til Edduverðlauna fyrir leik sinn í þeim þáttum. Guðlaug er i meistara- Jvið Viðskiptaháskólann á Bifröst í Evrópufræðivali hagnytra hagvismda. Gísli á skjön við flokkinn Það er gaman að fylgjast með Gísla Marteini og Vilhjálmi þessa dagana. Þeir rífast og geta ekki verið sammála um hvar eigi að byggja í framtíðinni í Reykjavík. Fyrir einhverjum mánuðum síð- an var Sjálfstæðisflokkurinn með yfirlýsingar um hvar þeir vildu byggja í Reykjavík, meðal annars voru þeir með hugmyndir um að byggja á Sundunum sem var al- gjör snilldarhugmynd að mínu mati og ég held að það hafi verið þokkaleg samstaða innan flokks- ins um þá hugmynd. En nú vill Gfsli Marteinn ekki byggja þar heldur byggja í Vatnsmýrinni og Geldinganesi. Gaman verður að fylgjast með þessari umræðu þeirra í kosningabaráttunni. En þeir gera sér ekki grein fyrir því að þeir geta alveg sleppt þessari umræðu því í ffamtíðinni mun fólk miklu frekar vilja búa í Hafn- arfirði. Úr einu í annað. Ég var alls ekki ánægður þegar ég heyrði að Þórður Guðjónsson ætlaði að fara í FH. En svo var þessi ffétt dregin eitthvað til baka og ég vona að hann hafi eitthvert vit í kollinum og fari bara heim og spili með þeim gulu. Það er nóg að vera búnir að missa Gunnlaug til erkifjendanna. En svo er topp- urixm á vikunni stórtap United. Kostulegir Hall- I grimi sundlaugar- I verði finnst gam- I an að fylgjast I með Gísla Mar- I teini og Vilhjálmi Iþessa dagana. Hallgrímur Kúld ilinn. Árangur þessara stráka er ffá- bær og gefur okkur íslendingum mikið. Það er mjög nauðsynlegt fyrir unga knattspyrnuiðkendur að sjá að það er hægt að ná árangri sem at- vinnumaður jafnvel þó að maður komi frá „litla“ íslandi. Ég tek ofan fyrir þessum strákum og óska þeim alls hins besta í ffamtíðinni. Ég á ingum eigi eftir að fjölga í toppliðum heldur ekki von á öðru en að íslend- Norðurlandanna á næstu árum. íslendingar sigra Halldór Gunnarsson skrifár: Það var gaman að fylgjast með ís- lenskum knattspymumönnum um helgina. Ámi Gautur tryggði sér norska meistaratitilinn með Váler- enga og lið Jóhannesar Harðarsonar, Start, endaði í öðm sæti deildarinn- ar. Ekki slæmur árangur þar á ferð. í Svíþjóð var svo Kári Árnason að brill- era með liði sínu Djurgaarden sem tryggði sér sænska bikarmeistaratit- Kári Arnason Varð sænskur bikarmeist- ari um helgina með Lesendur DVeru hvattir til að senda okkur tölvupóst á netfangið ritstjorn@dv.is og láta í Ijós skoðanir sínar á málefnum líðandi stundar. í bak leigubflstjora Þorsteinn Héðinsson leigubústjóri hringdi: Ég las lesendabréf frá Sigurði Jónssyni í DV í gær og þótti það veru- lega ósanngjarnt. Hann sagði að hjá Hreyfli-Bæjarleiðum þyrfti að borga startgjald upp á nýtt ef fleiri en einn þurfa að borga með greiðslukorti. Þetta var hreinn og beinn rýtingur í bakið á okkur. Við áttum við þetta vandamál en emm löngu búnir að laga það. í sumar var farið í heilmikið prógram til að laga þetta hjá Hreyfli- Bæjarleiðum. Það komu Danir hing- að til landsins sem settu upp nýtt tölvukerfi í alla bílana. Nú getum við tekið við fjórum greiðslukortum. Það stendur á skjánum þegar við byrjum hverja ferð. Mér fannst ómaklegt af Sigurði að koma með þessa gagnrýni þegar forsendur hennar em kolrang- ar. Hann hefði átt að kynna sér málið betur. svmari Sigurður osattur Sigurður Jónsson segir þirrandi þegar leigubilstjórar geta ekki tekið á móti fleiri en einu greiðslukorti. ■ Leigubilstjórar svara 1 Þorsteinn segir Sigurð reka J rýting i bak bílstjóranna. | Vandamálið sé horfið. Lesendur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.