Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2005, Síða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2005, Síða 40
T* f J i CJ^>J í 0 t Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem birtist, eða er notað íDV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar ^nafnleyndar er gætt. ~j Q fJQ (J SKAFTAHLtÐ24,105REYKJAVÍK [STOFNAÐ 1910] SÍMIS505Q00 5 ^6907íWTíTí7 • Séra Pálmi Matthíasson, sóknarprestur í Bústaða- kirkju, kvaddi söfnuð sinn í bili í lok messu á sunnudag. Sagðist Pálmi vera á leið í frí. Þrír aðrir prestar munu leysa hann af hólmi næstu þrjá sunnudaga. Pálmi mun vera á leið í sólina í Flór- ída. Þangað hefur prest- urinn gjarnan farið til að slappa af í boði safnaðar síns. Búast nú flestir í Bústaðasókn við að lokið sé tíð fellibylja á Flórídaskaga og í Mexík- óflóa fyrst séra Pálmi er mættur þangað í öllu sínu veldi... Guðdómlegt á Flórída! Strákarnip í með að vera Hljómsveitin Jakobínarína, sem vann Músíktilraunir í fyrra, stóð sig framar vonum á Iceland Airwaves-hátíðinni sem lauk fyrir rúmri viku. Blaðamaðurinn David Fricke, sem skrifar fyrir hið virta tónlistartímarit Rolling Stone, var gestur á hátíðinni og fór fögrum orðum um hátíðina og frammistöðu nokkurra íslenskra hljómsveita. Ein af þeim var Jakobínarína en Fricke líkti henni við Joy Division auk þess sem hann líkti Gunnari Ragnarssyni, söngvara sveitarinnar, við hinn fræga Mark E. Smith, söngvara pönksveitarinnar The Fall. Gunnar sagði í sam- tali við DV í gær að hljómsveitarmeðlimir væru ánægðir með að vera lfkt við hina frægu sveit Joy Division en sagð- ist sjálfur ekki vera mjög líkur Mark E. Smith sxem söngvari. „Ég held að blaðamaðurinn hafi frekar verið að tala um sviðsframkomuna. Ég er frekar ofvirkur á sviði eins og Smith en sem söngvari hefur mér oft verið líkt við Ian Curtis, söngvara Joy Division,“ segir Gunnar. Aðspurður sagði Gunnar að það væri alltaf gaman að fá jákvæð viðbrögð en að þetta væri varla upphafið að heims- frægð sveitarinnar. „Þetta var rosalega skemmtileg hátíð, mikill stemning og gott hljóðkerfi og það stendur upp úr. Draumurinn er auðvitað að fá plötuna okkar gefiia út er- lendis en ég veit ekki hvort það gerist. Við höfum fengið fyrirspum frá einu erlendu fyrirtæki eftir hátíðina og mun- um spila á hátíð í Texas í mars á næsta ári. Síðan kemur plata frá okkur næsta sumar," sagði Gunnar að lokum. Smith, Jakobínapfnu Anægðip ID Joy Division r— ari The Fall Gunnar segist vera ofvirkur alveg eins og Smith. Gunnar Ragn- arsson Söngvari Jakobínarínu segir þaðgamanaðfá góð viðbrögð. lan Curtis, söngvari Joy Divlsion Gunnar segist oft hafa ver- ið líkt við hann. Úr Kvöldþættinum í jólaundirbúning „Það er nóg að gera í félagslífinu, ég er svo mikil félagsvera," sagði Guðmundur Steingrímsson um hvað hann hefðist við þessa dag- ana. Eins og kunnugt er hafa for- svarsmenn Sirkus tekið Kvöldþátt Guðmundar af dagskrá. „Ég ætla að undirbúa jólin ofsalega vel og baka nokkrar smákökutegundir. Ég er búinn að fá leyfi hjá Ólafi Elí- assyni til að búa til ofsalega ná- kvæma eftirlíkingu af tónlistar- húsinu hans úr piparkökum." En það er ekki bara jólaund- irbúningurinn sem á hug Guðmundur því _____ hann ætlar að I jólagírnum Guðmund- stofna gönguklúbb ■A-s-. tí urætlaraá takajólin með með Ragnllildi trompi og baka nokkrar Geirsdóttur, smákökutegundir. Þórólfi Ámasyni og Ásgeiri Sigur- vinssyni, sem öll hafa misst starfið að undanförnu. „Mig hefur alltaf langað í gönguklúbb. Að ganga um Seltjamarnesið með staf." Spurður út í hvort hann ætli að fá sér nýja vinnu hváði Guðmund- ur. „Það er ofsalega vanmetin þessi vinna sem býr að baki fallegu jólaskrauti. Það er ofsalega mikið nostur sem býr að baki til dæmis músa- stigum." Hann bætir við að auk þess sé hann mikið á net- þessa dagana að skoða stytt- ur af jólasveinum og Maríu mey til að setja í garðinn hjá sér. „Þetta em spennandi tímar." Mósaíkdeilan að leysast „Ég ætla að halda áfram. Verð hér lengur," segir Jónatan Garðarsson, menningarforkólfur Kastljóssins hjá Sjónvarpinu. Fyrir helgi kvartaði Jónatan yfir dræm- um hlut menningarinnar í Kastljósi í viðtali við Frétta- blaðið. Þáttur hans Mósaík var bræddur inn í hið nýja Kastljós prógramm og þótti Jónatani sem menningin væri skilin út undan í veislunni. Hótaði því að segja bless við ríkisstofnun- ina í Efstaleiti. Nú virðist sem ró sé komin í málið. Að sinni. „Þetta var ekkert mál. Það er ÍL eins og gengur, ekki alltaf hægt að gera öllum jafnhátt undir höfði. Balansinn verður að ráðast eftir því hvað er að gerast hverju sinni. Þetta lærist allt smám sam- an,“ segir samstarfsmaður Jón- atans í Kastljósinu, Kristján Kristjánsson. „Við höfum verið með mikið af menningu héma frá upphafi og ætlum að halda því áfram."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.