Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2005, Blaðsíða 12
72 MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 2005
Fréttir DV
Heimsmet í
teygjustökki
Ástralarnir A.J. Hackett
og Grant Denyer stukku út
úr þyrlu yfir Bondi-strönd-
inni við Sydney um helg-
ina. Þeim tókst að setja
Guinnes-heimsmet í
teygjustökki með því að
nota 300 metra langa teygju
í stökkinu.
Lukkudýrin
kynnt
Það var mikið um dýrðir í
Peking á föstudaginn. Þá
kynntu Kínveijar formlega
lukkudýr ólympíuleikanna,
sem fara ifam í borginni árið
2008. Þau eru pandabjörn,
fiskur, antilópa frá Tíbet og
súla. Háttsettir kínverskir
embættismenn kynntu
lukkudýrin í viðhafnarút-
sendingu en á föstudaginn
vom nákvæmlega 1000 dag-
ar þar til leikar hefjast.
Niður með
hnattvæð-
ingu
Þúsundir manna mættu
og mótmæltu fyrir framan
bandaríska sendiráðið í
Seoul í Suður-Kóreu í gær.
Fólkið mótmælti hnattvæð-
ingu en leiðtogar Kyrra-
hafsþjóða hittast á fúndi í
Seoul í vikunni. Þar á með-
al annars að ganga frá
samningi um frjálsa versl-
un milli þjóðanna.
Áfall fyrir
Arnold
Amold Schwarzenegger
fylkisstjóri mætti
skömmustulegur á blaða-
mannafund á skrifstofu
sinni í Kaliforníu fýrir helgi.
Þá vom nýafstaðnar kosn-
ingar í fylkinu þar sem allar
tillögur Arnolds og hans
manna vom felldar. Hann
sagðist ætla að leggjast yfir
málin og finna lausnir á
vandamáium Kaliforníu.
Þrátt fyrir útgöngubann frönsku ríkisstjórnarinnar virðist fátt geta komið
böndum á óeirðirnar, sem nú hafa geisað í tvær vikur. Um helgina gerðist
það sem margir höfðu óttast. Óeirðirnar bárust til næst stærstu borgar
landsins, Lyon. Fjölmargir mótmæla þó látunum í samborgurum sínum.
Japönsku keisarahjónin gefa einkadóttur sína í hjónaband
Látlaus en magnþrungin kveðjustund
Keisarahöllin í Japan sendi frá sér
ljósmyndir í gær, sem sýna athöfii
sem fór þar fram á laugardag. Þar
kveðja Akihito keisari og Michiko
keisaraynja dóttur sína með athöfii-
inni „Choken-no-gi“. Sayako
prinsessa giftist á morgun embættis-
manninum Yoshiki Kuroda en það
þýðir að hún mun ekki taka þátt í fleiri
athöfiium sem meðlimur keisaraijöl-
skyidunnar. Athöfiiin var því hennar
síðasta sem meðlimur hennar.
Viðbúnaður í
Amman
Jórdanskir öryggisliðar standa
þessa dagana vörð í miðborg
Amman. Mikill viðbúnaður er í
kjölfar sjálfsmorðssprenging-
anna, sem drápu 57 á dögunum.
Tilkynnt var í gær að írösk eigin-
kona eins hinna þriggja sprengju-
manna hafi verið handtekin. í
gær fór einnig fram stór minning-
arathöfn vegna fómarlambanna.