Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2005, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2005, Blaðsíða 21
20 MÁNUDACUR 14. NÓVEMBER 2005 MÁMDAGUR 14. NÓVEMBER 2005 Z1 Sport J3V Bestu útlendingar fc'. '! Paolo Di Canio Di Canio vai ekki eins vinsæll leikmaður og Zola á alþjóðlegum mælikvarða, en hann hafði yfir svipuð- um hæfileikum að ráða og var einn umdeildasti og skrautlegasti leikmaður í sögu enskrar knattspymu. Eftir að hafa leikið með nokkrum liðum á Ítalíu, fór Di Canio til Skotlands, þar sem hann náði sér aldrei á strik með liði Celtic. Þaðan fór hann til Sheffield Wednesday þar sem hann blómstraði og átti frábært tímabil. Skapsmunir hans komu honum þó fljótt f vandræði og hann þurfti að taka út langt keppnis- bann fyrir að hrinda dómara í leik með Wednesday, sem varð til þess að hann gekk til liðs við West Ham fyrir lítið fé. Þar hélt sýningin áfram í fjögur ár, þar sem áhangendur Lundúnaliðsins voru áskrifendur af glæsitilþrifum hans og dramatík. Manchester United gerði ítrekaðar tilraunir til að krækja í Di Canio, en allt kom fyrir ekki og Di Canio er nú að leika með uppáhaldsliði sínu á ítalfu, Lazio, þar sem segja má að skaphiti hans og uppátæki falli beturíkramið. Í >« Franski vængmaðurinn síðhærði olli miklu fjaðrafoki þegar hann kom inn í deUd- ina á sínum tíma, hvort sem það var fyrir glæsilegar rispur upp kantana, umdeildar yfirlýsingar um eigin getu eða sjampóaug- lýsingar. Ginola vann hug og hjörtu Newcastle-aðdáenda fyrstu tvö árin sín í deildinni, en á White Hart Lane í Lundúnum þar sem hann lék með Tottenham á hátindi ferilsins er hann einfaldlega í guðatölu. Þótt hann safnaði ekki miklu silfri í tíð sinni í Norður-Lundún- um, var Ginola alltaf einn af betri leikmönnum deildarinnar og árið 1999 var hann kjörinn tvöfaldur leikmaður ársins, þótt liðinu gengi tiltölulega illa f deildar- keppninni. Ginola var oft umdeildur fyrir ákvarðanir sínar á vellinum, en engum dylst að þar var á ferðinni einstaklega hæfileika- ríkur knattspyrnumaður. K- 9 ■36». Jurgen Klinsmann Það tók þýska markahrókinn Jurgen Klinsmann aðeins 18 mánuði að verða goðsögn á White Hart Lane, þar sem hann lék með liði Tottenham tímabilið 1994-95. Stuðningsmenn Tottenham voru margir hverjir efins um að Klins- mann gæti látið að sér kveða á Englandi, því hann hafði orð á sér fyrir leikaraskap og leiðindatilburði í teig andstæðinganna. Þessi stimpill var þó fljótur að fara af honum þegar hann byrjaði að raða inn mörkunmn fyrir Totttenham og hann lauk leiktíðinni sem markahæsti maðurinn í efstu deild og var kosinn leikmaður ársins af blaðamönnum. Eins og til að und- irstrika stöðu sína sem goðsögn í sögu liðsins sneri hann aftur til fé- lagsins árið 1997 þegra liðið var í fall- baráttu og bókstaflega skaut liðinu á lygnan sjó þegar hann raðaði inn mörkum í lokaleikjum mótsins. Til að gera sér grein fyrir snilli danska markvarð- arins Peter Scmeichel, þarf ekki annað en að horfa til þess hve illa Manchester United hefur gengið að fyila skarð hans síðan hann fór frá félaginu. Eric Cantona skoraði mMvæg mörk fyrir United, en það var Scmeichel sem sá um hlutina á hinum enda vailarins og llkamlegir burðir hans, skipulag og leiðtogahæfi- leikar gerðu það að verkum að hann er einn besti markvörður sem leikið hefur á Englandi. Scmeichel var ótrúlega sigursæll og vann ógrynni titla með bæði landsliði sínu og félagsliðum í Evrópu. Síðasti leikur hans með Manchester United var lýsandi fyrir feril hans, en það var leikurinn sem tryggði United þrennuna stórkostlegu með sigri á Bayem Munchen árið 1999 í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. mi Sport MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 2005 21 Patrick Vieira Viera kom til Arsenal eftir misheppnaða vist á Ítalíu, rétt eins og Bergkamp, en ólíkt þeim hollenska náði hann fljótlega að láta hart að sér kveða á Englandi með þeim hæfileikum sem hafa gert hann að einum besta miðjumanni í úrvalsdeildinni á síðasta áratug. Vieira hefur alltaf verið mjög harður leikmaður og vinnusamur, en góðar sendingar og mikil yfirferð em meðal þess sem gera hann að þeim klassaleikmanni sem hann er. Hann hélt því oft á tíðum fram að hann væri lagður í einelti af dómurum, en sum hinna íjölmörgu rauðu spjalda sem hann fékk á ferlinum átti hann fyililega skilin fyrir skapvonsku og grófan leik. Ljóst er þó að skarðið, sem hann skilur eftir í liði Arsenal þegar hann gengur til liðs við Juventus, verður ekki auðfyllt. Eric Cantona Cantona var útlendingurinn sem lagði línumar deild og bikar. Það var oftar en ekki Cantona sjálf- Margir gætu furðað sig á því að maður, sem sjaldan tekur menn á eða leggur upp mörk og hefur aldrei skorað mark fyrir utan vítateig, skuli vera valinn einn besti útlendingurinn til að leika í fyrir þá miklu innreið sem síðar hefur orðið í ensku ur sem rak endahnútinn á fjölmarga 1 -0 sigra liðs- • ensku úrvalsdeildinni. Það er ekki hægt að líta knattspymunni og hefur gert hana að skemmtileg- ustu deild í heimi. Það eina sem Cantona tókst ekki á meðan hann spilaði á Englandi var að vinna Evrópubikar, en það gleymist fljótt þegar horft er til þess hve ótrúlega sigursæll hann var í úrvals- deildinni. Hann var settur í níu mánaða keppnis- bann fyrir líkamsárás á áhorfanda í leik, en svo sneri þessi litríki franski leikmaður aftur og leiddi ungt lið Manchester United til tvöfalds sigurs í ins og það gerði hann meðal annars í mikilvægum útisigri á meistaraefrium Newcastíe og í bikarúr- slitaleiknum gegn Liverpool. Cantona bar við leiða þegar hann lagði skóna á hilluna aðeins 31s árs gamall, en hafði þá þegar skipað sér sess sem goðsögnin sem lagði grunninn að nýjum kafla í sigursögu Manchester United, sem og einn allra besti leikmaður sem spilað hefur á Englandi. framjá manni sem skorar annað eins af mörkum og Nistelrooy hefur gert síðan hann kom til United frá Hollandi. Eins og sást í fyrra, þegar Ni- stelrooy átti við meiðsli að stríða, er hann langt í frá sami leikmaður þegar hann er ekki að skora mörk. Þegar hann er í stuði.er hann aftur á móti einn sá eitraðasti í bransanum, eins og tveir markakóngstitlar hans á Englandi og ótrúlegur fyöldi marka hans í Meistaradeildinni bera með sér. t Gianfranco Zola Margir vilja meina að aldrei eigi eftir að koma fram útíendingur sem verði eins vinsæll og hinn smávaxni Sardínubúi, Gianfranco Zola, sem Chel- sea keypti frá ítalska liðinu Parma árið 1996. Þá var Chelsea lið sem var þekkt fyrir að sanka að sér fyrr- um stórstjömum sem vora við það að leggja skóna á hilluna, en Zola féll aldrei imdir þann hatt. Hann vann alla knattspymuáhugamenn á sitt band með leikgleði sinni og glæsilegum tilþrifum. Það var líka Zola sem tryggði liði Chelsea fyrsta titil sinn í 26 ár, þegar hann átti stóran þátt í því að Chelsea vann enska bikarinn árið 1997 og urðu Evrópu- meistarar bikarhafa árið á eftir, þar sem Zola skor- aði sigurmarkið 20 sekúndum eftir að hann kom inná sem varamaður í leiknmn. Zola var sárt sakn- að þegar hann yfirgaf England og sneri aftur til ítaÚu í lok ferils síns, sem lauk fyrir skömmu. Dennis Bergkamp Kaupin á „Hollendingnum fljúgandi" fyrir stórfé á sínum tíma virtust vera rnikið lotterí fyrir Arsenal, því þessi fyrrum leikmaður Ajax í Hoflandi hafði ekki náð sér á strik með liði Inter á ítaflu. Það tók hann að vísu tvö ár að ná sér almennilega á strik með Arsenal og menn vora famir að tala um að kaupin á honum hefðu verið hræðileg mistök, en þau áttu engu að síður eftir að borga sig margfalt. Það var öðra fremur koma knattspymustjórans Arsenes Wenger sem hleypti lífi í feril Bergkamp á Englandi og samvinna þeirra Ians Wright, Nicolas Anelka og nú síðast Thierrys Henry, átti stóran þátt í að gera Arsenal að því sigursæla liði sem það hefur verið aflar götur síðan. Bergkamp var meðal annars valinn leikmaður ársins á Englandi árið 1998, þegar hann var maðurinn á bak við tvöfaldan sigur Arsenal í deild og bikar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.