Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2005, Síða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2005, Síða 39
 Spurning Notar þú leigubíla? Égkeyrisjálf. „Aldrei. Ég keyri sjálfþegar ég fer útað skemmta mér." Kolbrún Friðriksdóttir læknaritari. „Kannski svona þrisvar á ári." Guðrún Guð- „Stund- um. Svona fimm sinnum yfirárið." Erla Snorra- dóttir verslun- arkona. „Eigin- lega aldrei. Ég nota bara bílinn minn." ■ Guðlaug Magn- ! úsdóttir versl- unarkona. L.------------> Leigubílar reynast mörgum vel í neyð og dagsins önn.Öðrum þykja þeir allt of dýr ferðamáti. Fyrir helgi lenti leigubílstjóri í kröþþum dansi þegar ung kona hugðist ræna hann. amfylkingin týnd Engu er líkara en að Samfylkingin sé gjör- samlega búin að tapa áttum í íslenskum stjórnmálum. Nýjasti boðskapurinn er sá að SF þurfi að verja miðjuna. Já, SF telur sig allt i einu þess umkomrta að telja sig miðjuflokk- inn á íslandi og þurfi að verja stöðu sína þar fyrir i ásælni annarra [ flokka. En bíðum nú við. Hvað hefur \ gerst? Framsóknar- flokkurinn hefur | ávallt skilgreint sig L á miðju íslenskra | stjórnmála. Á i stundum hefur það V einmitt verið notað gegn honum — á þeim tímum sem margir vildu skil- greina pólitík- ýmist til hægri eða hægri vængnum Hjálmar Árnason alþingismaður skrifar á althingi.rs/hjalmara vinstri. Fram- sóknar- menn hafa ávallt talið það styrk sinn að vinna á miðjunni - hafna öfgum til hægri og vinstri en nýta það besta úr báðum átt- um. Nú er sem SF sé að átta sig á skynsemi þeirra sjónarmiða. Það er hins vegar rangt hjá formanni SF að hún þurfí að VERJAST sókn inn á þessa vinsælu miðju. SF er nefni- lega sjálf að þreifa fyrir sér og leitar inn á þá miðju sem Framsóknarflokkur- inn hefur ávallt ver- ið stoltur af. Við höf- um fylgst með því hvernig hugmyndafræði og málefni SF hafa sveiflast sem vindgapi í stormi. Tvö stærstu kosningamál hennar hafa verið slegin af (en samt ekki - ræðst af því hver talsmaðurinn er hverju sinni) og trúverðugleiki SF er í brimskafli. í örvæntingarfullri leit sinni að eigin tUveru dettur formanninum skyndUega i hug að miðjan sé svarið. Sú miðja hefur hins vegar af þeirra hálfu lítt verið skUgreind. Framsókn- armenn eru þvi allsend- is óhræddir við miðjudaður SF þvi allt er eins lík- legt að á morg- un verði búið að skipta um kúrs. Hver veit nema næsta útspU verði að SF hygg- ist verjast sókn Sjálfstæðismanna á Um: Tilboð Trúarbrögð heimsins gera það svona gott af því þau hafa lausn á þeim vanda sem blasir við hverjum manni: Dauðanum. Það er náttúrlega helvíti hart að sitja uppi með það að maður drep ist bara og þá sé allt búið og ekkert taki við nema hæg rotnun í sambýli við maðka. Mun betra er að gangast inn á tilboð trúarbragðanna um óljóst eftirlíf. Ef maður hefur verið þokkalega góður og duglegur í trúnni á maður ágætis tíma framundan í himnaríki, næstu vídd, næsta lífí. Ekki er gott að vera illmenni því þá fer maður til helvítis eða endurfæðist sem flatlús. Þetta fyrirkomulag - eða trúin á það - kýs fólk sér í stórum stíl ef það er yfirhöf- uð nokkuð að spá í þessu. Nú eru bankarnir komnir í harða samkeppni við trúarbrögð- in. Tilboð bankanna er reyndar J aðeins raunhæfara en trúar- bragðanna því ef maður lifir fram á eftirlaunaaldurinn á maður víst að uppskera fúlgur sem síðan er hægt að spreða í að gera líf sitt að einhvers konar himnaríki á jörð. Ef það er þá himnaríki að hanga að- gerðarlaus á stuttbuxum í leiguíbúð á Costa del Crap. Bankamir eru hreinlega óðir í mann og hamast á manni með nýrri og nýrri auglýsingaherferð. Sú nýjasta er um „mót- ffamlag" (atvinnurekandinn er víst bundinn með lögum til að borga í sjóðinn á móti okkur). „Ph's, láttu okkur fá hluta af laununum þínum," væla bankarnir stanslaust í manni, „og þegar þú ert búinn að gera það allt þitt líf færðu hauga af seðlum." Bankarn- ir slá upp svaka fi'num upphæðum, 13 milljónum, jafnvel 15, ef maður lætur þá hafa svo og svo mikið f hverjum mánuði. Þó þetta virki sem þokkaiegar upp- hæðir í dag verður þetta þó smáræði þegar að útborgun kemur, þökk sé verðbólgunni. Afborgunin af húsnæðis- láninu verður til dæmis komin upp í 500 þúsund kall á mánuði þegar fúlgan á að greiðast út. Það er því einhvern veginn þannig að þetta lyktar allt því að einhver sé að taka einhvern í staðinn þar sem sólin ekki skín. Sérstaklega þegar mitt f herferðinni birt- ast afkomutölur bankanna og upplýsingar um laun „æðstu" stjórnanda. Hvað þurfa bankarnir •7 annars að græða mikið til að við fáum lækkun á þjónustugjöldum og vöxtum? Ég segi því enn og aftur: Þið fáið ekki krónu frá mér f viðbótarlífeyrissjóð, f I bankabuliurnar ykkar! ~r ff 3.113L1TÍ Dr- Cunni FRÉTTASÍMI SEFUR ALDREI Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem birtist, eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrirbesta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Síminn er 550 5090 10.000.- kronur fyrir góða frétt *

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.